Iðnaðarmál - 01.05.1961, Qupperneq 7
Umræðuhópur: Fjármálastjórn jyrirtœkis. Frá vinstri: Sveinn B.
Valfells, Guðm. Guðmundsson, Jan Garung, Hilmar Kristjánsson,
Erlendur Einarsson, Guðjón Teitsson, Eggert Kristjánsson, Örn O.
Johnson, Georg Lúðvíksson.
Umræðuhópur: Vitneskjuveltan innan jyrirlœkis, o. jl. Frá vinstri:
Bjarni P. Jónsson, Gísli V. Einarsson, Otto A. Michelsen, Jón H.
Bergs, Jakob Guðjohnsen, Valdimar Hergeirsson, Glúmur Björns-
son, Gunnlaugur Björnsson, Guðmundur Erlendsson.
Fara ályktanir ráðstefnunnar hér á
eftir:
ÁLYKTANIR
Ráðstefna Stjórnunarfélags íslands,
haldin að Bifröst 31. ágúst—2. sept-
ember 1961, ályktar:
1) Að eitt helzta skilyrði efnahags-
legra framfara og bættra lífskjara sé
aukin framleiðni atvinnulífsins og því
sé óhj ákvæmilegt, að hvert fyrirtæki,
atvinnugrein og þjóðarbúið í heild
geri sér með framleiðnimælingum að
staðaldri grein fyrir nýtingarhlutfall-
inu milli hinna einstöku framleiðslu-
þátta (s. s. vinnuafls, hráefna og fjár-
magns) og tilsvarandi verðmætis eða
magns framleiðslunnar. Telur ráð-
stefnan, að með slíkum mælingum
megi fá mælikvarða, sem skort hefur,
til að meta og móta ráðstafanir ein-
stakra fyrirtækja og þjóðarbúsins til
bætts rekstrar og betri afkomu.
2) Að brýn nauðsyn sé að koma á
vinnurannsóknum í atvinnulífi lands-
ins til þess að endurbæta vinnuað-
ferðir og auka framleiðni með það
fyrir augum að bæta í senn afkomu
launþega og fyrirtækja.
3) Að auðsætt sé, að íslenzka þjóð-
in þurfi nú þegar á að halda fjöl-
mennu starfsliði, er vinni að hvers
konar vinnuhagræðingu og almennri
hagsýslu og sé sérstaklega þjálfað til
þeirra starfa.
4) Að nauðsynlegt sé, að öll stór
atvinnufyrirtæki landsins og mörg
hinna smærri hafi fastráðna menn við
hagræðingarstörf í sinni þjónustu.
Jafnframt sé þörf hagræðingarráðu-
nauta, er allir geti leitað til.
5) Að mikilvægt sé, að samtök
vinnuveitenda og launþega geri með
sér samkomulag um framkvæmd
vinnurannsókna með það fyrir augum
að efla skilning á gagnsemi þeirra og
koma í veg fyrir andúð gegn vinnu-
rannsóknum og tortryggni í garð
þeirra, sem framkvæma þær.
6) Að launakerfum, sem verðlauna
aukin afköst, sé ekki nægur gaumur
gefinn hér á landi. Það kerfi, sem
mest er notað nú — fast kaup á tíma-
einingu — hvetur ekki til bættrar nýt-
ingar atvinnutækja og aukinna vinnu-
afkasta að sama skapi og ákvæðis-
vinnukerfi. Til þess að ákvæðisvinna
nái tilætluðum árangri, verður að
gæta þess, að hún sé rétt undirbúin,
að starfsemin sé skipulögð með tilliti
til hennar og hagnaðinum, sem af
henni verður, sé réttlátlega skipt milli
þeirra aðila, sem hlut eiga að máli.
Séu þessi skilyrði uppfyllt, má af á-
kvæðisvinnu vænta aukinnar fram-
leiðni og velmegunar.
7) Að æskilegt sé, að unnið verði
að því að kom á samstarfsnefndum
launþega og vinnuveitenda í stærstu
fyrirtækjum landsmanna, þar sem
fulltrúar þessara aðila ræði reglu-
lega sameiginleg velferðar- og hags-
muna mál, s. s. ráðstafanir til aukn-
ingar framleiðni, vinnuskilyrði, ör-
yggismál o. s. frv. Um leið og ráð-
stefnan skírskotar til jákvæðrar
reynslu, sem fengin er í nágranna-
löndum vorum í þessum efnum, bein-
ir hún þeim tilmælum til SFÍ, að fé-
lagið stuðli fyrir sitt leyti að því með
upplýsingastarfsemi og öðrum hætti
í samráði við heildarsamtök launþega
og vinnuveitenda, að samstarfsnefnd-
ir komist á í íslenzku atvinnulífi.
8) Að brýn nauðsyn sé á því, að
tekin sé upp í íslenzkum sérskólum,
þar sem það á við, bæði framhalds-
skólum og æðri menntastofnunum,
kennsla í hagræðingu og stjórnun.
9) Að nauðsynlegt sé að hefja nú
Umræðuhópur: Skipulagsmál jyrirtœkja. Frá vinstri: Steingrímur
Jónsson, Kári Þórðarson, Axel Kaaber, Arni G. Kristjánsson, Ás-
geir Einarsson, Guðmundur Einarsson, Sigurður Halldórsson, Her-
mann Þorsteinsson, Vilhjálmur Þ. Gíslason, Gunnlaugur Briem.
Umræðuhópur: Hagrœðing. Frá vinstri: Jakob Gíslason form. SFÍ,
Þorv. J. Júlíusson, Sveinn Guðmundsson, Svavar Guðmundsson,
Sverrir Júlíusson, Einar Bjarnason, Hjálmar Blöndal, Jakob Hár-
vei, Kristján Magnússon, Þorg. K. Þorgeirsson, Helgi Þórðarson.