Bæjarins besta - 23.01.2014, Qupperneq 6
6 FIMMTUDAGUR 23. JANÚAR 2014
Jóns Kristmannssonar
Seljalandsvegi 36, Ísafirði
Kristín Jónsdóttir Guðm. Stefán Maríasson
Helga Birna Jónsdóttir Gunnar Bjarni Ólafsson
Bryndís Jónsdóttir Guðjón Már Þorsteinsson
Margrét Brynja Jónsdóttir
Þórdís Jónsdóttir Höskuldur Bragason
Afabörn og langafabörn
Okkar innilegustu þakkir til allra þeirra sem auðsýndu
okkur samúð og hlýhug við andlát og útför ástkærs
eiginmanns míns, föður, tengdaföður, afa og langafa
Hulda Jónsdóttir
Jóhanns Rósinkrans Símonarsonar
skipstjóra
Björn Jóhannsson Kristín Á. Bjarnadóttir
María Björk Jóhannsdóttir Benedikt Jónasson
Guðmundur Friðrik Jóhannsson Dagný Rósa Pétursdóttir
Sigríður Erla Jóhannsdóttir Stefán Þ. Tómasson
afabörn og langafabörn
Hjartans þakkir fyrir auðsýnda samúð og
hlýhug vegna andláts og útfarar ástkærs
eiginmanns, föður, tengdaföður, afa og langafa
Sérstakar þakkir sendum við starfsfólki heimahjúkrunar á Ísafirði og
Heilbrigðisstofnunar Vestfjarða, Ísafirði, fyrir hlýju og góða umönnun
Helga Þórdís Gunnarsdóttir
Sveitarfélögin á Vestfjörðum
hafa fengið umhverfisvottun frá
vottunarsamtökunum EarthCheck
og eru því Vestfirðir í heild sinni
vottað svæði. Með vottunarkerf-
inu er samfélögum veittur rammi
til þess að mæla frammistöðu
sína og vinna að stöðugum úr-
bótum.
„Fjórðungssamband Vestfirð-
inga hefur fyrir hönd sveitarfélag-
anna á Vestfjörðum unnið að því
að fá sveitarfélögin umhverfis-
vottuð af vottunarsamtökunum
EarthCheck sem er einu samtökin
í heiminum sem votta sveitarfé-
lög. Gögnum var skilað í desem-
ber 2013 vegna ársins 2012 og
hafa nú borist upplýsingar um að
vottunin sé komin og fengu sveit-
arfélögin á Vestfjörðum brons
vottun en þau voru vel yfir við-
miðunarlínu í nær öllum þáttum
sem kannaðir voru,“ segir Lína
Björg Tryggvadóttir verkefna-
stjóri byggðaþróunardeildar hjá
FV en hún vinnur nú að því að
taka skýrsluna saman þannig að
hægt sé að kynna helstu niður-
stöður hennar fyrir sveitarfélög-
unum og almenningi og er áætlað
að því verki verði lokið fljótlega
í janúar.
Vottunarsamtökin EC3 Global
eru áströlsk samtök sem sjá um
vottun samfélaga og ferðaþjón-
ustuaðila og geta veitt þeim um-
hverfismerki. Samtökin hafa um-
sjón með EarthCheck vottunar-
kerfinu, sem byggir á hugmynda-
fræði Dagskrár 21 um ábyrga
stjórnun og sjálfbæra. Í upphafi
gekk vottunarkerfið undir nafn-
inu Green Globe en fyrri hluta
árs 2010 varð breyting á og kerfið
tók upp merki EarthCheck. Earth
Check umhverfismerkið er notað
á ferðaþjónustufyrirtæki og ferða-
áfangastaði sem vilja stuðla að
sjálfbærri þróun. Merkið nýtur
alþjóðlegrar viðurkenningar,
enda hafa samtökin vottað aðila í
yfir 50 þjóðlöndum í öllum heims-
álfum.
Vestfirðir með Earth
Check umhverfisvottun
Dásamlegt fólk saman-
komið á yndislegum stað
Ástralinn Julian Thomas Turn-
er dvaldi í Súðavík sumarið 2012
þar sem hann sótti um sjálfboða-
liðastarf hjá Melrakkasetri Ís-
lands. Hann er blaðamaður, ljós-
myndari, listamaður og grafískur
hönnuður og kom hann fyrst til
landsins vegna Airwaves hátíðar-
innar, til að sjá hljómsveitina Sig-
ur Rós og segist hann lengi hafa
verið aðdáandi íslenskrar tónlist-
ar. „Þegar ég heyrði fyrstu plötu
Sigur Rósar, Takk ... þá varð ég
gríðarlegur aðdáandi strax. Þetta
var svo frábrugðið öllu öðru sem
ég var að hlusta á. Frumleikinn
og andrúmsloftið sem tónlistin
þeirra skapar heillaði mig alveg.
Svo kom næsta plata þeirra út,
Heima, og þá áttaði ég mig á því
að þetta er staðurinn sem mig
langar til að vera á,“ segir hann.
„Ég gerði mér ekki grein fyrir
því fyrr en ég kom hversu lands-
lagið hér er engu öðru líkt heim-
inum. Ég hef aldrei verið mikill
aðdáandi borga og ég hef búið í
borgum í Ameríku , auk Sydney,
Ástralíu og London þar sem ég
bý núna. Ég elska landslag og á
Íslandi er nóg af því. Eftir þessa
heimsókn mína á Airwaves hóf
ég að plana að koma aftur og þá
í lengri tíma. Ég keypti Lonely
Planet leiðsögubók um Ísland,
landakort og leitaði á netinu og
skipulagði hvaða staði mig lang-
aði til að heimsækja. Efst á listan-
um varð Melrakkasetrið. Þótt ég
hafi ekki vitað neitt um heim-
skautarefinn þá heillaðist ég þeim
skilaboðum sem setrið stendur
fyrir. Greinin í LP um setrið
kveikti sem sagt áhuga minn og
Ester Rut sagði mér seinna að
hún hafi verið skrifuð þegar setrið
var ekki einu sinni tilbúið, það
var enn í byggingu,“ segir hann.
Ester Rut segir hann hafa unnið
ýmis störf á setrinu. Gefið yrð-
lingunum og létt starfsmönnum
lífið. „Svo fór hann með mér í
Hornvík og vaktaði eina refafjöl-
skyldu í viku, tók myndir o.fl. Í
september og október passaði
hann svo setrið, rebbana og húsið
mitt,“ segir hún. Julian tók upp
nokkuð af efni, bæði ljósmyndir
og myndbandsupptökur, á meðan
dvöl hans stóð á Íslandi og hefur
hann nú sett það saman og birt á
You Tube undir yfirskriftinni
„Takk fyrir, Ísland.“
„Súðavík er frábær og Vest-
firðir eru ótrúlegir. Ég var ekki
alveg viss við hverju ég mætti
búast þegar ég kem í setrið en
um leið og ég kom var tekið
hlýlega á móti mér og mér leið
strax vel. Ég var kynntur fyrir
öðrum sjálfboðaliðum strax og
samræður bara einhvern veginn
flæddu áreynslulaust. Setrið virð-
ist draga að sér ótrúlega áhuga-
verðan hóp af fólki. Allir svo
opnir og geta haft gaman en jafn-
framt slakað á. Allir hafa líka
einhverjar sögur að segja. T.d.
var bankareikningurinn minn
frosinn þegar ég var þarna af því
að einhver hafði reynt að stela af
mér peningum, sem leiddi til þess
að ég varð að vera þarna miklu
lengur en ég ætlaði. En það voru
svo margir sem voru tilbúnir að
hjálpa mér og um mig var vel
hugsað. Dásamlegt, dásamlegt
fólk þarna samankomið á yndis-
legum stað,“ segir hann.
Þar sem að dvöl hans lengdist
í annan endann gafst honum tæki-
færi til að sjá norðurljós um haust-
ið. „Það var algjörlega magnað
og auðveldlega uppáhalds nátt-
úruundrið sem ég hef orðið vitni
að. Ég var svo heppin líka að ná
góðum myndum af þeim. Það er
ekkert sem kemst nálægt því að
vaka langt fram á nætur til að ná
þeim, biðin var vel þess virði. Á
Íslandi er svo mikil fegurð, og
ekki síður, fallegt fólk. Ég elska
matinn og menninguna. Reykja-
vík er líka frábært staður fyrir
ferðamenn eins og mig, sem ferð-
ast einir, ráfa um borgina dag
eða nótt. Mig langaði ekki til að
fara. Mig langaði bara til að vera.
Ég er líka stöðugt að hugsa um
hvenær næsta tækifæri gefst til
að koma aftur. Ég eignaðist fjöl-
skyldu þarna svo ég þarf að fara
að kíkja í heimsókn,“ segir hann
og bætir svo við: „Ég er ástfang-
inn af Íslandi.“ – harpa@bb.is
Julian Thomas Turner.