Listin að lifa - 01.10.2001, Síða 42

Listin að lifa - 01.10.2001, Síða 42
Lína.Net býður nú símtöl til útlanda í gegn- um IP-netkerfi sitt a mjog hagkvæmu verði, eða frá kr. 16,50 á mínútuna. Símalína Línu.Nets lækkar símkostnaðinn verulega Lína.Net býður nú alla almenna símaþjónustu yfir IP-net. Þetta er ný tækni sem gefur kost á lægri símgjöldum, auknum sveigjanleika og hagkvæmni í rekstri símkerfa. Þessi þjónustan er veitt í gegnum tengingu við Ijósleiðarakerfi Línu.Nets, sem er mjög fullkomið og uppfyllir kröfur um gæði og öryggi í símtölum. Helsta breytingin við notkun IP-netkerfisins, þegar hringt er til útlanda, er ekki annað en það að símreikningurinn lækkar verulega. Hægt er að hringja úr almennum símum jafnt og farsímum. Það eina sem þarf að gera er að velja 00 á undan landsnúmeri þess lands sem hringt er til. Öruggt samband um IP-netkerfið Lína.Net er með samning við hið virta fyrirtæki KPNQwest í Hollandi um kaup á millilanda- símtölum og notar jafnframt nýjan hátæknibúnað frá Cisco Systems. Þetta tryggir viðskiptavinum gæði og öruggt samband þegar hringt er um allan heim gegn- um Cantat-3 sæstrenginn. Millilandasímtöl á áður óþekktu verðlagi Lína.Net býður talsamband við öll helstu viðskiptalönd íslands á verði frá kr. 16,50 mínútan. Þetta verð gildirtil eftirtalinna landa: Austurríkis, Ástralíu, Bandaríkjanna, Belgíu, Bretlands, Danmerkur, Finnlands, Frakklands, Hollands, Hong Kong, írlands, Ítalíu, Japans, Kanada, Noregs, Spánar, Sviss, Svíþjóðar og Þýskalands. Viðskiptavinir þurfa hvorki að greiða innanlandsgjöld né tengigjöld þegar hringt er til út- landa úr almennum síma. Sjá nánar verð til annarra landa í verðskrá Línu.Nets á heimsíðu fyrirtækisins, www.lina.net. Hafið endilega samband við okkur í síma 595 1200 eða á simalina@lina.net og fræðist nánar um Símalínu Línu.Nets.

x

Listin að lifa

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Listin að lifa
https://timarit.is/publication/1106

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.