Dagblaðið Vísir - DV - 26.06.2008, Qupperneq 30
fimmtudagur 26. júní 200830 Síðast en ekki síst DV
Sandkorn
n Blaðamennirnir Freyr Gígja
Gunnarsson og Júlía Alexand-
ersdóttir eignuðust lítinn dreng
í gær. Móð-
ur og barni
heilsast vel
en Júlía gekk
nærri tvær
vikur fram
yfir tímann.
Freyr og Júlía
vinna bæði
á Frétta-
blaðinu og er þessi drengur svo
sannarlega með fjölmiðlagen í
blóðinu.
n Klipping á gamanþáttaserí-
unni Dagvaktinni virðist ganga
vel þrátt fyrir að aðalklippari
Ragnars Bragasonar, Sverr-
ir Kristj-
ánsson,
hafi eignast
dóttur á
dögunum.
Sverrir hef-
ur unnið
náið með
Ragnari
í gegn-
um árin og hefur getið sér gott
orð í bransanum. Hann er líka
bróðir Ilmar Kristjánsdóttur
leikkonu. Hamingja umlykur
systkinin þessa dagana. Sverrir
orðinn pabbi og Ilmur ástfangin
en í nýjasta tímariti Séð og heyrt
má lesa allt um nýja kærastann.
n Umdeilt myndband Sigur
Rósar við lagið Gobbledigook
vakti heldur betur athygli á dög-
unum en í myndbandinu var
mikið um bera bossa og nakið
fólk hlaupandi um í náttúrunni.
Eins og kunnugt er var mynd-
bandið meðal annars bannað
á YouTube-síðunni. Nú hefur
hljómsveitin birt skemmtilegar
myndir frá gerð myndbands-
ins inni á Myspace-síðu sinni
en þar má sjá leikara í mynd-
bandinu hlýja sér í sloppum á
milli þess sem þeir hoppa um
naktir á trampólíni.
Hver er maðurinn?
„Sara í Íshestum í Hafnarfirði. Ég sé
um hrossin þar.“
Hvað drífur þig áfram?
„Hvað það er gaman að vera til.“
Hver eru þín helstu áhugamál?
„Öll útivera er frábær.“
Hvernig tónlist hlustar þú á?
„Bara á alls konar tónlist, fönk,
djass, rokk og margt fleira.“
Hver er þinn helsti hæfileiki?
„Glaðlyndi og kátína.“
Spilar þú á hljóðfæri?
„Nei.“
Hvað ætlaðir þú að verða þegar
þú varst barn?
„Ég ætlaði að verða dýralæknir.“
Hefur þú stundað hesta-
mennsku lengi?
„Já, mjög lengi.“
Hefur þú dottið af baki?
„Já, mjög oft, hef meira að segja
slasast.“
Hvað átt þú marga hesta?
„Mér finnst ég eiga öll hrossin uppi
í Íshestum, en ég á þau í rauninni
ekki. Ég á samt tvo íslenska hunda.“
Hefur þú keppt á hestum?
„Nei. Það kemur í ljós í framtíðinni
hvort það verður einhvern tímann.“
Hvað er skemmtilegast við það
að vinna á hestaleigu?
„Það er svo margt. Að vera með
hrossunum, hvað starfsfólkið er
skemmtilegt, hvað það er góður
mórall hjá okkur og svo að tala við
útlendingana.“
Hvernig var að fara á hesti í
vinnuna?
„Það var æðisleg tilfinning, rosalega
skemmtilegt. Ég kom hress og kát í
vinnuna, laus við allt bensín.“
Hefur þú járnað hesta?
„Nei, ekki beint, en ég hjálpa til við
járningar.“
Uppáhaldsstaður á Íslandi?
„Heima hjá pabba á Kríunesi.“
Hvað er fram undan?
„Það er svo margt. Halda áfram í
hestunum og skrifa meira, ég skrifa
ævintýrabækur.“
Hver er draumurinn?
„Að ferðast út um allan heiminn.
Það væri toppurinn að prófa hross
í sem flestum löndum. Ég fór á bak
í Mongólíu og Kína, það var mjög
sérstakt. Þeir eru með allt öðruvísi
hnakka sem eru úr tré, svo eru þeir
líka með heimatilbúin beisli.“
MAÐUR
DAGSINS
Skrifar og mótmæl-
ir háu benSínverði
Sigurveig Sara Björnsdóttir
mótmælir háu bensínverði með því að
fara ríðandi til og frá vinnu. uppátækið
hefur vakið þó nokkra athygli en hún er
starfsmaður íshesta í Hafnarfirði. Sigur-
veig Sara hefur mikinn áhuga á útiveru og
skrifar ævintýrabækur í frístundum.
BókStAfleGA
„Auður
heimsins
safnast til
þess land-
svæðis
sem aldin-
garðurinn var
í upphafi. Þetta held ég
að sé guðleg ábending til
allra um að gæta sín og
gera sig klára.“
n gunnar Þorsteinsson, forstöðumað-
ur Krossins, um þær miklu bensín-
hækkanir sem landsmenn verða
áþreifanlega varir við. – dV
„Það er ekki
eins og
maður
geti æft
sig. Hvað
á ég að
gera? Stinga
hausnum ofan í baðkar
og setja hátalara ofan í?
Ég held ekki.“
n andri freyr Viðarsson, útvarpsmað-
ur með meiru, en hann er einn þeirra
sem troða upp á tónleikum sem fara
fram á kafi í vatni á Hróarskeldu í
næstu viku. - Vísir.
„Þeir sögðust ekki geta
samþykkt ljósrit af
vegabréfinu hennar því
myndin væri allt of svört.
En hvernig er það, vildu
þeir fá hvíta mynd af
svartri konu?“
n jón Halldórsson giftist konu frá
Haítí um síðustu áramót. illa hefur
gengið að fá konuna til landsins og
jón er ósáttur við viðmót útlend-
ingastofnunar í máli sínu. - dV
„Myndin
blekkir
svolít-
ið. Við
mynduð-
um mann
á nákvæm-
lega sama stað og
skeyttum saman mynd-
um. Svo það sést að þetta
er ekkert óvenjulega stór
skepna á myndinni.“
n Stefán Vagn Stefánsson, yfirlög-
regluþjónn hjá lögreglunni á
Sauðárkróki, um myndina sem
ferðamenn tóku af meintu bjarndýri
við Bjarnafell á Skaga. - mbl.
„Þetta er allt
í lagi, ég er
búin að fá
að borða
núna.“
n jónína
Benediktsdóttir
gleymdi andabringum í flugvél
þegar hún lenti á íslandi eftir detox-
föstu í Póllandi. Þegar hún fór og
leitaði þeirra voru bringurnar
komnar í vörslu tollgæslunnar og
neyddist jónína til að greiða sekt
vegna „innflutningsins“. - Vísir
„Búningurinn og atrið-
ið er algjört leyndarmál.
Það tekur okkur næstum
því hálft ár að spá í þema
og hugmyndir og útvega
efni til að sauma
búninga og gera at-
riðið flott.“
n guðbergur
garðarsson,
eða Beggi
eins og hann
er oftast
kallaður, um
gay Pride-
atriðið þeirra
Pacasar í ár. –
Séð og heyrt
Útgáfutónleikar Kira Kira í kvöld:
Raftónlist og rabarbari í Iðnó
„Þetta verður mjög hlýtt og gott,
vinalegt en þó hressandi. Það er svo
mikill gáski í fólkinu sem spilar með
mér í kvöld að það getur ekki ann-
að en smitað út frá sér,“ segir Krist-
ín Björk Kristjánsdóttir sem er betur
þekkt undir listamannsnafninu Kira
Kira. Í dag kemur út platan Our Map
to the Monster Olympics og í kvöld
verða útgáfutónleikar í Iðnó sem
hefjast klukkan 22.00. Húsið verður
opnað klukkan níu því á undan tón-
leikunum verður boðið upp á rabar-
barasnafs. „Snafsinn er heimatilbú-
inn, eins og tónlistin, ég hvet alla til
að koma og skála fyrir tónleikana,“
segir Kristín sem lofar huggulegheit-
um.
Í ágúst heldur Kira Kira tónleika
á tónlistarhátíðum í Noregi og Sví-
þjóð. Í október er svo komið að tón-
leikahaldi í Kína og Japan. Á nýju
plötunni leikur fjöldi hljóðfæraleik-
ara sem saman skapa þéttan hljóm
rafhljóða í bland við myndrænar
lagasmíðar. Þar má greina klukku-
spil, spiladósir, lúðra, hljómborð,
trommur og fleiri hljóðfæri.
Our Map to the Monster Olymp-
ics er önnur plata Kira Kira því árið
2006 kom út platan Skotta. Kristín
er á samningi við útgáfufyrirtækið
After Hours sem gefur plötuna út í
Japan en fyrirtækið hefur líka gefið
út efni eftir Benna Hemm Hemm
og múm: „Japanir eru sjúkir í þetta
dót, þeir eru virkilega hrifnir af tón-
listinni,“ segir Kristín en hún hefur
komið fram sem Kira Kira frá árinu
1999 þegar rafspunahljómsveitin
Big Band Brútal sem hún spilaði
með hætti störfum. Kristín Björk er tónlistarkonan Kira Kira.
dV mynd Ásgeir