Iðnaðarmál - 01.05.1961, Qupperneq 20

Iðnaðarmál - 01.05.1961, Qupperneq 20
NYTSAMAR NYIUNGAR Börustigi Hér sjáum við tæki, sem ætti að geta komið að góðu gagni við vöru- meðhöndlun í geymsluhúsum: hand- vagn, sem breyta má í stiga með einu auðveldu handtaki. Tækið er gert úr stálpípum og vegur 19 kg. Burðarþol er 250 kg, og efsta þrepið er í 83 cm hæð yfir gólffleti. Framleiðandi er Tube Plastics Ltd., Cradley Ileath, Staffs., Bretlandi. — Úr „Mass Production" apríl 1961. — DSIR Technical Dieest nr. 1368. Rafnmagnsstraumur flýtir fyrir storknun steinsteypu Aðferð, sem getur sparað sement og hraðað herzlu. Storknun steinsteypu er flókin efnastarfsemi. Hún hefst með því, að sementssteinefnin leysast upp í vatn- inu, sem bætt er í sementið. Storkn- un og herzla steypunnar á sér stað með vatnsbindingu (hydration) á hverj u laginu á fætur öðru af sements- ögnum. Þetta kemur fram í auknum styrkleika steinsteypunnar eftir því sem lengra líður. Mánaðargömul steinsteypa hefur 50% meiri styrk- leika en vikugömul, og eftir 6 mán- uði hefur styrkleikinn aukizt um 150%. Að vissu leyti verður herzlan aldrei algjör, þar sem hörð vatnshúð (hydrate film) getur myndazt utan um sementsagnir eins og nokkurs konar dós, sem ver ögnina fyrir vatni. Kunnugt er, að rafstraumur hefur áhrif á steinsteypu, og gerð hefur ver- ið rannsókn, sem miðar að því að flýta fyrir storknun steypunnar með því að beita rafstraumi, eftir að steypan hefur verið lögð. Sementsleðja er rafleiðir af upp- lausnargerð, og jafnstraumur í henni veldur rafhræringum (electrolysis) í vatninu. Þessi áhrif rjúfa sundur „dósirnar“, sem myndazt hafa kring- um sementsagnirnar og greiða þannig fyrir því, að bindikraftur sementsins nýtist að fullu. Myndin sýnir meginatriði aðferð- arinnar. Jafnstraumi frá rafal (1) er beitt á elektróðurnar (6) á steypu- hlutanum (5). Hægt er að breyta stefnu straumsins með rofa (4). Tíðni straumbylgnanna og varanleiki eru komin undir gerð stevpublönd- unnar og stærð steypuhlutans. Prófanir, sem gerðar hafa verið á steypuhlutum við Woskressenski- verksmiðjuna (U.S.S.R.) leiddu í ljós, að steypa, sem hlotið hafði raf- straumsmeðhöndlun, byrjaði að storkna einni mínútu eftir að hún var lögð, og var orðin þétt eftir 9 mínút- ur, en tilsvarandi tölur fyrir steypu, sem enga slíka meðhöndlun hafði hlotið, voru 42 mínútur og 12 klst. og 48 mín. Rafstraumsmeðhöndlun í 30 mín- útur jók styrkleika steypunnar um 50%, og sýnishorn, er framleidd voru úr steypublöndu, sem hafði 25% minna sementsinnihald, reyndist hafa meiri styrkleika en venjuleg steypu- sýnishorn. Upplýsingar þessar byggjast á grein eftir A. Perwowski í rússneska tímaritinu „Iso- bretatel i Rationalisator“, nr. 5 1960. Þýzk þýðing í „Die Presse der Sowjetunion“ (A.- Þýzkalandi), nr. 124, 1960. — E.T.D. nr. 4408. Plasthúðun hylur steinsteypufleti Vinyl-húð, um 1 mm á þykkt, hefur verið sprautað á stóra flugvallarbygg- ingu á alþjóðlega flugvellinum í Los Angeles. Húðin veitir bvggingunni heildarsvip, eins og hún væri mótuð 98 IÐNAÐARMÁL

x

Iðnaðarmál

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Iðnaðarmál
https://timarit.is/publication/1105

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.