Bæjarins besta


Bæjarins besta - 23.01.2014, Page 19

Bæjarins besta - 23.01.2014, Page 19
FIMMTUDAGUR 23. JANÚAR 2014 19 Lausn á síðustu krossgátu Sudoku þrautir Þjónustuauglýsingar Fyrsta barn ársins 2014 á Heil- brigðisstofnun Vestfjarða á Ísafirði kom í heiminn mánudag- inn 6. janúar. Um var að ræða dreng sem vó 4210 grömm við fæðingu, eða rúmar tæpar 17 merkur og mældist 56 sentimetr- ar. Foreldrar nýársbarnsins heita Ástrún Þórðardóttir og Erling Þór Kristjánsson. Að sögn Sigrúnar Rósu Vilhjálmsdóttur ljósmóður heilsast móður og barni vel. Bæj- arins besta óskar þessum nýju foreldrum til hamingju með erf- ingjann. Nýársbarn komið í heiminn Tangagatan á Ísafirði verður hellulögð í sumar frá Skipagötu að Þvergötu og einnig Þvergata frá Tangagötu að Smiðjugötu. Meðal annarra framkvæmda á fjárhagsáætlun Ísafjarðarbæjar má nefna framkvæmdir á skóla- lóðum grunnskóla Ísafjarðar og Suðureyrar. Heitir pottar verða settir upp við sundlaug Flateyrar og framkvæmt verður í Svarta pakkhúsinu á Flateyri og Salt- húsinu á Þingeyri. Á fjárhagsáætlun er einnig gert ráð fyrir kostnaði við hönnunar- vinnu á framkvæmdum næsta árs, til dæmist við gatnaframkvæmdir á Hlíðarvegi og á Flateyri. Á dagskrá eru einnig hafnarfram- kvæmdir á Suðureyri en þær verða gerðar í samvinnu við Sigl- ingastofnun. Hellulögn gömlu gatnanna á Ísafirði hófst síðasta sumar er Smiðjugata var hellulögð og þykir gatan nú mikil bæjarprýði. Tangagata hellu- lögð að hluta til Bókanir skemmtiferðaskipta til Ísafjarðar ganga mjög vel en 48 skip hafa nú þegar boðað komu sína í sumar. Á síðasta ári komu 37 skip til Ísafjarðar og fjölgaði þeim um fimm frá árinu á undan og því er óhætt að segja að mikill og stöðugur vöxtur sé í skipakomum. Guðmundur M. Kristjánsson, hafnarstjóri í Ísafjarðarbæ, segir að enn geti skip bæst við en einnig hafi það gerst skip séu afbókuð með skömmum fyrirvara, þetta sé því tæplega endanleg tala. Þá eru forbókanir fyrir árið 2015 hafnar og segir Guðmundur þær líta vel út miðað við árstíma. Stefnir í met- fjölda skipa

x

Bæjarins besta

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.