Bæjarins besta


Bæjarins besta - 27.01.2011, Blaðsíða 9

Bæjarins besta - 27.01.2011, Blaðsíða 9
FIMMTUDAGUR 27. JANÚAR 2011 9 Vilja hafa í höllinni Eins og þeir vita sem ráðist hafa í það snúna verkefni að gera upp gömul hús getur vinnan reynst afar krefjandi á köflum, og Simbahöllin var þar engin undantekning. „Þetta var oft erf- itt, líka af því að hann hefur reynt að gera allt sjálfur. Til að byrja með var líka erfitt að þurfa að panta efni á íslensku, og finna út hvar hann gæti fengið það. Þetta var svolítið ævintýri,“ segir hún og brosir. „Það er hins vegar mjög gaman eftir á að hafa gert svona mikið sjálfur. Það var líka kostur að þetta tæki langan tíma. Með því að búa í húsinu á meðan áttaði maður sig betur á því hvernig hlutirnir ættu að vera. Það kemur til manns smám saman, eftir því sem maður kynnist húsinu bet- ur,“ bendir hún á. „Húsið er líka svo gamalt og fallegt. Það má ekki flýta sér of mikið og rífa allt út, heldur verður að hugsa vel um allt, finna út hvað sé best að setja á gólfin til að halda gamla stílnum og slíkt,“ bætir hún við. Alltaf bakað mikið Eins og áður sagði var það ekki upphafleg áætlun þeirra Janne og Wouters að opna kaffi- hús í húsnæðinu. „Við hugsuðum hins vegar frá byrjun að ef við ætluðum að búa hérna á Þingeyri þá væri gaman að búa til einhvern stað þar sem fólk gæti komið saman. Ég held að hugmyndin um að opna kaffihús hafi kviknað svona ári eftir að við keyptum húsið, út frá gömlu búðarinnrétt- ingunum, til dæmis. Þá fórum við að hugsa um að þetta gæti hentað vel sem kaffihús,“ útskýr- ir Janne. Frá opnun Simbahallarinnar sumarið 2009 hafa enda fjöl- margir lagt leið sína á kaffihúsið, þar sem Janne framreiðir ýmsar kræsingar. Hún segist þó ekki hafa haft mikla reynslu af kaffihúsa- rekstri eða eldamennsku áður en Simbahöllin opnaði. „Ég hef enga „professional“ reynslu, en mér hefur alltaf fundist gaman að baka og gert mikið af því, með ömmu minni til dæmis,“ segir hún brosandi. „Svo æxlaðist þetta einhvern veginn svona.“ Stolt kaffihússins er belgíska vöfflujárnið sem á heiðurssess á afgreiðsluborðinu. Þaðan berast gestum ilmandi hefðbundnar vöfflur að hætti Belga, en Janne leitar sömuleiðis í íslenska nátt- úru að hráefni í kræsingarnar. Rabarbarasulta Simbahallarinnar hefur til dæmis gert mikla lukku, en hana gerir Janne úr rabarbara úr fjallshlíðum Dýrafjarðar. Hún er þó frábrugðin þeirri hefð- bundnu íslensku að því leyti að hún er soðin mun styttra og er fyrir vikið bæði öðruvísi á litinn og bragðið. Bláberjapæ, heima- bakað brauð og súpur Janne hafa ekki síður mælst vel fyrir hjá gestunum. Í framtíðinni hyggjast þau Wouter svo bæta enn við matar- framboðið og í sumar verður til að mynda boðið upp á lamb í kjallara Simbahallarinnar. Viðtökur vonum framar Janne segir það mikinn kost við íslenskt samfélag að auðvelt sé að hrinda hugmyndum í fram- kvæmd. „Það er svo auðvelt að byrja á einhverju svona, sem okk- ur finnst svo gaman. Í bæði Dan- mörku og Belgíu er erfitt að gera upp gamalt hús og stofna kaffi- hús, en hér gerist það bara einn, tveir og þrír,“ segir hún. Hún segir reksturinn hafa gengið afar vel bæði sumrin. „Eiginlega betur en við bjugg- umst við. Við héldum kannski að það væri helst fólk hér, á Þing- eyri og Ísafirði sem vissi af okkur, en það kemur líka fólk frá Reyk- javík og alls staðar að sem hefur heyrt um okkur. Það kom okkur algjörlega á óvart,“ segir hún. Vilja hafa líf í höllinni Þó að Simbahöllin sé lokuð yfir veturinn eru þar þó ýmsar uppákomur. Janne hefur haft opið alla sunnudaga á aðventunni og hyggur sömuleiðis á opnun í kringum páskana, áður en Simba- höllin opnar svo aftur á venju- legum tíma næsta sumar. „Kvenfélagið hefur komið til mín í súpu og svona, og núna bráðlega kemur til mín hópur í danskt smørrebrød. Ég ætla að vera með meira slíkt á næsta ári. Ég hef ekkert auglýst það núna, þau höfðu bara samband við mig og spurðust fyrir. Það er líka eitthvað sem við erum alltaf opin fyrir – hópar geta haft samband við okkur og fengið að koma í mat, smørrebrød eða hvað sem þeim hentar. Svo fremi sem við séum á staðnum er það lítið mál,“ segir Janne. „Við erum mest hérna, en við höfum líka farið svolítið út. Það er gaman að breyta til og gera eitthvað annað,“ bætir hún við. Þau hafa sömuleiðis hýst ýmsar uppákomur í höllinni, svo sem tónleika og uppistand, og reyna að hafa tvær listsýningar á hverju sumri. „Okkur langar að hafa líf í húsinu, en það getur hins vegar verið svolítið erfitt að finna fólk í það. Í sumar var svolítið um það að fólk hefði samband að fyrra bragði og vildi fá að gera eitthvað hjá okkur, sem okkur finnst mjög gaman. Það má mjög gjarnan hafa samband við okkur, við erum alltaf að leita að ein- hverju skemmtilegu, en vitum kannski ekki alltaf hvar við eig- um að byrja,“ segir hún og brosir. – Sunna Dís Másdóttir.

x

Bæjarins besta

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.