Bæjarins besta - 24.02.2011, Blaðsíða 6
6 FIMMTUDAGUR 24. FEBRÚAR 2011
Útgefandi: Gúttó ehf., kt. 680501-2620, Sólgötu 9, 400 Ísafjörður, sími 456 4560, fax 456 4564. Ritstjóri: Sigurjón J. Sigurðsson, sími 892
5362, bb@bb.is. Blaðamenn: Thelma Hjaltadóttir, símar 456 4693 og 849 8699, thelma@bb.is. · Kristján Torfi Einarsson, sími 456 4560,
kte@bb.is · Ritstjóri netútgáfu bb.is: Sigurjón J. Sigurðsson. Ljósmyndari: Halldór Sveinbjörnsson, sími 894 6125, halldor@bb.is.
Ábyrgðarmenn: Sigurjón J. Sigurðsson og Halldór Sveinbjörnsson. Lausasöluverð er kr. 400 eintakið með vsk. Veittur er afsláttur
til elli- og örorkulífeyrisþega. Einnig sé greitt með greiðslukorti. Önnur útgáfa: Ferðablaðið Á ferð um Vestfirði. ISSN 1670 - 021X
Spurningin
Getur þú hugsað
þér að breyta bílnum
þínum í metanbíl?
Alls svöruðu 470.
Já sögðu 270 eða 57%
Nei sögðu 200 eða 43%
Netspurningin er birt viku-
lega á bb.is og þar geta
lesendur látið skoðun sína
í ljós. Niðurstöðurnar eru
síðan birtar hér.
Ritstjórnargrein
Sá á kvölina sem á völina
Helgarveðrið
Gengið frá
Klofningi
Ráðgert er að setja um eins
metra þykkt moldar- og
malarlag yfir urðunarsvæðið
við Klofning í Önundarfirði.
Þá verður sáð í allt svæðið,
sem er tæplega einn hektari
að stærð, og með tíð og tíma
verður farið í skógrækt á
svæðinu. Þetta kemur fram í
minnisblaði Jóhanns Birkis
Helgasonar, bæjartækni-
fræðings Ísafjarðarbæjar,
vegna lokunaráætlunar fyrir
svæðið.
Þar kemur fram að kostn-
aður við fyllingu sé áætlaður
4,5 milljónir króna og kostn-
aður við jöfnun og sáningu
er áætlaður 1,5 milljónir.
Heildarkostnaður er því um
6 milljónir króna. Reiknað
er með að verkið taki um
tvo mánuði.
Bæjarráð hafði óskað eftir
upplýsingum um hvað fælist
í ábyrgð vegna bráðameng-
unar. Í minnisblaðinu segir
að samkvæmt reglugerð skuli
rekstraraðili leggja fram full-
nægjandi fjárhagslega trygg-
ingu eða ábyrð fyrir því að
staðið verði við þær skyldur
sem starfsleyfinu fylgir, þar
á meðal um lokunar- og
eftirlitsaðferðir. Ákvæðið
gildi þó ekki um urðunar-
staði fyrir óvirkan úrgang.
Starfsleyfistrygging skal
gilda í 30 ár eftir að urðunar-
stað hafi verið lokað.
Áhugaljósmyndarinn Ágúst G.
Atlason var kjörinn Búrlistamað-
urinn í Ísafjarðarbæ í netkosn-
ingu sem gallerýið Búrið á Ísa-
firði stóð fyrir. Að sögn Lísbetar
Harðadóttur sem stóð fyrir kosn-
ingunni voru um tuttugu lista-
menn tilnefndir og á annað
hundrað tilnefninga bárust. Þá
voru fjórir listamenn sem trónuðu
á toppinum en auk Ágústar voru
það Henna Rikka Nurmi, Kristín
Helgadóttir og Sunna Karen Ein-
arsdóttir. Rétt er að taka fram að
þær eru taldar upp í engri sér-
stakri röð.
Ágúst fékk að launum 101.000
krónur frá Búrinu auk klinks sem
bæjarbúar höfðu látið af hendi
en ekki hefur fram talning á því
hve mikið safnaðist. Þá hefur
hann opnar sýningu í Búrinu og
á ganginum í Edinborgarhúsinu
í tengslum við útnefninguna.
Tilkynnt var um úrslitin við
formlega athöfn við Búrið á laug-
ardag. „Vegna algjörlega ófyrir-
séðra aðstæðna komst ég sjálf
ekki vestur á athöfnina en það
sýnir vel hvað menningarlífið í
sveitarfélaginu er töff að þá tók
fráfarandi bæjarlistamaður Ísa-
fjarðarbæjar og aðrir sjálfboða-
liðar það að sér að halda athöfn-
ina. Þetta var líka ótrúlega flott
hjá þeim,“ segir Lísbet.
Þess má geta að Búrið stendur
fyrir sýningu í Sóltúni á Ísafirði
um páskana þar sem Búrlista-
maðurinn sýnir ljósmyndir ásamt
ásamt fleirum sem tilnefndir voru.
„Það eru bjartir tímar framundan
hjá Búrinu,“ segir Lísbet.
– thelma@bb.is
Ágúst kjörinn listamaður Búrsins
Ágúst G. Atlason, Búrlistamaðurinn í Ísafjarðarbæ.
Konudagurinn árið 2011 verður öðrum konudögum eftirminnilegri
fyrir þær sakir að þann dag ákvað forseti íslenska lýðveldisins, enn
eina ferðina, að staðfesta ekki lög sem Alþingi hafði samþykkt, en
nýta sér í þess stað ákvæði í stjórnarskrá og vísa þeim til þjóðarinnar.
Hér er auðvitað um að ræða Icesave-málið, sem 70% þingmanna höfðu
eftir mikið japl og jaml og fuður og nýjan samning náð samstöðu um.
Í ljósi þessarar auknu samstöðu innan þingheims sýnist mörgum sitt-
hvað um ákvörðun forsetans, þrátt fyrir minni mun á afstöðu þing-
manna til þjóðaratkvæðagreiðslu um málið, sem krafist hafði verið á
þingi og með almennri undirskriftasöfnun. Viðbrögðin við ákvörðun
forsetans staðfesta að enn ríkir bullandi ágreiningur meðal þjóðarinnar
í Icesave-málinu, sem tröllriðið hefur samfélaginu, þjóðinni til ómælds
skaða. Að ákvörðun forsetans tekinni kemst þjóðin ekki hjá því að
segja já eða nei: Já, við eigum að semja, á þeirri forsendu að það sé
siðaðra manna háttur að leysa deilumál með samningum, svo vitnað
sé efnislega til ummæla eins af kunnari fyrri tíma stjórnmálaleiðtogum
þjóðarinnar. Nei, við borgum ekki skuldir óreiðumanna og látum
óhikað skeika að sköpuðu hvað morgundagurinn ber í skauti sínu.
Norrænir víkingar af konungakyni láta ekki kúga sig.
Þjóðaratkvæðagreiðslu ber að efna til svo fljótt sem auðið er. Miss-
erum saman hafa þingmenn farið yfir Icesave-málið með færustu sér-
fræðingum sem völ er á og sem leiddu til lykta samninginn, sem Al-
þingi samþykkti og forsetinn kaus að axla ekki ábyrgð á. Í meðförum
þessara manna hafa öll tiltæk gögn er málið varða verið grannskoðuð.
Þingmenn hafa ekki látið sitt eftir liggja og deilt um málið mánuðum
saman. Nú geta þeir andað léttara. Forsetinn hefur létt af þeim byrðinni.
Sá á kvölina sem á völina. Orð þingmanna um að þjóðin sé illa upp-
lýst í málinu eru sannmæli, sem stangast á við þeirra eigin orð um að
þjóðin sé fullfær um að taka ákvörðun í málinu. Hvernig því fræðslu-
efni, þúsundum blaðsíðna, sem þingmenn hafa haft til lestrar langtím-
um saman, á að koma til skila meðal almennings á örfáum vikum er
vandséð. Raddir eru uppi meðal þingmana að þeir eigi að halda sig til
hlés í aðdraganda kosninganna. Hverjir eiga að halda á kennaraprikinu?
Saminganefndinni? Á að dreifa samingnum, ásamt helstu fylgiskjölum
inn á hvert heimili í landinu? Spurt af hreinskilni: Hafa þingmenn, og
forsetinn, yfir höfuð gert sér grein fyrir með hvaða hætti á að upp-
fræða almenning um þetta flókna milliríkjamál, svo nokkru nemi?
Trúlega þykir öllum vænt um að vera traustins verður. Hvað verður
gert af hálfu hins opinbera til að almenningur fái risið undir þeirri
byrði, sem nú hefur verið sett á herðar hans? Almenningur, sem bera
á endanlega ábyrgð á Icesave-málinu á skýlausa kröfu á að þessari
spurningu verði svarað? – s.h.
Horfur á föstudag:
Sunnan og suðvestanátt,
víða 5-10 m/s en hvessir
síðdegis. Él, en úrkomu-
lítið NA-lands. Frost 1-7
stig en frostlaust við suð-
ur- og austurströndina.
Horfur á laugardag:
Suðvestlæg átt með
éljagangi. Áfram fremur
kalt í veðri. Horfur á
sunnudag: Lítur úr fyrir
suðlæga átt með vætu og
hlýnandi veðri.