Bæjarins besta


Bæjarins besta - 23.01.2014, Blaðsíða 4

Bæjarins besta - 23.01.2014, Blaðsíða 4
4 FIMMTUDAGUR 23. JANÚAR 2014 Útgefandi: Gúttó ehf., kt. 680501-2620 Afgreiðsla og ritstjórn: Silfurgötu 1, Ísafirði, sími 456 4560 Ritstjóri BB og bb.is: Sigurjón J. Sigurðsson, 892 5362, bb@bb.is Ábyrgðarmenn: Halldór Sveinbjörnsson, Sigurjón J. Sigurðsson. Blaðamenn: Harpa Oddbjörnsdóttir, 846 7487, harpa@bb.is Smári Karlsson, 866-7604, smari@bb.is Auglýsingar: Halldór Sveinbjörnsson, 894 6125, halldor@bb.is Prentvinnsla: Litróf ehf. Upplag: 2.200 eintök Dreifing: Íslandspóstur. Dreift án endurgjalds inn á öll heimili á norðanverðum Vestfjörðum Stafræn útgáfa: www.bb.is / facebook.com/pages/bbis Önnur útgáfa: Á ferð um Vestfirði ISSN 1670-021X Tekið er á móti auglýsingum á póstfangið bb@bb.is. Auglýsingar þurfa að berast fyrir kl. 17 á mánudögum fyrir útgáfudag sem er almennt á fimmtudögum. Ritstjórnargrein Valdníðsla Spurning vikunnar Hyggst þú flytja á milli landshluta á næstu mánuðum? Netspurningin er birt vikulega á bb.is og þar geta lesendur látið skoðun sína í ljós. Niðurstöðurnar eru síðan birtar hér. Alls svöruðu 539 Já sögðu 87 eða 16% Nei sögðu 404 eða 75% Óvíst sögðu 48 eða 9% Góður gangur var í landvinnslu Hraðfrystihússins - Gunnvarar á síðasta ári. Að sögn Kristjáns G. Jóakimssonar, vinnslustjóra HG, féll vinnsla sárasjaldan niður vegna hráefnisskorts. Kristján segir það byggja á traustri hráefnisöflun skipa fyrirtækisins. HG gerir út tvo ísfisktogara, Pál Pálsson og Stefni og öfluðu þeir samanlagt rúm átta þúsund tonn á síðasta ári. HG er með vinnslur í Hnífsdal og Súðavík og jókst móttekinn afli um 7% milli ára og er það í samræmi við aukinn þorskkvóta. Áður hefur komið fram að þrátt fyrir aukinn afla á síðasta ári dróst aflaverðmæti skipanna saman frá 2012. Eru það svipaðar fréttir og berast frá öðrum fyrirtækjum í bolfiskvinnslu. Kristján segir að markaðsaðstæður hafi verið krefjandi 2012 og sífellt þurfi að laga framleiðslumynstur að breyt- ingum á mörkuðum. „Með góðu og samhentu starfsfólki teljum við að tiltölulega vel hafi tekist til á síðasta ári og því gerður daga- munur með að bjóða upp á bakk- esli með kaffinu sl. föstudag.“ Mikill afli en krefjandi markaðir Bygging fjölbýlishúss við Sindra- götu á Ísafirði er í biðstöðu að sögn Guðmundar Tryggva Ás- bergs-sonar athafnamanns. Hann segir að Þroskahjálp hafi lýst yfir áhuga á að kaupa íbúðir í húsinu fyrir fatlaða en segir þau mál vera í ferli hjá Þroskahjálp og op- inberum aðilum. „Byggingin er í frosti eins og stendur. Hryggjarstykkið í framkvæmd- inni átti að vera að selja sex íbúðir til opinberra aðila en ég er lítið inni í ferlinu að svo stöddu og kem ekki nálægt samningavið- ræðum þeirra.“ Hann segist hafa orðið var við mikinn áhuga á íbúðunum en segir nauðsynlegt að selja nokkrar íbúðir fyrirfram eigi fjármögnun að takast. Guðmudur fékk á síðasta ári úthlutað lóð að Sindragötu 4b á Ísafirði sem stendur gegnt hús- næði 3X Technology, á milli sölu- turnsins Krílisins og gamla hús- næði Mjólkursamlags Ísfirðinga. – smari@bb.is Bygging fjölbýlishúss í frosti Finnbogi Sveinbjörnsson, for- maður Verkalýðsfélags Vestfirð- inga, beindi í nóvember á síðasta ári þeim tilmælum til sveitar- stjórnarmanna á Vestfjörðum að halda aftur af gjaldskrárhækk- unum sveitarfélaganna. Í pisti á vefsíðu VerkVest kemur fram að samkvæmt upplýsingum frá íbúa á Hlíf, íbúðum aldraðra á Ísafirði, hafi fæðisgjald fyrir aldraða hækkað úr kr. 23.635.- í október 2012 í kr. 28.080.- frá 1. janúar síðastliðinn, eða um 15,8%. Slíkt skýtur mjög skökku við þar sem heimsmarkaðsverð á hrávöru lækkaði mjög mikið á síðari hluta árs 2013 ásamt nokkurri styrk- ingu krónunnar. Hvort það eru birgjar sem halda vöruverði áfram alltof háu skal ósagt látið. Einnig vildi sami einstaklingur upplýsa að gjald fyrir þrif hafi hækkað úr réttum 11.000 krónum í desember 2013 upp í kr.13.733 frá 1. janúar 2014 sem er um 20% hækkun. Ekki hefðu laun starfsfólks við þrif hækkað né væri verið að þrífa meira en fyrir hækkun.“ Í pistlinum kemur fram að mörg sveitarfélög á Vestfjörð- um hafi orðið við tilmælum for- mannsins og haldið aftur af hækkunum sumra gjaldskrárliða til almennings. En á sama tíma hafa önnur sveitarfélög boðað al- mennar gjaldskrárhækkanir frá 2,5% til 5% um síðustu áramót. VerkVest gerði stutta könnun á því hvernig gjaldskrár til almenn- ings hjá sveitarfélögum á Vest- fjörðum breyttust um áramót. „Hjá Ísafjarðarbæ var fallið frá 4% hækkun á félags- og fræðslu- mál og var þar horft sérstaklega til máltíða í grunn- og leikskól- um. Hjá Súðavíkurhreppi hækk- uðu skólamáltíðir og gjald í auka- dagvistun um 5%. Hjá Stranda- byggð og Reykhólahreppi hækk- uðu allir gjaldskrárliðir sem nem- ur vísitöluhækkun eða um 3,7%. Hjá Kaldrananeshreppi fengust þær upplýsingar að hitaveita og sorpgjöld hefðu hækkað um 5% en leikskólamáltíðir myndu ekki hækka. Í Vesturbyggð var til- kynnt að leikskólagjöld, matar- gjald á leikskóla og skólamáltíðir myndu hælkka um 2,5%. Gjald- skrá í tónlistarskóla var lækkuð ásamt því að sveitarfélagið myndi áfram veita rílegan afslátt af gjald- skrám til barnafjölskyldna í sveitarfélaginu. Bolungavíkur- kaupstaður samþykkti að falla frá fyrirhugaðri 3% gjaldkrár- hækkun til almennings og hjá Tálknafjarðarhreppi fengust þær upplýsingar að ekki væru fyrir- hugaðar hækkanir á gjaldskrám til almennings.“ – harpa@bb.is Fæðisgjald á Hlíf hækkaði um 15,8% Hlíf, íbúðir aldraðra á Ísafirði. Embættismannavaldið í Reykjavík sýndi klærnar og lokaði starfsstöð Fiskistofu á Ísafirði fyrirvaralaust. Kjaftshögg, sem kom á óvart þrátt fyrir að sýnilega hafði dregið í loftið. Hrokinn sem Vestfirðingum er sýndur opinberast enn betur í viðbrögðum fiskistofustjórans, ummælum um að ótímabært sé að tala um lokun starfsstöðvarinnar, þótt stöðin verði mann- laus! Þeim fjölgar greinilega ört teygjanlegu hugtökunum! Dr. Þorleifur Ágústsson, deildarstjóri starfsstöðvarinnar, sem halda mun til starfa í Stavanger í Noregi, segir þetta enn eitt höggið fyrir lands- byggðina og sýni að enginn vilji sé hjá stjórnvöldum til að byggja upp öflugar stofnanir á landsbyggðinni. Eigi þær að virka þurfi þær að þróast og stækka sem sjálfstæðar einingar, sem hafi önnur og meiri verkefni en að taka við skipunum að sunnan, en slíkar stofnanir séu auðveld bráð fyrir embættismenn og pólitíkusa að leggja niður. (Þegar ólundin í garð lands- byggðarinnar nær tökum á þeim.) Ákvörðun fiskistofustjóra sætir undrun. Ekki síst í ljósi þess að í maí í fyrra fékk stöðin á Ísafirði nýtt hlutverk; tveir sérfræðingar í fiskeldi ráðnir og ætlunin að þar færi fram öll fiskeldis- starfssemi Fiskistofu. Þessi áform virðast nú fokin út í veður og vind. Í ályktun um þetta mál hvetur bæjarstjórnar Ísafjarðarbæjar ríkisstjórn og Alþingi til að standa vörð um starfsstöðvar og störf sem stjórnvöld hafa þegar ákveðið að byggja skuli upp á Vestfjörðum. Síðan segir.: ,,Einhverra hluta vegna virðist fjara undan slíkum starfsstöðvum þegar frá líður, jafn- vel óháð vilja stjórnvalda.“ Það var og, jafnvel óháð vilja stjórnvalda! Hverra er þá valdið og viljinn! Undirsáta stjórnmálamanna og ráðherra? ,,Lokun starfsstöðvarinnar var alfarið mín ákvörðun og ráðherra kom þar hvergi nærri.“ Sá sem svo digurbarkalega mælir er sjálfur fiskistofustjórinn. Ráðherranum kom málið ekkert við, eða hvað? Hvers er rétturinn til að halda um stjórnvölinn? Þriðjungur strandlengju Íslands tilheyrir Vestfjörðum, þar sem megnið af sjókvíaeldi mun verða samkvæmt lögum. Þrátt fyrir þessa staðreynd á að hola fiskeldiseftirlitinu niður hjá Matvælastofnun á Selfossi!!! (Þetta hlýtur að vera prentvilla! Sjókvíaeldið á Vestfjörðum, eftirlitið á Selfossi!? Forseti Alþingi kveðst ekki hafa áhyggjur af málinu, þar sem það sé hugur og vilji sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra að starfsstöð Fiskistofu Íslands á Ísafirði verði áfram starfrækt. Ekki skal efast um vilja og góða trú forsetans og þingmannsins. Þau hræða hins vegar mörg fyrri tíða sporin, þar sem vilji þingmanna reyndist duga skammt, er á reyndi. Hvað ráð- herranum viðvíkur skal hins vegar spurt: Hverju sætir að einn af undirsátum hans skuli óátalið komast upp með vinnubrögð, sem rústa ákvörðunum fyrri tíma stjórnvalda um mikilvæga atvinnuuppbyggingu á Vestfjörðum? Hversu lengi kemst kokkurinn upp með að taka völdin af karlinum í brúnni? s.h.

x

Bæjarins besta

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.