Iðnaðarmál - 01.05.1961, Síða 5

Iðnaðarmál - 01.05.1961, Síða 5
r--------------------------------- Ársskýrsla IMSÍ ................ 82 Reikningalykill fyrir íslenzkt atvinnulíf.................... 83 Fyrsta íslenzka ráðstefnan um stjórnunarmál................. 84 Þilplötuframleiðsla ............ 87 Kolburstaframleiðsla............ 88 Enn um sjálfvirkni ............. 91 Samkeppni milli málma og plastefna .................... 92 Fjárveitingar til atvinnumála .. 97 Nytsamar nýjungar............ 98 Forsíða: Frá fyrsta vinnurannsókna- námskeiði IMSI. Tímamælingar við rennismíði. Ljósm.: Gunnar Rúnar. Endurprentun háð leyfi útgefanda. Ritstjóm: Sveinn Bjömsson (ábyrgðarm.), Þórir Einarsson. Utgefandi: Iðnaðarmálastofnun íslands, Iðnskólahúsinu, Skólavörðutorgi, Reykjavík. Pósthólf 160. Sími 19833—4. Áskriftarverð kr. 100,00 árg. PRENTSMIÐJAN HÓLAR HF V_________________________J Iðnaðarmal 8. ÁRG. 1961 • 5. HEFTI Reikningalykill fyrir islenzkt atvinnulif Á öðrum stað í þessu hefti er greint frá ráðstefnu Stjómunarfélags íslands (SFI), sem haldin var síðsumars í ár. IÐNAÐARMÁL vilja leyfa sér að vekja sérstaka athygli lesenda á ályktunum ráðstefnunnar, þar sem vakið er máls á ýmsum aðkallandi þörfum og verkefnum, sem sinna þarf í náinni fram- tíð til aukinnar tækni og framfara í rekstri íslenzkra fyrirtækja. Ekki er ætlunin að rekja hér efnislega ályktanir ráðstefnunnar, heldur að drepa lítillega á eitt af þeim málum, sem ráðstefnan fól SFÍ að taka til með- ferðar, og eflaust á eftir að hafa mikil áhrif á reikningshald og skýrslugerð, ef vel tekst til við lausn þess. Er hér átt við það verkefni að koma upp sam- rœmdum reikningalykli (Konto-plan) fyrir íslenzkt atvinnulíf. í ályktun þess- air segir svo: „SFÍ beiti sér fyrir stöðlun í gagnasöfnun og gagnaúrvinnslu hjá íslenzkum fyrirtækjum og stofnunum með því m. a. að stuðla að því að koma upp einum samræmdum reikningalykli (Konto-plan) fyrir íslenzkt atvinnulíf hliðstætt því, sem gert hefur verið víða er- lendis. Á grundvelli þessa lykils yrðu síðan settir upp reikninga- lyklar fyrir einstakar atvinnugreinar, þar sem tekið væri tillit til sér- stakra þarfa þeirra. Með þessu móti væri kerfisbundið unnið að öflun mikilvægra upplýsinga um fyrirtæki inn á við, og þegar sam- ræmdir lyklar væru komnir almennt í notkun, yrðu unnar úr sam- ræmdu reikningshaldi máttölur fyrir einstakar atvinnugreinar. Mát- tölur þessar myndu veita stjórnendum mikilvæga vitneskju, sem stuðlað gæti að aukinni framleiðni.“ í sjálfu sér er litlu við að bæta því flestum mun vera ljóst, hver tilgangur- inn er. Yfirleitt hefur reikningshald í islenzkum fyrirtækjum ekki verið svo úr garði gert, að stjórnendum fyrirtækja væri sú stoð í því, sem vera þyrfti og þaðan af síður, að það gerði kleift að bera saman rekstur fyrirtækja innan einstakra atvinnugreina eins og nú þykir orðið sjálfsagt víða erlendis. Þá hefur einnig verið bagalegt fyrir þjóðarbúið sjálft hversu ófullkomnar upp- lýsingar hafa fengizt frá einstökum atvinnugreinum og gildir það ekki sízt um iðnað landsmanna. Það verkefni, sem hér um ræðir, er vissulega umfangsmikið og tímafrekt, en fullyrða má, að nema því aðeins, að því verði gerð viðunandi skil, er vart við því að búast, að sú þekking fáist af atvinnulífi landsmanna, sem á að vera undirstaða stjórnunaraðgerða, bæði innan einstakra fyrirtækja, atvinnu- greina og reyndar þjóðarbúsins í heild. S. B. IÐNAÐARMÁL 83

x

Iðnaðarmál

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Iðnaðarmál
https://timarit.is/publication/1105

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.