Bæjarins besta - 24.02.2011, Blaðsíða 19
FIMMTUDAGUR 24. FEBRÚAR 2011 19
Sælkeri vikunnar e Sigríður Ásgeirsdóttir og Gunnar Sæmundsson á Ísafirði
Heitreyktur svartfugl og grillaður selur
Íbúð óskast í sumar
Blaðamannafélag Íslands vill taka á leigu íbúð
með húsgögnum í allt að þrjá mánuði, júní til
ágúst í sumar. Íbúðin má vera á Ísafirði eða í
nágrannabyggðum.
Áhugasamir eigendur hafi sambad við BÍ á
skrifstofutíma í síma 553 9155 eða með tölvu-
pósti orlofshus@press.is.
„Við ætlum að bjóða upp á
heitreyktan svartfugl, grillaðan
sel og Mömmuís. Við bjóðum
frekar oft upp á heitreyktan
svartfugl á okkar heimili og
hann er alltaf jafn vinsæll bæði
hjá börnum og fullorðnum. Það
er ekkert flókið að búa hann til
því hægt er að kaupa litla reyk-
ofna í veiðibúðum en það er
líka hægt að heitreykja í úti-
grilli með loki. Þó þarf að hafa
nokkuð góðan fyrirvara á þess-
um rétti og nota rétt sag sem
hægt er að fá í veiði- og úti-
vistarbúðum.“
Heitreyktur svartfugl
Takið svartfuglinn og skerið
bringurnar af beininu. Svart-
fuglsbringurnar eru kryddaðar
með salti, pipar og timian eftir
smekk. Látið marinerast í sól-
arhring í kæli. Bringurnar eru
settar í grindina á ofninum og
kveikt undir og slökkt á ofninum
eftir 10-15 mínútur eða þar til
sagið er brunnið. Bringurnar látn-
ar kólna í ofninum og síðan settar
í kæli í að minnsta kosti eina
nótt. Skornar í þunnar sneiðar og
dýft í sósuna.
Piparrótar sósa
1 lítil dolla Gunnars majónes
1 dós sýrður rjómi
1 bréf af piparrót
ca 1 tsk sykur
Selur er eitthvað sem okkur
fannst nánast óhugsandi að borða
fyrir ekki svo löngu síðan, en
eftir að húsbóndinn skaut sel eitt
sumarið var ekki um annað að
ræða en að smakka. Síðan þá
höfum við haldið nokkrar sela-
veislur og flestum líkað mjög
vel. Við höfum haldið okkur við
tilraunina sem við gerðum í fyrsta
skiptið.
Marinerað sela fillé
1 hryggur af ungum sel eða
kóp.
Hreinsið alla fitu af hryggnum
áður en hann er úrbeinaður.
Vöðvinn skorinn í ca 2-3 cm
þykkar steikur.
Annað hvort er hægt að kaupa
tilbúna grillolíu eða búa til sína
eigin marineringu og kjötið látið
liggja í sólahring í marinering-
unni.
Steikurnar grillaðar þannig að
selurinn er rauður inní, ekki
gegnumsteiktur. Medium eða
medium rear.
Gott að bera fram með rjóma-
lagaðri sveppasósu, léttsoðnum
gulrótum og ofnsteiktum kartöfl-
um.
Mömmuís
Þessi ís hefur fylgt fjölskyld-
unni lengi og er alltaf jafn góður.
Einföld og góð uppskrift.
Lítri af rjóma
8-10 egg
200 gr. sykur -(við erum reynd-
ar farin að minnka sykurinn
aðeins)
1-2 tsk vanilludropar
Eggjarauður og sykur þeytt
mjög vel saman, vanilludropar
settir út í. Eggjahvítur þeyttar
sér, mjög stífar. Rjóminn þeytt-
ur sér.
Rjóma og eggjarauðum,
sykri og vanilludropum bland-
að varlega saman, síðan er
hvítan sett varlega út í. Súkku-
laðispæni blandað saman við.
Sett í ísdollur og fryst.
Við ætlum að skora á Hilmar
Pálsson og Guðbjörgu Skarp-
héðinsdóttur á Ísafirði.
Dellusafn í bígerð á Flateyri
Jón Svanberg Hjartarson á
Flateyri hefur hug á að koma á
fót svokölluðu ,,Dellusafni“ á
Flateyri. Hefur hann farið þess á
leit við Ísafjarðarbæ að fá hús-
næðið sem áður geymdi skrif-
stofur Flateryrarhrepps og bóka-
safn, leigt án endurgjalds til
þriggja ára á meðan safninu er
komið á koppinn. Segist hann
hafa til nokkurra ára, haft hug á
því að opna á Flateyri alþjóðlegt
lögregluminjasafn. „Í einkasafni
mínu er til góður grunnur að slíku
safni, s.s. um 120 einkennishúfur
víðs vegar að úr heiminum, um
1000 einkennismerki, nokkrir
búningar, valdbeitingarbúnaður
frá ýmsum tímum s.s. úr „Nató-
óeirðunum“ 1949 og margt fleira.
Þá hefur hugmyndin einnig verið
sú að samhliða þessu yrðu fengn-
ir til láns aðrir safngripir, í einka-
eigu og í eigu opinberra safna.
Þannig yrði safnið „lifandi“ og
síbreytilegt frá ári til árs,“ segir í
bréfi Jóns Svanbergs til bæjar-
yfirvalda.
Hann segir að í viðræðum við
nokkra aðila hafi hugmyndin þró-
ast enn frekar og sé nú á því stigi
að á Flateyri yrði komið á fót
safni margs konar áhugamála eða
„Dellusafni“. „Þar gætu verið áð-
urnefnt lögregluminjasafn, safn
bátalíkana, safnt tengt iðnaðar-
og atvinnusögu Flateyrar sem og
að skapað yrði pláss fyrir hvert
það einkasafn sem teldist sýning-
arhæft, t.d. pennasöfn, merkja-
söfn og hvað eina mætti nefna. Í
Ísafjarðarbæ er fjöldinn allur af
alls kyns einkasöfnum sem sjald-
an eða aldrei koma fyrir almenn-
að víða þarf að leita fanga og
þurfa aðstandendur að leggja
mikla vinnu fram í formi sjálf-
boðavinnu til að þetta geti orðið
að veruleika.“ Jón Svanberg segir
að til að átta sig á því hvort verk-
efni af þessu tagi gangi upp,
þannig að tekjur skapist, þurfi
a.m.k. tveggja til þriggja ára
starfsemi. „Að þeim tíma liðnum
ætti að vera ljóst hvort þetta er
yfirleitt gerlegt í þeirri mynd sem
nú er lagt upp með.“
Bæjarráð vísaði erindinu inn í
aðra vinnslu hvað varðar málefni
Flateyrar.
– thelma@bb.is
þetta ætti að geta orðið til þess
að skapa hér eins og eitt starf yfir
sumartímann, þ.e. á meðan safnið
væri opið. Þá er spurning hvort
unnt væri að skapa starf, t.d. með
aðstoð Vinnumiðlunar við að
undirbúa húsnæði og uppsetn-
ingu safnsins.“
Í bréfinu er jafnframt bent á að
safnið gæti orðið aðdráttarafl
fyrir ferðamenn og gæti jafnvel
átt möguleika til tekjuöflunar
þannig að það geti orðið sjálfbært
hvað varðar launa- og húsnæðis-
kostnað. „Undirritaður hefur
þegar hafið vinnu við að afla
styrkja til verkefnisins en ljóst er
ingssjónir,“ segir í bréfinu.
Jón Svanberg segir hugmynd-
ina hafa kviknað þegar hann fór
að velta fyrir sér hvaða mögu-
leikar gætu verið í boði til að
skapa störf á Flateyri. „Safn sem
Jón Svanberg Hjartarson.