Bæjarins besta - 27.01.2011, Page 21
FIMMTUDAGUR 27. JANÚAR 2011 21
Hæsta leikskólagjaldið á land-
inu er hjá Ísafjarðarbæ sam-
kvæmt könnun verðlagseftir-
lits ASÍ sem framkvæmd var í
byrjun þessa árs. Hjá Ísafjarð-
arbæ er gjaldið kr. 34.342.- en
lægst gjald fyrir sömu þjónustu
er hjá Reykjavíkurborg, kr.
21.764. Munurinn er því 12.
578 krónur eða 63%. Gjald
fyrir átta tíma vistun með fæði
er mjög misjafnt eftir sveitar-
félögum.
Á landsvísu er sú breyting
áberandi að afslættir hafa víða
verið minnkaðir eða jafnvel af-
lagðir og vekur sérstaka athygli
hveru dýr síðasti klukkutíminn
í 9 tíma vistun er orðinn. Al-
geng hækkun á 9 tíma leik-
skólaplássi er 3-8%. Kópa-
vogur sker sig þó úr þar sem
gjaldið var hækkað um 30%.
Námsmenn, einstæðir foreldr-
ar og aðrir forgangshópar sem
borga lægri leikskólagjöld eru
ekki undanskyldir þessum
hækkunum.
Lægsta mánaðargjald fyrir
forgangshópa í 8 tíma vistun
með fæði er í Reykjavík
12.860 krónur en hæsta mán-
aðargjaldið greiða foreldrar á
Ísafirði eða 25.598 krónur.
Lægsta mánaðargjaldið fyrir
forgangshópa í 9 tíma gæslu
með fæði er í Reykjavík
17.213 krónur en hæsta mán-
aðargjaldið fyrir sömu þjón-
ustu er á Fljótdalshéraði á
32.508 krónur.
– thelma@bb.is
Hæsta leikskólagjald-
ið er hjá ÍsafjarðarbæUnnið að nýrri skóla-
stefnu Ísafjarðarbæjar
Fjöldi manns vann að gerð nýrr-
ar skólastefnu Ísafjarðarbæjar á
tveimur þingum sem efnt var til í
Stjórnsýsluhúsinu á Ísafirði í síð-
ustu viku. Á fimmtudag var þing-
ið opið öllum en sérstaklega voru
boðaðir einstaklingar, stofnanir
og félagasamtök sem hagsmuna
eiga að gæta eða búa yfir þekk-
ingu í skólamálum. „Þingið gekk
virkilega vel og góð vinna var
unnin,“ segir Margrét Halldórs-
dóttir formaður fræðslunefndar
Ísafjarðarbæjar. Á föstudag var
síðan komið að yngri kynslóðinni
að leggja sitt á vogarskálarnar en
þá mættu fulltrúar 2.-10. bekkja
skóla sveitarfélagsins. „Þarna
voru tæplega 30 krakkar og þetta
var virkilega skemmtilegt. Ég var
sjálf í hópi með yngstu nemend-
unum og þeir voru með margar
góðar hugmyndir. Það sem stóð
upp úr hjá þeim var að þeir vilja
að kenndir verði fleiri verk-
greinatímar á viku,“ segir Mar-
grét. Meðal þess sem fram kom
hjá nemendunum var að þeir hafa
áhuga á að læra spænsku og að
áhersla verði lögð á að allir verði
góðir við aðra og hjálpist að.
Fræðslunefnd Ísafjarðarbæjar
samþykkti í haust að hefja heildar
endurskoðun á skólastefnum
sveitarfélagsins og í kjölfarið var
samþykkt að gera eina sameigin-
lega skólastefnu fyrir leik- og
grunnskóla Ísafjarðarbæjar. Skóla-
stefnunni skal vera lokið eigi
síðar en í apríl. Nú verður farið í
að taka saman það sem fram þing-
unum tveimur en það er aðeins
einn þáttur í vinnu við skóla-
stefnuna. „Þetta er viðamikil
vinna enda þarf að fylgja ákveðn-
um lagaramma. M.a. hafa verið
sendir út spurningalistar til for-
eldra og kennara bæði á leik- og
grunnskólastigi auk þess sem
nemendur hafa verið beðnir að
svara nokkrum spurningum.“
Frá barnaþinginu þar sem ýmsar áhugaverðar hugmyndir komu fram.