Listin að lifa - 01.06.2010, Síða 48
Fræðsluhornið
Ágætu lesendur.
Gleðilegt sumar og þökk fyrir
samstarfið við Fræðsluhornið sl. 10 ár.
Það hefur verið góður og gefandi tími
Kryddjurtir, ræktun, notkun og
geymsla:
Margir tína kryddjurtir úti í náttúrunni. Má þar nefna
hvönn og skessujurt. Algengara er að rækta kryddjurtir
í eldhúsglugganum, á svölum eða í garðinum.
Kryddjurtir eru kunnar frá alda öðli bæði til heilsubótar
og til matargerðar. Það eru jurtir eða jurtahlutar
sem auka bragð, ilm, næringargildi og geymsluþol
fæðunnar. Einnig verður hún litríkari og lystugri.
Svava Rafnsdóttir, garðyrkjufræðingur í Blómavali,
veitir okkur fúslega eftirfarandi upplýsingar um
ræktun kryddjurta:
Gott er að sá í góða sáðmold, hún er laus við alla
sjúkdóma og er ekki of áburðarmikil fyrir litlu fræin.
Notið potta sem henta t.d. í eldhúsglugga.
Sáðmoldin er sett í pottana. Fyllið ekki alveg upp
að brún, vökvið vel og síðan er fræjunum sáldrað
yfír moldina, gæta skal að sá ekki of þétt, um 20
fræ í 11 cm pott. í fræpokunum eru um 500 til 1.000
fræ, geyma skal fræpokana á milli ára inni í ísskáp.
Endingartími á pokunum er oftast 3 ár.
Síðan er sett dálítil mold eða fínn vikur yfir fræin,
alls ekki of mikið, um 1 -2 sinnum þykkt fræsins. Að
lokum spreyjað (úðað með vatni yfir moldina/fína
vikurinn).
Plastfilma er sett yfír pottinn og honum komið fyrir
á björtum og hlýjum stað, hiti við spírun ætti að vera
18-23°C. Gott er að láta pottinn standa á bakka eða
undirskál svo ekki leki niður.
Spírunin tekur 7-14 daga, það þarf að halda raka með
því að spreyja undirplastið 3svar í viku, kannski oftar.
Þó ekki þannig að moldin verði vatnsósa en samt að
rakinn haldist jafn.
Strax eftir spírun (þegar sést í litlu greyin upp úr
moldinni, 3-4 blöð) þarf að fjarlægja plastið en hafa
jurtimar áfram í góðri birtu en ekki sól.
Hiti í uppvexti ætti að vera 10-18°C (lækka í ofnum
eða opna glugga).
Ef plöntumar verða of teygðar þá er ekki nóg birta
eða of heitt á þeim.
Ef sáð hefur verið of þétt, þarf að kippa einhverjum
af þeim varlega í burtu. Munið að vökva þegar þess
þarf.
Ef kryddið á t.d. að fara út í samplöntun í ker eða
gróður út í garð, þá er nauðsynlegt að herða plöntumar.
Það er gert með því að flytja þær á svalari stað áður
en þeim er plantað út í sumarið. Svalur staður er t.d.
bílskúr (með glugga), gróðurhús, vermireitur eða bara
að setja þær út á daginn og inn á nóttunni í um hálfan
mánuð. Svo í byrjun maí eða um miðjan maí er óhætt
að setja kryddjurtimar beint út. Muna svo að gefa
áburð og vökva.
Það er hægt að kaupa forræktaðar kryddplöntur t.d. í
Blómavali á vorin.
Þá er snjallt að planta saman í stærri potta eða svalaker
nokkmm kryddjurtum og hafa hærri plöntumar aftast
en þær sem eru lægri fremst.
Vatnsgel er gel sem sett er í moldina við ræturnar.
Það kemur í veg fyrir ofþomun en það verður samt
að vökva.
Nokkrar hærri kryddplöntur eru rosmarin, salvia,
graslaukur, steinselja, sítrónumelissa, koriander,
fennel og dill.
Nokkrar lægri kryddplöntur eru estragon, origano,
timjam (blóðberg) og savory (sarjurt).
Piparmynta er flott ein og sér og ætti ekki að vera
48