Bæjarins besta - 27.05.2010, Side 17
FIMMTUDAGUR 27. MAÍ 2010 17
Sveitarstjórnarkosningar 2010
Bolungarvíkurkaupstaður
KJÖRFUNDUR
Kjörfundur vegna sveitarstjórnarkosninga þann 29. maí 2010, verður
haldinn í fundarsal Ráðhúss Bolungarvíkur, Aðalstræti 12.
Kjörfundur hefst kl. 10:00 árdegis og stendur til kl. 22:00 síðdegis.
Kjörstjórn vekur athygli kjósenda á 55. gr. laga um kosningu til sveit-
arstjórna, en þar segir:
„Kjósandi skal gera kjörstjórn grein fyrir sér á kjörstað með því að
framvísa kennivottorði eða nafnskírteini eða á annan fullnægjandi
hátt að mati kjörstjórnar. Ef hann þannig á rétt á að greiða atkvæði
samkvæmt kjörskránni, afhendir fulltrúi í kjörstjórn honum einn
kjörseðil.“ (L. 5/1998, 55.gr)
Bolungarvík 20. maí 2010
Yfirkjörstjórn í Bolungarvíkurkaupstað,
Sólrún Geirsdóttir,
Ingibjörg Vagnsdóttir,
Pálína Jóhannsdóttir.
Ert þú sú / sá rétti?
Verslun í fullum rekstri í miðbæ Ísafjarðar leit-
ar eftir nýjum eiganda / eigendum. Verslað er
með vandaðan fatnað fyrir breiðan aldurshóp
og bæði kynin.
Spennandi vinna fyrir duglegt og skapandi
fólk.
Áhugasamir hafi samband við BB Endurskoð-
un í síma 456 2200 eða á e-mail bbe@bbe.is.
veita sérhæfðari þjónustu en hætt
er við að sameining leiði til þess
að það dragi úr fjölbreytni at-
vinnulífs í smærri samfélögun-
um. „Tryggja þyrfti fjölbreytni
atvinnulífs í þessum samfélögum
ef til sameiningar kæmi. Vinna
starfshópanna hefur skilað ábend-
ingum til sveitarstjórnanna um
að auka megi samvinnu á milli
sveitarfélaganna s.s. í félagsþjón-
ustu, skipulagsmálum og almenn-
ingssamgöngum,“ segir í skýrsl-
unni.
Hundraðdaganefnd, sem skip-
uð var fulltrúum meirihluta og
minni-hluta sveitarstjórna sveit-
arfélaga á norðanverðum Vest-
fjörðum, Bolungarvíkurkaup-
staðar, Ísafjarðarbæjar og Súða-
víkurhrepps, fól Melland Partn-
ers að leiða vinnu við skoðun á
kostum þess og göllum að sam-
eina sveitarfélögin í eitt.
Vinna við verkefnið hófst í
Sameining sveitarfélaganna á
norðanverðum Vestfjörðum myndi
leiða til hagræðingar í rekstri sem
nemur 24 milljónum króna á ári,
samkvæmt niðurstöðum Hundr-
að daga nefndarinnar svokölluðu.
Hins vegar myndu úthlutunar-
reglur Jöfnunarsjóðs sveitarfé-
laga hafa áhrif á fjárhagslega nið-
urstöðu og að óbreyttu myndi
það lækka árlegan ábata samein-
ingar sveitarfélaganna um 30
milljónir. Þetta kemur fram í ný-
útgefinni skýrslu nefndarinnar
sem skipuð var um könnun á sam-
einingu Bolungarvíkurkaupstað-
ar, Ísafjarðarbæjar og Súðavík-
urhrepps en þar segir að niður-
staða um sameiningu sveitarfé-
laga sé ekki einhlít.
Í skýrslunni eru útlistaðir kostir
og gallar við sameiningu. Til að
mynda segir að sameinað sveit-
arfélag verði öflugri stjórnsýslu-
eining og hefur forsendur til að
nóvember 2009. Nefndin hóf sín
störf 12. október og var við það
miðað að starfið tæki um hundrað
daga. Í desember tók 100 daga-
nefndin ákvörðun um að miðað
skyldi við bráðabirgðaniður-
stöður ársreikninga sveitarfélag-
anna í fjárhagslegu mati á stöðu
sveitarfélaganna og fjárhagsáætl-
anir fyrir árið 2010. Fljótlega
kom í ljós að of mikil óvissa var
um túlkun bráðabirgða-niður-
staðna fyrir árið 2009 og var þá
ákveðið að bíða þar til drög að
ársreikningum sveitarfélaganna
lægju fyrir. Slík drög lágu fyrir
um niðurstöður ársreikninga allra
sveitarfélaganna þann 10. maí.
Ekki einhlít niðurstaða um sameiningu
Áminning sýslumannsins á Ísa-
firði til starfsmanns felld úr gildi
Héraðsdómur Vestfjarða hefur
fellt úr gildi áminningu sem sýslu-
maðurinn á Ísafirði veitti starfs-
manni sínum þar sem talið var að
sýslumaður hefði ekki gætt að
meðalhófsreglu stjórnsýslulaga
áður en áminningin var veitt.
Auk þess sem áminningin var
felld úr gildi var sýslumanni gert að
greiða starfsmanninum 700.000
krónur í málskostnað. Forsaga
málsins var sú að í mars 2009 fór
að bera á veikindum hjá umrædd-
um starfsmanni og þurfti hann af
þeim sökum að leggjast inn á
sjúkrahús og var ekki við vinnu
frá 24. apríl til 29. maí 2009.
Tveimur dögum síðar fór starfs-
maðurinn í sumarleyfi og kom
að því leyfi loknu til starfa 1.
júlí. Í byrjun júlí s.l. var hún boð-
uð á fund sýslumanns sem afhenti
henni bréf þar sem fram kom að
sýslumaður ráðgerði að áminna
hana „... fyrir óhlýðni við fyrir-
mælum yfirmanns, óvandvirkni
í starfi og fyrir að sýna ekki full-
nægjandi árangur í starfi.“
Lögmaður starfsmannsins sendi
í kjölfarið sýslumanni bréf þar
sem skorað var á hann að falla
frá öllum áformum um áminn-
ingu þar sem ráðagerð sýslu-
manns styddist ekki við nokkur
efnisleg rök, auk þess sem ekki
yrði séð að málsmeðferð hans
samræmdist góðum stjórnsýslu-
háttum eða meginreglum stjórn-
sýslulaga. Sýslumaður ákvað
engu að síður að áminna starfs-
manninn 15. júlí 2009. Lögmað-
ur starfsmannsins sendi sýslu-
manni annað bréf þar sem sjónar-
mið starfsmannsins voru ítrekuð
og skorað var á sýslumann að
afturkalla áminninguna og ekki
mars og apríl 2009 og til þess ber
m.a. að líta við úrlausn málsins.
Dómurinn telur að varðandi af-
greiðslu eins máls hafi starfs-
maðurinn ekki sinnti nægjanlega
starfsskyldum sínum og í þremur
málum hafi skort á að gögn mál-
anna bæru það með sér hver staða
þeirra væri. Þá lá það fyrir að
starfsmaðurinn viðurkenndi ákveð-
in mistök af sinni hálfu varðandi
afgreiðslu tveggja mála. Í öðrum
tilvikum þóttu aðfinnslur sýslu-
manns í garð starfsmannsins svo
smávægilegar að dómurinn taldi
þarflaust fyrir úrlsuan málsins
að fjalla sérstaklega um þau.
Dómurinn telur að ekki fram
hjá því litið að áminning sé
íþyngjandi stjórnvaldsákvörðun
sem leitt getur til starfsmissis,
svo sem sýslumaður gerði starfs-
manninum grein fyrir í bréfum
sínum til hennar 1. og 15. júlí
2009. Ekki séð að sýslumaður
hafi, áður en hann veitti starfs-
manninum áminningu aðhafst
nokkuð það sem með réttu verður
talin tilraun til að fá hana til að
taka sig á í starfi og laga vinnu-
brögð sín að kröfum sýslumanns.
Að því athuguðu, og að virtu
eðli þeirra mannlegu mistaka
starfsmannsins sem áður var
getið, taldi dómurinn að sýslu-
maður hefði brotið gegn meðal-
hófsreglu 12. gr. stjórnsýslulaga
nr. 37/1993 með því að áminna
starfsmanninn án þess að grípa
áður til annarra og vægari úrræða.
Var því fallist á kröfu starfs-
mannsins um að áminningin
verði felld úr gildi og sýslumanni
gert að greiða starfsmanninum
700.000.- krónur í málskostnað.
– thelma@bb.is
var orðið við því. Því var ákveðið
að höfða mál fyrir héraðsdómi í
þeim tilgangi að fá áminninguna
fellda úr gildi.
Í niðurstöðum dómsins kemur
fram að framlögð læknisvottorð
starfsmannsins skjóti styrkum
stoðum undir þann málatilbúnað
starfsmannsins að starfsþrek hans
hafi að nokkru leyti verið skert í
Sýslumannsembættið
á Ísafirði er til húsa
í Stjórnsýsluhúsinu.