Iðnaðarmál - 01.05.1961, Side 6
Þátttakendur.
Stjórnunarfélagið mun á næstunni
gefa út erindi og annan fróðleik frá
ráðstefnunni. Þeir, sem óska að eign-
ast þingtíðindin, geta snúið sér til
Stjórnunarfélags Islands, Pósthólf
155, Reykjavík.
Fyrsta íslenzka ráðstefnan um STJORNUNARMAL
Eins og kunnugt er, var í janúar s.l.
stofnað í Reykjavík félag, sem helgaö
er framkvæmdastjórnar- og hagræð-
ingarmálum. Félaginu, sem ber nafn-
ið Stjórnunarfélag íslands, er ætlað
að vinna að framförum í hvers konar
rekstri einstaklinga, félaga og hins
opinbera og vinna að samvinnu
þeirra, sem áhuga hafa á stjórnunar-
málum. Vill félagið með því stuðla að
bættum atvinnuháttum og aukinni
framleiðni, sem telja verður eitt aðal-
skilyrði bættra lífskjara.
Markmiði sínu hyggst félagið m. a.
ná með því að ræða þessi mál á fund-
um sínum og ráðstefnum og efna til
fræðandi fyrirlestra innlendra og er-
lendra sérfræðinga.
Fyrsta ráðstefna félagsins var hald-
in að Bifröst í Borgarfirði dagana 31.
ágúst til 2. september s.l., og voru þar
samankomnir um 70 manns, m. a. frá
mörgum stærstu fyrirtækjum, stofn-
unum og atvinnusamtökum þjóðar-
innar, til að ræða vandamál á sviði
Dr. Harold Whitehead.
framkvæmdastjórnar og hagræðing-
ar. Dr. Gylfi Þ. Gíslason mennta-
málaráðherra, flutti erindi á ráðstefn-
unni um menntunarmál í sambandi
við stjórnun og hugsanlegt fyrir-
komulag slíkrar menntunar hér á
landi, og Englendingurinn Dr. Har-
old Whitehead flutti fyrirlestur, sem
fjallaði um ýmis framkvæmda- og
skipulagsvandamál í rekstri fyrir-
tækja, en þeir voru sérstakir gestir
ráðstefnunnar. Onnur aðalerindi ráð-
stefnunnar voru: Skipulagning fyrir-
tækis, flutt af Guðmundi Einarssyni
framkvæmdastjóra, tvö erindi um
menntun og þjálfun á sviði stjórnun-
ar og hagræðingar, eftir Guðlaug
Þorvaldsson viðskiptafræðing og
Sverri Júlíusson hagfræðing, og er-
indi um reiknigrundvöll stjórnunar-
aðgerða, flutt af Glúmi Björnssyni
skrifstofustjóra. Þá voru flutt nokkur
stutt erindi í erindaflokki, sem bar
heitið „Hverju er einkum ábótavant
í stjórnunarmálum hér á landi?“
Flytjendur voru þeir Adolf J. E. Pet-
ersen, Árni Snævarr, Eggert Krist-
jánsson, Einar Bjarnason, Erlendur
Einarsson, Hannibal Valdimarsson,
Jón H. Bergs, Steingrímur Hermanns-
son og Sveinn B. Valfells. Ennfremur
heimsóttu ráðstefnuna þeir Robert
Major, forstjóri Norska Rannsóknar-
ráðsins, sem talaði um rannsóknar-
starfsemi og smáiðnað, og Dr. Gunn-
ar Böðvarsson, sem ræddi um reikni-
grundvöll til að gera sér grein fyrir
veiðiþoli fiskstofna.
Sex hópumræðuflokkar störfuðu á
ráðstefnunni, þar sem þátttakendum
gafst kostur á að ræða sérstök áhuga-
mál. Umræðuefni hópanna var sem
hér segir: 1. Skipulagsmál fyrirtækja.
2. Hagræðing og hagsýsla. 3. Fjár-
málastjórn fyrirtækja. 4. Vitneskju-
velta innan fyrirtækja, gagnaúr-
vinnsla, kostnaðargreining. 5. Ákvæð-
isvinna. 6. Nýting vinnuafls og fram-
leiðslutækja, aukning framleiðni. Þá
voru sýndar kvikmyndir um sjálf-
virkni, starfsnám og markaðsmál.
Sérstök bókasýning var á ráðstefn-
unni, þar sem þátttakendum gafst
kostur á að kynna sér bókmenntir um
stjórnunar- og hagræðingarmál.
Aðalundirbúning ráðstefnunnar
annaðist stjórn Stjórnunarfélags ís-
lands, en hana skipa: Jakob Gíslason
formaður, sem jafnframt var forseti
ráðstefnunnar, Gunnar J. Friðriks-
son varaformaður, Sveinn Björnsson
ritari, Gísli V. Einarsson gjaldkeri,
og Eyjólfur Jónsson meðstjórnandi.
Framkvæmdir annaðist Árni Þ. Árna-
son, sem var framkvæmdastjóri ráð-
stefnunnar, ásamt Glúmi Björnssyni,
aðalritara ráðstefnunnar.
Iðnaðarmálastofnun íslands, sem
hefur haft náið samstarf við Stjórn-
unarfélagið frá upphafi, veitti félag-
inu ýmsan stuðning við undirbúning
ráðstefnunnar, m. a. með milligöngu
um útvegun hins erlenda fyrirlesara,
sem kom hingað með stuðningi Fram-
leiðniráðs Evrópu (EPA).
Það var einróma álit þátttakenda,
að ráðstefna þessi hefði verið hin
fróðlegasta og gagnlegasta, og hefði
hér að vissu leyti verið brotið blað í
sögu stjórnunarmála á íslandi.
í lok ráðstefnunnar voru helztu
niðurstöður hennar dregnar saman í
formi ályktana, þar sem vakin er at-
hygli á nokkrum helztu atriðum ís-
lenzkra stjórnunarvandamála nú á
dögum, og bent er á nokkur verkefni,
sem æskilegt er talið, að Stjórnunar-
félagið taki til meðferðar á næstunni.
84
IÐNAÐARMÁL