Iðnaðarmál - 01.05.1961, Qupperneq 12
íbúðarinnar er í efri brún á fullgerðu
gólfi.
Nefndin gerir ráð fyrir því, að
gólfplötur samkvæmt mátkerfinu
verði steyptar með yfirstalli í vegg að
jafnri þykkt og gólfið, platan verði
steypt af æskilegri þykkt og síðan
komi undirstallur í vegg og nái niður
að næstu mátlínu eða skipulagsmát-
línu í hlöðnum húsum.
Nefndin ákvað heildarhæð íbúða,
mælt frá gólfi til gólfs, 280 cm, dyra-
hæð 210 cm.
Brjósthæðir glugga voru ákveðnar:
0 cm, 40 cm, 60 cm, 80 cm, 100 cm
og 180 cm.
Gluggahæðir voru ákveðnar: 60
cm, 120 cm, 140 cm, 160 cm, 180 cm
og 220 cm.
Samstæðar brjósthæðir og glugga-
hæðir voru valdar þannig: O-f-220
cm, 40—)—180 cm, 60+160 cm, 80+
140 cm, 80+160 cm, 100+120 cm,
100+140 cm, 180+60 cm.
Tímaritið ISnaSarmál
Útgáfu ritsins var hagað með svip-
uðum hætti og áður. Það flytur að
jafnaði greinar um innlendan og er-
lendan iðnað, þætti um tæknilegar
nýjungar, auk þess sem þar er greint
frá starfsemi stofnunarinnar. Á það
vinsældum að fagna bæði hér á landi
og erlendis, en enskur útdráttur fylg-
ir hverju hefti, sem sent er úr landi.
Er það sent fjölmörgum stofnunum
og aöilum erlendis, sem Iðnaðarmála-
stofnunin á að jafnaði samskipti við,
oft í skiptum fyrir önnur málgögn.
Síðasti árgangur, sem var hinn sjö-
undi í röðinni, var 120 bls. Áskriftar-
gjaldið kr. 100,00 hefur haldizt
óbreytt frá upphafi.
Fyrir þá, sem halda vilja ritinu
saman, hafa verið gerðar sérstakar
möppur, og rúma þær ritiö allt fram
til ársins 1965. Nokkur hefti ritsins
eru nú á þrotum, og er búizt viÖ, að
nýir áskrifendur geti aðeins fengið
það frá upphafi til miðs árs 1961.
Tæknibókasafn IMSÍ
í byrjun ársins voru skráðar bæk-
ur og rit 1973, en í árslok 2409. Fjölg-
unin var því 437 bækur og rit. Á ár-
inu var gerð viðbótar-bókaskrá yfir
þær bækur, sem bætzt höfðu í safnið
á tímabilinu apríl 1959 til september
1960. Þessari skrá, sem inniheldur 6
—7 hundruð titla, var dreift til nokk-
uð á annað þúsund aðila, en auk þess
fékk hver nýr meðlimur safnsins eitt
eintak. í árslok voru meðlimir safns-
ins orðnir tæplega 200 að tölu. Útlán
á árinu námu á annað þúsund bókum
og ritum. Notendur safnsins eru úr
flestum stéttum, meðal annarra verk-
fræðingar, iðnaðarmenn, iðnrekend-
ur, verzlunarmenn o. fl. Fjölda gesta
safnsins var leiðbeint af verkfræðing-
um stofnunarinnar í sambandi við
ákveðin vandamál, enda gegnir það
mikilvægu hlutverki í tækniupplýs-
ingaþjónustu stofnunarinnar.
Leiðbeiningar eru einatt látnar í
té um kaup og val tæknilegra bóka,
m. a. til bókasafna úti á landi. Um
áramótin var í undirbúningi að ráða
fastan bókavörð, þannig að safnið
yrði opið 32 klst. í viku.
Tæknikvikmyndasafn
Eins og undanfarin ár hafa ýmsir
aðilar, m. a. iðnaðarmannafélög, iðn-
skólar og fyrirtæki, notið fyrir-
greiðslu um lán á kvikmyndum og
sýningarvélum, sem eru í eigu stofn-
unarinnar. Hafa myndir verið sendar
um allt land, og hefur eftirspurn farið
vaxandi. Nýtur stofnunin mjög náins
samstarfs við kvikmyndadeild Fram-
leiðniráðs Evrópu í París, sem lánar
að jafnaði myndir til stofnunarinnar
og hefur á hendi ýmiss konar fyrir-
greiðslu um útvegun og kaup á mynd-
um.
Nokkrar myndir hafa bætzt við
safnið á árinu, og eru nú í eigu þess
um 100 myndir, þar af rúmlega þriðj-
ungur með íslenzku tali, sem hefur
verið segulhljóðritað á þær. Funda-
og fyrirlestrasalur stofnunarinnar er
einatt lánaður út til ýmiss konar
fræðslustarfsemi.
Onnur starfsemi
Að ósk iðnaðarmálaráðherra gerði
stofnunin tillögur í formi lagafrum-
varpa í septemberbyrjun um: A —
löggildingu bifreiðaverkstæða, B —
verkstjóranámskeið, C — lög um Iðn-
aðarmálastofnun íslands. Voru laga-
frumvörp um þessi mál borin fram á
síðasta Alþingi.
Ýmis mál, sem lögð voru fyrir Al-
þingi á árinu, voru send stofnuninni
til umsagnar.
Auk áðurgreindrar fræðslustarf-
semi voru haldnir nokkrir fyrirlestrar
á árinu á vegum stofnunarinnar (sjá
Iðnaðarmál).
Á síðari hluta ársins var unnið að
undirbúningi félags um stjórnunar-
mál, og var Iðnaðarmálastofnunin
einn þeirra aðila, sem gengust fyrir
stofnun þess um s.l. áramót. Á frkvstj.
stofnunarinnar sæti í stjórn félagsins.
Er greint frá stofnun félagsins og til-
gangi þess í Iðnaðarmálum (sjá 1.
hefti 1961).
Dagana 27. og 28. júní var haldinn
í Reykjavík 6. Norræni öryggiseftir-
litsfundurinn, og mætti frkvstj. IMSI
sem fulltrúi stofnunarinnar í boði Or-
yggiseftirlits ríkisins.
Ofangreindar upplýsingar um starf-
semi Iðnaðarmálastofnunar íslands
s.l. starfsár verða látnar nægja, en
eins og bent var á í upphafi, geta þeir,
sem óska eftir að fá skýrsluna í heild,
snúið sér til stofnunarinnar í því
skyni. S. B.
Misskilin vinnurannsóknartœkni.
90
IÐNAÐARMÁL