Listin að lifa - 01.10.2001, Side 41

Listin að lifa - 01.10.2001, Side 41
sem svo að ekki þýddi að sitja ein heima og horfa út um gluggann. Guðni og Guðrún hittust þetta kvöld - á dansleik í Þorlákshöfn. „Ég hélt ballið," segir Guðni, „og Böðvar kom frá Selfossi með fulla rútu. Reyndar var eina sem ég gerði að gefa gestunum kaffi og kleinur og fá harmonikkuleikara. Ég var búinn að sjá Guðrúnu áður úti á Spáni með manninum sínum. Hún er glæsileg kona og dansar alveg ljómandi vel. Rómantíkin blómstraði þetta kvöld, hún er söm við sig, hvort sem maður er ungur eða gamall.“ Guðni býr áfram einn í einbýlishús- inu sínu í Þorlákshöfn og Guðrún í íbúð sinni á Selfossi. „Okkur fínnst þetta frjálslegra svona. Við fáum þá ekki leiða á hvort öðru - og alltaf sama rómantíkin þegar við erum saman. Við hittumst 2-3svar í viku, alltaf um helgar og dönsum mikið. Förum tölu- vert á böll í Glæsibæ, á Selfossi og austur um allar sveitir. Dansinn er svo geysilega góð hreyfing.“ Guðni og Guðrún eru búin að ferðast ótrúlega mikið saman - verið frjáls eins og fuglinn - eins og Guðni segir. Gæsavatnaleið, Vestfírðir og Austfirðir og ekkert verið að flýta sér. „Við erum alltaf fjögur saman, Böðvar Stefánsson og Aðalheiður Helgadóttir eru góðir vinir. Við íslendingar þurfum ekki að kvarta, landið er svo fallegt og gjöfult. Innanlandsferðir gefa mér fullt eins mikið og ferðalög erlendis,“ segir Guðni, en Ítalía, Spánn, Malasía, Tæland, Dubai, Kúba, Vietnam og Kanaríeyjar hafa verið á ferðalistanum hjá þeim Guðrúnu. „Fátæktin var mest áberandi í Vietnam, en ríkidæmið hjá olíufurst- unum í Dubai alveg yfírgengilegt.“ Ferðalögin hafa gengið vel, nema ferð- in til Kanaríeyja. Þar fékk Guðni eitr- un í ristilinn og fárveikist. „Ég var settur í 5 daga gjörgæslu og lá í hálfan mánuð á spítala. Þá var gott að eiga góðan ferðafélaga, mikið hugsaði hún Guðrún vel um mig. Heimkoman var líka erfið, Hekla að gjósa og blindbyl- ur. Við sátum föst í Þrengslunum alla nóttina, bæði blaut og köld, þegar við komumst loks í húsaskjól í Reykjavík. Það reyndi mikið á mann að koma heim úr 28 stiga hita í þessi ósköp.“ Guðni lætur svona erfiðleika ekki á sig fá. Frelsið til ferðalaga er honum svo mikils virði. Hann er mjög meðvit- aður um að þjálfa líkamann og varð- veita heilsuna eins og kostur er. „Við Helga ferðuðumst líka þegar við áttum frí, en á þeim árum var ekk- ert nema vinna og sumarfríin alltof stutt, þrjár vikur upp í mánuð. Á þremur vikum gerði maður lítið annað en dytta að húsinu og fara í reiðtúra. Hér var öflugt hestamannafélag, sem ég var formaður fyrir í 6 ár. Þá voru um 130 manns í félaginu, nú aðeins 40 manns. Ég átti mest 3 hesta, en missti þann síðasta fyrir 12 árum.“ Guðni vann til sjós og lands á fyrri árum og var lengi vélstjóri. Loka- punktur á starfsferlinum var akstur hjá Olíufélaginu Esso í 18 ár. Guðni tók þátt í uppbyggingu Þorlákshafnar, seg- ir mannlífið hafa gjörbreyst á hálfri öld og ekki endilega til batnaðar. „Fyrst var fólk hér eins og ein fjölskylda. All- ir komnir til að hjálpa þegar fólk var að byggja sér hús. Menn voru svo sam- hentir og báru hag þorpsins fyrir brjósti. Kannski var söngæfíng í mötu- neytinu og einhver sagði: „Nú þarf að hreinsa þorpið!" Allir fóru út. Nú segja menn: „Helvítis hreppur- inn getur gert þettal" Þetta er orðið gjörbreytt líf og hugsunarhátturinn eftir því. Áður fóru allir af stað, þegar stungið var upp á dansleik. Nú potast hver í sínu horni. Sjónvarpið hefur eyðilagt mannlífið og spillt kunningja- hópnum. Svo er þetta „video“ og alls konar umrót í kringum það.“ Guðni segir mikið gert fyrir eldra fólk á Þorlákshöfn, góð sundlaug og líkamsræktarstöð. „Ég lærði ekki að synda fyrr en ég var kominn á sjötugs- aldur og fór á sundnámskeið fyrir eldra fólk. Nú fer ég í sund á hverjum einasta degi og þjálfa mig í tækjasaln- um. Jafnaldrar mínir nota þetta alls ekki nógu rnikið." Skilaboð Guðna til jafnaldranna eru: Þjálfið líkamann! Ekki sitja og bíða eftir einhverju sem aldrei kemur. Notið tímann til að ferðast! Ef þið eruð einmana, leitið þá eftir félagsskap. Góður vinur og ferða- félagi gefur óendanlega mikið. Frá leikfélag- inu Snúði og Snældu Hin árlegu upplestrar- og framsagnarnámskeið félagsins hefj- ast 27. september n.k. Verða þau með svipuðu sniði og áður. Leiðbeinandi verður Bjarni Ingvarsson. Þeir sem hafa hug á að taka þátt í námskeiðunum eru beðnir um að hafa samband við skrifstofu FEB í síma 588 2111 varð- andi innritun. Þar sem þörf er á fleiri félögum til starfa hjá Snúði og Snældu bjóðum við nýjum félögum að koma til liðs við okkur bæði til þess að taka þátt í leiksýningum og til að sinna öðr- um störfum í sambandi við leikstarfsemi. Allir félagar í FEB eru velkomnir. Þeir sem hafa áhuga vinsamlegast hafi samband við skrif- stofu FEB. Stjórn leikfélags Snúðs og Snældu 41

x

Listin að lifa

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Listin að lifa
https://timarit.is/publication/1106

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.