Iðnaðarmál - 01.05.1961, Side 22
nægilegri hörku og viðeigandi hlutir
eru látnir í götin, og útilokar það öll
óhreinindi.
Til að forma keilumynduð göt fyr-
ir undirstöðubolta eru notaðir keilu-
laga pokar. Þetta á líka við um göt,
þar sem boltinn er stilltur inn í á eftir
og gatið síðan fyllt með steypu (mynd
2).
Fyrir undirstöðubolta, sem komið
er fyrir í stöðu sinni, áður en steyp-
unni er hellt í, hafa verið gerðir keilu-
laga pokar, sem smeygt er yfir bolt-
ana og fyltir sandi, þannig að trekt-
mynduð skál mótast í steypuna kring-
um efri hluta boltanna. Á þennan hátt
fæst svigrúm fyrir endurtekna hliðar-
stillingu boltanna.
Framleiðandi er Shell Netherlands Re-
fineries Ltd., Postbox 644, Rotterdam, Hol-
landi. — Úr „Plastica“ (Hollandi) nr. 8,
1960. — E.T.D. nr. 4330.
Segulmagnað
skorðunartæki
„Trolley“-tæki, sem til þess er ætlað
að draga úr vinnukostnaði með því
að afnema dýrt undirbúningsstarf
við skipabyggingar og önnur verk
við stálplötusmíðar.
Við skipabyggingar hefur það
tíðkazt að sjóða saman bráðabirgða-
þá þurft að sverfa burt gömlu logsuð-
brýr milli þverbanda og málmplatn-
anna til að auðvelda verkið, og hefur
una, eftir að bráðabirgðabrúin hefur
verið fjarlægð.
Til að losna við svo dýran undir-
búning og festingu á vélskorðum, hef-
ur verið gert vökvaknúið, segulmagn-
að „trolley“-tæki. Það er með tveim-
ur öflugum segulstykkj um og vökva-
lyftibúnaði og getur framkallað allt
að 5 smálesta þrýsting. Það er útbúið
með stillanlegri brú til að samhæfa
það við þverbönd eða stálgrindaum-
gjörðir (joists) allt að 191/} þuml. á
hæð. Sérstakur þrýstimælir, sem
tengdur er við vökvakerfið, sýnir
samloðunarstig milli plötugerða af
mismunandi þykkt.
Notkun tækisins við skorðun á
böndum og plötum er sýnd á myndun-
um 1 og 2. Auðvelt er að beita tæk-
inu. Einn maður getur ekið því að
verkefninu, sett straum á segulstykk-
in og beitt vökvalyftinum til að rétta
plöturnar í beina línu, þrýsta þver-
böndum í rétta stöðu o. s. frv. á að-
eins örfáum mínútum. Engin tíma-
frek undirbúningsvinna er nauðsyn-
leg. Við skorðun á stálbitaumgjörð-
um, þverböndum, uppistöðustykkjum
og réttingu á plötustykkjum fyrir log-
suðu er talið, að með tæki þessu megi
ná allt að 40% vinnusparnaði.
Þótt tækið sé upphaflega ætlað fyr-
ir skipasmíðastöðvar, má nota það
við margvísleg önnur stálplötuverk.
Framleiðandi er Melbro Machine Tools
Ltd„ Melbro House, 2A Alexandra Road,
Manchester 15, Bretlandi. — Úr „Mass
Production", jan. 1961. — E.T.D. nr. 4394.
„Bonus"-klukka
íyrir ákvæðisvinnu
Stuðlar að aukinni framleiðni og
bættum samskiptum verkamanna og
stjórnenda við margs konar iðnað í
fjöldaframleiðslu með því að mæla
og sýna samanlagðan „bonus“-hagn-
að starfsmanna við hin einstöku
verk.
Við endurtekningarstörf í iðnaði
er algengt að greiða starfsmönnum á
ákvæðisvinnugrundvelli. Staðaltími
og taxti er ákveðinn til að ljúka verk-
inu, og sé það leyst af hendi á styttri
tíma, greiðist uppbót eða „bonus“.
Erfiðleikar, sem fram koma við
framkvæmd kerfisins, geta leitt til
þess, að slæmur andi verði ríkjandi
milli starfsmanna og stjórnenda. Það
er erfitt að meta nákvæmlega réttindi
eða kröfur til uppbóta, þannig að
starfsmaðurinn sannfærist um, að
það sé heiðarlega gert, og það er líka
erfiðleikum bundið að gefa starfs-
manninum stöðuga vitneskju um,
hvort hann vinnur sér inn uppbætur
-—- ef afköst hans minnka, getur liðið
nokkur tími, áður en honum verður
sú staðreynd ljós. Og það er heldur
ekki auðvelt að ákveða nákvæmlega
— og með augljósari óhlutdrægni —
staðaltímann, sem taxtinn byggist á.
Til að leysa úr þessum vandamálum
hefur verið gert samþjappað og traust
mælitæki. Það er samsett af klukku-
gangverki og hefur:
a) Taxtaskífu, sem staðaltíminn er
settur á.
b) „Bonus“-skífu, þar sem vinnu-
tíminn er sýndur, ýmist yfir eða und-
ir staðaltíma, á hvaða tíma sem er,
eftir að verkið er hafið.
c) Grænt og rautt Ijós, sem á á-
kveðnum tíma gefur vísbendingu um,
hvort starfsmaðurinn sé „í bónus“
eða „utan við bónus“.
d) Endurstillanlegan teljara, er
sýnir samanlagðan fjölda þeirra
100
IÐNAÐARMÁL