Iðnaðarmál - 01.05.1961, Page 10

Iðnaðarmál - 01.05.1961, Page 10
Ktfllmtafrfmilnðsla Um miðjan ágústmánuð var opnuð verksmiðja í Reykjavík til fram- leiðslu á kolburstum (kolum) í raf- vélar. Verksmiðjan, sem er eign sam- eignarfélagsins Kórall sf., er til húsa að Vesturgötu 55. Við stofnsetningu verksmiðjunnar hefur Kórall sf. haft náið samstarf við ensku kolbursta- verksmiðjuna The Morgan Crucible Company Ltd., sem hefur framleitt kolbursta í tæp 60 ár og er einn þekkt- asti framleiðandi á þessu sviði. Auk þess sem Kórall sf. hefur fengið vél- ar sínar frá áðurnefndri verksmiðju, er efnið til kolburstagerðarinnar einnig fengið þaðan. Hin enska verk- smiðja hefur þjálfað starfsmann Kór- als, en hún mun einnig hafa með höndum gæðaeftirlit, og sérfræðing- ar hennar munu veita aðstoð, þegar þörf gerist, til að leysa úr sérstökum vandamálum, s. s. óeðlilegu sliti á burstum, straumvindum, hringum o. s. frv. Hefur Kórall sf. söluumboð og Borvélarnar, sem notaðar eru til að bora burstana áður en þráðurinn er festur í þá. Myndin sýnir tœkin, sem kolburstarnir eru prófaðir með, áður en þeir eru afgreiddir frá verksmiðjunni. Lengst til vinstri er togprófunartceki, en í því er styrkleiki þráðarféstingar- innar prófaður með allt að 43 kg. togi. 1 miðið er tœki til að mcela nákvœmni í slípingu burstanna, en hámarksónákvœmni (tolerance) er 0,07 mm. 1 tcekinu lengst til hœgri er mælt viðnámið í tengingu þráðarins við burstann, en spennufallið yfir þá tengingu má aðeins vera nokkur m.V. við málstraum burstans. framleiðsluleyfi frá hinni ensku verk- smiðj u. Þar sem skipulagsbundið viðhald á enn langt í land í flestum atvinnu- greinum hér á landi, verður eigend- um hvers konar rafvéla að teljast verulegur fengur að slíkri þjónustu sem þessari. Til þess að þjónusta af þessu tagi geti gengið örugglega og fljótlega fyrir sig á að sjálfsögðu ávallt að hafa margar efnisgerðir fyrirliggjandi, en þjónustan verður einnig að byggjast á því, að greiðlega gangi að gera grein fyrir, á nákvæm- an og réttan hátt, hvers sé þörf hverj u sinni. Hefur Kórall sf. ákveðið að koma upp spjaldskrá yfir vélar viðskipta- vina í þessu skyni, sem þess óska, þannig að afgreiðsla pantana geti átt sér stað með eins litlum töfum og verða má. Eigendur hins nýja fyrir- tækis eru Baldur Geirsson og Sveinn Þórðarson. ^ ^ Myndin sýnir slipun á kolburstum. 38 IÐNAÐARMÁL

x

Iðnaðarmál

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Iðnaðarmál
https://timarit.is/publication/1105

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.