Bæjarins besta - 27.01.2011, Síða 10
10 FIMMTUDAGUR 27. JANÚAR 2011
„Flestir fara ekki fyrr en í fulla hnefana“
Fimm fyrirtæki hafa sýnt áhuga
á starfsemi á Flateyri. Í Morg-
unblaðinu segir frá því að Frið-
björn E. Garðarsson, skipta-
stjóri þrotabús Eyrarodda, sé
að fara yfir stöðu fyrirtækisins
og ræða við stærstu kröfuhafa
um næstu skref. Eyraroddi á
óveiddar einhverjar veiðiheim-
ildir. Skiptastjóri hefur haft
samband við Jón Magnússon
skipstjóra á Stjána Ebba, bát Eyr-
arodda og áhöfnin hefur lýst sig
reiðubúna til að veiða heimild-
irnar, þegar gefur á sjó.
„Fólki er brugðið, mörgu hverju,
það veit enginn hvað tekur við,“
segir Jón í samtali við Morgun-
blaðið. Hann segir mikið óvissu-
ástand hafa ríkt í atvinnumálum
staðarins frá því Eyraroddi sótti
um heimild til greiðslustöðvunar.
Nú sé loksins vitað hvernig það
mál endaði og áfram verði að
bíða til að sjá hvað taki við. „Ég
vona að okkur verði gefið tæki-
færi til að bjarga okkur. Hér vilj-
um við vera. En það verður þá að
vera einhver grundvöllur til
þess,“ segir hann.
Að sögn Jóns hefur eitthvað af
fyrrverandi starfsfólki Eyrarodda
sem sagt var upp störfum í lok
nóvember flutt í burtu. Það er
einkum fólk sem ekki átti þar
eignir eða fjölskyldu. „Flestir
ætla ekki að fara fyrr en í fulla
hnefana. Þeir eiga rætur hér og
eignir og líður vel,“ segir Jón.
Guðmundur Björgvinsson,
formaður Íbúasamtaka Flateyrar,
segir að fólk geri sér grein fyrir
því að ekki sé auðvelt að koma
rekstri aftur af stað. „Hér eru
vinnufúsar hendur sem vilja
hjálpa þjóðinni út úr erfiðleik-
unum. Við höfum aldrei verið
að biðja um ölmusu, heldur
höldum fram rétti okkar til að
sækja sjóinn,“ segir Guðmund-
ur. Fimm fyrirtæki hafa sett
sig í samband við forsvarsmenn
Ísafjarðarbæjar og lýst áhuga á
að koma að uppbyggingu út-
gerðar og fiskvinnslu á staðnum.
Mannabreytingar standa yfir
hjá afurðastöðvum MS í Búðar-
dal og á Ísafirði. Sævar Hjalta-
son, sem gegnt hefur starfið
mjólkurbússtjóra stöðvanna um
fjögurra ára skeið, lætur af störf-
um um næstu mánaðarmót. Lúð-
vík Hermannsson, sem stýrt hef-
ur ostapökkun MS í Reykjavík,
tekur við starfi Sævars en undir
hann bætist einnig afurðarstöð
MS á Egilsstöðum. Þá er gert ráð
fyrir að sú rannsóknavinna sem
unnin hefur verið í Búðardal
verði framvegis alfarið sinnt frá
Reykjavík.
Halldór G. Guðlaugsson, fram-
leiðslustjóri MS á Ísafirði, hefur
einnig ákveðið að hætta störfum
á Ísafirði. Hann mun þó áfram
starfa fyrir MS sem framleiðslu-
stjóri félagsins á Egilsstöðum.
Að sögn Einars Sigurðssonar for-
stjóra MS, mun Lúðvík fyrst um
sinna starfi framleiðslustjóra á
Ísafirði auk þess að hafa umsjón
með daglegum rekstri afurða-
stöðvanna þriggja. Markmiðið
með breytingunum er að sögn
Einars að lækka heildar rekstrar-
kostnað félagsins. „Þessar breyt-
ingar eru einn hluti af endur-
skipulagningu á framleiðslu fé-
lagsins sem hefur það að mark-
miði að nýta betur framleiðslu-
þætti og tryggja samnýtingu
vinnslustöðva og ná þannig niður
kostnaði við vinnslu á hverjum
mjólkurlítra,“ segir Einar.
MS rekur nú sex vinnslustöðv-
ar. Í Reykjavík er unnið úr 29
milljónum lítra af mjólk árlega,
á Selfossi og Akureyri úr 35 millj-
ónum lítra í hvorri stöð. Í minni
vinnslustöðvunum á Egilsstöð-
um, í Búðardal og á Ísafirði er
unnið úr 12 milljónum lítra sam-
tals. – kte@bb.is
Mannabreytingar
hjá MS á Ísafirði
Nýr mjólkurbússtjóri tekur til starfa á Ísafirði.
Aðgerðir vegna stofn-
fjárlána samþykktar
Aðgerðir vegna stofnfjárlána
SpKef hafa verið samþykktar í
stjórn SpKef Sparisjóðs. Fjöl-
margir Vestfirðingar tóku þátt í
stofnfjáraukningu Sparisjóðs
Vestfirðinga áður en hann sam-
einaðist Spkef árið 2008. Við-
skiptin voru kynnt af stjórnend-
um sjóðanna sem örugg fjárfest-
ing og lánuðu sjóðirnir mikið fé
til kaupa á stofnfé. Ári eftir sam-
eininguna, í mars 2009, var SpKef
gjaldþrota og stofnfjáreigendurn-
ir sátu eftir með sárt ennið, en nú
hefur verið ákveðið hvernig skal
meðhöndla þessi lán.
Stofnfjárbréfalán verða færð í
upphaflegan höfuðstól að við-
bættum 3,75% óverðtryggðum
vöxtum frá útgáfudegi og erlend
lán verða færð á upphaflegt gengi
gjaldmiðla, en sömuleiðis með
3,75% vöxtum og þau færð í
íslenskar krónur. Lánin verða
óverðtryggð til allt að 25 ára.
Á heimasíðu SpKef kemur
jafnframt fram að óski lántakend-
ur eftir því að staðgreiða lánin að
lokinni skilmálabreytingu verði
að auki boðið upp á afslátt sem
nemur 10% af heilarstöðu. Þá
verði tekið tillit til allra innborg-
ana á lánin, þar með talinn inn-
greiddur arður árið 2008, sem
nam 20% af heilaruppreiknuðu
stofnfé. – kte@bb.is
Í lok síðasta árs bjuggu 7.120
manns á Vestfjörðum. Hafði
þeim fækkað um 230 manns frá
fyrsta ársfjórðungi. Þetta kemur
fram í nýjum tölum frá Hagstof-
unni. Flestir áttu heima í Ísa-
fjarðarbæ eða 3.800 en íbúum
þar hafði fækkað um 100 manns
frá fyrsta ársfjórðungi. Næst
mesta fækkunin átti sér stað í
Bolungarvík eða um 80 manns
en í lok síðasta árs bjuggu þar
890 manns. Í Reykhólahreppi
bjuggu 280 manns í lok ársins og
hafði þeim fækkað um tíu manns
frá fyrsta ársfjórðungi, í Tálkna-
fjarðarhreppi bjuggu 300 manns
og hafði þeim fjölgað um tíu á
tímabilinu. Íbúum Vesturbyggð-
ar fækkaði um 40 manns og voru
þeir 890 manns í lok árs.
Íbúum Súðavíkurhrepps fækk-
aði um 20 manns og voru þeir
190 talsins í lok árs. Íbúafjöldi
Árneshrepps, Kaldrananeshrepps
og Bæjarhrepps stóð í stað á tíma-
bilinu, í Árneshreppi bjuggu 50
manns, 110 manns í Kaldrana-
neshreppi og 100 manns í Bæj-
arhreppi. Íbúum Strandabyggðar
fækkað um 10 manns og bjuggu
þar 500 manns í lok árs.
Karlar voru í meirihluta Vest-
firðinga eða 3.640 á móti 3.495
konum. Erlendir ríkisborgarar
voru 615 talsins í loks árs og
hafði þeim fækkað um 95 frá
fyrsta ársfjórðungi.
Í lok 4. ársfjórðungs 2010
bjuggu 318.500 manns á Íslandi,
160.000 karlar og 158.500 konur.
Landsmönnum fjölgaði um 280
á ársfjórðungnum. Erlendir ríkis-
borgarar voru 21.200 og á höfuð-
borgarsvæðinu bjuggu 202.400.
Vestfirðingum fækkaði um 230
Flestir áttu heima í Ísafjarðarbæ eða 3.800 en íbúum fækkaði um 100 manns frá fyrsta ársfjórðungi.