Bæjarins besta - 27.01.2011, Side 18
18 FIMMTUDAGUR 27. JANÚAR 2011
Eyraroddi á Flateyri hefði þurft
að lágmarki 15-20 milljónir til
að koma fyrirliggjandi aðgerðar-
áætlun og rekstri af stað. Þetta er
haft eftir Teiti Birni Einarssyni,
stjórnarformanni Eyrarodda í
Morgunblaðinu. Eins og fram
hefur komið samþykkti Héraðs-
dómur Vestfjarða beiðni stjórn-
enda fiskvinnslunnar Eyrarodda
á Flateyri um gjaldþrot.
Í tilkynningu frá Eyrarodda kom
fram að eftir að tilkynnt var um
300 tonna byggðakvóta til Flat-
eyrar í nóvember síðastliðnum,
reyndu forsvarsmenn félagsins
að skjóta styrkari stoðum undir
rekstur félagsins með því að
tengja saman útgerð með kvóta
og fiskvinnsluna á Flateyri en
það án árangurs.
Fyrir lá að 300 tonna byggða-
kvótanum yrði ekki úthlutað fyrir
en í lok febrúar og ekki var hand-
bært nægjanlegt fjármagn til að
halda áfram rekstri fram að þeirri
úthlutun, þrátt fyrir að nauða-
samningur hefði gengið eftir á
grundvelli þeirra rekstrarfor-
senda sem kynntar höfðu verið.
Hefði þurft minnst
15-20 milljónir króna
Héraðsdómur Vestfjarða hefur
úrskurðað Eyrarodda hf. gjald-
þrota eftir að stjórn fyrirtækisins
og umsjónarmaður nauðasamn-
inga félagsins lögð fram beiðni
þess efnis fyrir dómara í síðustu
viku. Undanfarið hefur stjórn
Eyrarodda unnið að fjárhagslegri
endurskipulagninu félagsins í
samvinnu við kröfuhafa þess.
Niðurstaða þeirra viðræðna var
sú að nauðasamningur fyrir fé-
lagið var samþykktur en ekki
tókst að útvega nægt fjármagn til
að halda áfram rekstri og mæta
áföllnum skuldbindingum. Því
var óumflýjanlegt að óska eftir
skiptum.
Í upphafi lá fyrir að rekstur
fiskvinnslu án kvóta yrði mjög
erfiður. Þrátt fyrir það reyndu
forsvarsmenn félagsins að koma
af stað rekstri á Flateyri en því
miður tókst ekki að afla nægs
hráefnis til þess að fiskvinnslan
stæði undir sér. Sá byggðakvóti
sem hafði verið ætlaður Flateyri
á árunum 2007 til 2010 var lítill.
Jafnframt fór svo að mikill dráttur
varð á úthlutun hans, til dæmis
drógst um nærri tvö ár að úthluta
byggðakvóta Flateyrar vegna
fiskveiðiársins 2008/2009.
„Eftir að tilkynnt var um 300
tonna byggðakvóta til Flateyrar
í nóvember síðastliðnum, reyndu
forsvarsmenn félagsins, sam-
hliða fjárhagslegri endurskipu-
lagningu, að skjóta styrkari
stoðum undir rekstur félagsins
með því að tengja saman útgerð
með kvóta og fiskvinnsluna á
Flateyri. Það tókst því miður
ekki. Einnig lá fyrir að 300 tonna
byggðakvótanum yrði ekki út-
hlutað fyrir en í lok febrúar og
ekki var handbært nægjanlegt
fjármagn til að halda áfram
rekstri fram að þeirri úthlutun,
þrátt fyrir að nauðasamningur
hefði gengið eftir á grundvelli
þeirra rekstrarforsenda sem
kynntar höfðu verið.
Til viðbótar þeim sérstaka
vanda sem að fyrirtækinu á
Flateyri steðjaði, bættist við að
erfitt var að efna til samstarfs við
önnur fyrirtæki í sjávarútvegi
vegna þeirrar óvissu sem uppi er
um rekstrarumhverfi greinarinn-
ar.Það eru stjórn Eyrarodda mikil
vonbrigði að ekki hafi tekist að
tryggja áframhaldandi rekstur á
Flateyri,“ segir í tilkynningu frá
fyrirtækinu.
– bb@bb.is
Eyraroddi
gjaldþrota