Listin að lifa - 01.10.2001, Síða 5

Listin að lifa - 01.10.2001, Síða 5
í BREIUIUIDEPLI Húsnæðismálin brenna þungt á verulegum hluta þess fólks, sem gefur út þetta blað, nokkuð þyngra en áður, vegna þess að nú er sú breyting orðin á að fleiri lifa lengur og einmitt þess vegna þurfa þeir ekki aðeins að íhuga að eiga fyrir brýnustu nauðsynjum og útförinni, heldur og að ráða við aukinn lyfjakostnað, vaxandi við- hald á húsnæði og e.t.v. að reka bíl. Við þetta bætist beygur af fasteignagjöldunum sem eru ótrúlega há, fara hækkandi og sýna enga miskunn nema því fólki sem hefur tekjur langt undir meðallaunum og þaif að lítillækka sig til að koma á kontórinn með umsókn um lækkun ásamt Ijósriti af skattskýrslu. Reykjavíkurborg hælir sér af því, að afslátturinn sé sjálfvirkur eftir að einu sinni hafi verið sótt um, sem er út af fyrir sig ágætt og betra en víða annars staðar, en erfitt að skilja hvers vegna löglega samþykkt afsláttarþrep geta ekki komið sjálfkrafa til framkvæmda eftir að 67 ára aldri er náð. Ef borgin getur gert afsláttinn sjálfvirkan eftir fyrstu umsókn hljóta næg gögn að vera við hendina í upp- hafi án untsóknar - nema að vilji sé fyrir því að fækka þeim sem afsláttar eiga að njóta. Hér er ekki um flókið ntál að ræða, sem krefst af- greiðslu sérstakrar nefndar. Nútíma tölvubúnaður og kunnáttufólk ræður við að láta þá sem eiga réttinn njóta hans refjalaust. Ég legg mikla áherslu á þetta vegna þess, að enn virðist sú hugsun ríkjandi að umbun hins opinbera til aldraðra sé ölmusa sem eins gott sé að láta finna fyrir. Ætli ráðamenn að sýna vilja í verki geta þeir gert það með því að koma þessu í lag og hækka ofurlítið þrepa- skiptingu afsláttarins. Síðast en ekki síst, að fólkið sem býr við lægsta tekjuþrep fái raunverulega 100% afslátt, en ekki eitthvað talsvert minna. Þetta næst með því að fella niður öll sex fasteignatengdu gjöldin í stað tveggja - fólk í fátæktargildru munar um rninna. Sér á parti er mikið skertur hlutur hjóna og sambúðar- fólks, þar sem makinn er aðeins metinn á 40%. í okkar huga er þetta gróf lítillækkun sem þarf að breyta hið snarasta. Stjómmálamenn! Ef þið viljið að mark sé tekið á yfir- lýsingum ykkar þess efnis að aldraðir eigi að fá að vera sem lengst í íbúðum sínum, þeim og þjóðfélaginu til hagsbóta - fyrir alla muni bætið ráð ykkar og hættið að líta á okkur til trafala öfugu megin á efnahagsreikningi, farið að líta á okkur sem fólk. sAmi/^íiujnfátþi&aiv Njóttu þess að búa á fallegum stað mitt á milli Laugardals og miðbæjar Reykjavikur IAV í öllum íbúóum er dyrasími tengdur myndavél í anddyri og gert er ráð fyrir að hægt sé að tengja Ijósleiðara inn i hverja íbúð. Sameign og lóðir verða fuLlfrágengnar með snjóbræðslu í stétt framan við húsió. Hverfió verður kLárað um mitt ár2002. Hafðu samband við söludeild ÍAV í síma 530 4200 Mánatún 2, 4 og 6 eru gLæsileg 7 hæóa fjöLbýlis- hús meó Lyftu. Húsin eru hönnuó með þaó fyrir augum að alLt viðhaLd verói í lágmarki. Húsin eru einangruó aó utan, kLædd með áli og bárustáLi og gLuggar eru áLkLæddir. Þá er sérstök áhersLa Lögð á góða hljóðeinangrun í húsunum. TiL söLu eru nokkrar 2ja og rúmgóöar 3ja herbergja íbúðir. í ölLum íbúðunum er þvottahús og geymsla auk geymsLu í kjaLlara. Dæmi um 2ja herbergja íbúð

x

Listin að lifa

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Listin að lifa
https://timarit.is/publication/1106

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.