Bæjarins besta - 27.01.2011, Qupperneq 16
16 FIMMTUDAGUR 27. JANÚAR 2011
Um 200 manns sátu þorra-
blótið í Bolungarvík sem haldið
var í 66. sinn á laugardag. „Blót-
ið heppnaðist mjög vel þótt allt
hefði reyndar farið úrskeiðis
sem gat það en allt gekk upp á
endanum með góðra manna
hjálp og allt er gott sem endar
vel,“ segir Þóra Hansdóttir, for-
maður þorrablótsnefndar. Með-
al þess sem fór úrskeiðis var að
tveir tónlistarmannanna sem
áttu að spila lentu á sjúkrahúsi
auk leikstjórans en þó vegna
óskyldra orsaka. Þá fór blótið
fram í fyrsta sinn í ný endur-
bættu félagsheimili Bolvíkinga
blótið hafði áður verið haldið
þar frá árinu 1953. „Það er þetta
séríslenska fyrirbæri að gera
hlutina áður en þeir eru tilbún-
ir,“ segir Þóra og hlær en upp
komu rafmagnsbilanir á blót-
inu og þurfti að kalla út tvo raf-
virkja.
„Það var reyndar í viðbygg-
ingunni þannig að við gátum
farið að keyra á skemmtiatriðin
á réttum tíma.“ Þóra segir blót-
ið hafa þrátt fyrir ýmsar uppá-
komur hafa verið mjög skemmti-
legt. „Þegar allir leggjast á eitt
að láta hlutina ganga upp þá
gera þeir það og ég veit ekki
betur en að fólk hafi skemmt
sér mjög vel.“
Efnt er til blóts í Bolungarvík
á fyrsta laugardegi í þorra ár
hvert og bjóða þá bolvískar kon-
ur bónda sínum til slíkrar
skemmtunar. Þorrablótið er
ætlað hjónum, sambýlisfólki,
ekkjum og ekklum í Bolungar-
vík. Öllu var tjaldað til að gera
kvöldið sem veglegast og stigu
skemmtinefndarkonur á stokk
í hinum og þessum hlutverkum.
„Tekið var mið af því sem verið
hefur í deiglunni, t.d. tókum við
fyrir ástandið á heilsugæslunni
okkar og hún kölluð heilsu-
bælið. Þessi mál brenna á okkur
og tekið var á þeim á léttum
nótum,“ segir Þóra.
Blótsgestir mæta í sínu fín-
asta pússi, konur í upphlut eða
peysufötum og karlmenn í há-
tíðarbúningi eða dökkum jakka-
fötum með hálstau, en líklegt
er að vandfundinn sé sá staður
á Íslandi þar sem er jafn hátt
hlutfall íbúa sem eiga þjóðbún-
ing en í Bolungarvík.
Blótsgestir snæddu hefð-
bundinn þorramatur, sem bor-
inn var fram í trogum líkt og
forðum. Meðfylgjandi myndir
voru teknar á þorrablótinu.
– thelma@bb.is
Ævintýralegt og
skemmtilegt blót