Iðnaðarmál - 01.05.1961, Page 23
starfsathafna, er leystar hafa verið af
hendi.
Tækið er stillt á núll við byrjun
vinnuvaktar og síðan „hleypt af“ við
byrjun hvers verks — á sjálfvirkan
hátt, ef unnt er — eða með því, að
starfsmaðurinn þrýstir á hnapp, ef
starfið er þess eðlis, að það leyfi ekki
sjálfvirka ræsingu. A hvaða tíma sem
er, meðan á vinnuvaktinni stendur,
getur annaðhvort starfsmaðurinn eða
verkstjórinn séð á augabragði, hve
mikil uppbótin er orðin. Við lok
vinnutímans liggur heildartalan fyrir
þegar í stað.
Starfsmanninum er Ijóst, hvernig
niðurstöðutalan er fengin, og stjórn-
endur fyrirtækisins þurfa ekki að
eyða tíma skrifstofuliðsins í að láta
framkvæma frekari útreikninga.
Það hefur komið í Ijós, að með
tæki þessu hefur ekki aðeins tekizt að
bæta samskiptin og draga úr skrif-
stofuvinnu, heldur og að auka fram-
leiðni, þar sem það hefur örvandi
áhrif á starfsmanninn að geta séð
uppbótaskífuna læðast áfram, og auk
þess fær hann öfluga hvatningu til að
herða sig, þegar rauða Ijósið gefur
honum viðvörun um, að hann hafi
slakað á afköstunum.
Þegar tækið var tekið í notkun hjá
vinnuflokki, sem vann við að straua
skyrtur í þvottahúsi, jukust afköstin
um 22%. Þrjár vanar stúlkur höfðu
að meðaltali uppbótartölu 67, þ. e.
þær afköstuðu 67 sekúndna vinnu-
virði á einni mínútu og hlutu 7 sek. í
„bonus“. Jafnskjótt og tækið hafði
verið sett upp, komust þær yfir upp-
bótartöluna 80 að meðaltali.
Framleiðandi er D. Robinson and Co. 5
—7 Church Road, Richmond, Surrey, Bret-
landi. — Ur „Process Control and Auto-
mation“, jan. 1961. — E.T.D. nr. 4389.
Sjálfvirk efnisinngjöf
í trésmíðavélar
Það vill verða erfitt að ná fyrsta
flokks árangri með einföldum, vél-
knúnum trésmíðavélum, vegna þeirra
takmarkana, sem efnisinngjöf með
handafli hefur í för með sér. Algjör-
lega sjálfvirkar vélar skila betri á-
rangri vegna þess, hve efnisinngjöfin
til þeirra er j öfn, en þær eru allmiklu
dýrari.
Nýlega hefur verið gerður sjálf-
virkur útbúnaður til að tengja við
einföld, vélknúin áhöld. Utbúnaðinn
má festa við spinnil eða yfir sög, eins
og myndimar sýna, og dregur hann
timbrið í gegn með drifkrafti hverfi-
keflanna. Þrýsting og hraða hverfi-
keflanna er hægt að stilla við hæfi
þess verks, sem unnið er að. Á þenn-
an hátt má ná sambærilegum vinnslu-
árangri við þann, sem venjulega fæst
með miklu dýrari útbúnaði.
Framleiðandi er Trend Industrial Equip-
ment Ltd., 77 & 95 Dudden Hill Lane, Lon-
don N.W. 10. — Ur „Production Equip-
ment Digest", febr. 1961. — DSIR Techni-
cal Digest nr. 1318.
Hentug pípusamtenging
Nýlega hefur komið fram á sjónar-
sviðið einfalt tengikerfi, sem gerir
kleift að byggja upp úr stöðluðum
pípum með því að nota aðeins fimm
grundvallartengieiningar, án nokk-
urra séráhalda.
Ur pípum, sem tengdar eru saman
á þennan hátt, má gera hillur í vöru-
geymslur, standgrindur, vinnubekki
eða búðarinnréttingar. Notandinn
getur fengið nægar tengieiningar til
að nota á sínar eigin pípur, eða full-
komna pípusamstæðu, sem hægt er að
afgreiða í samanfelldu ástandi til upp-
setningar á staðnum.
Myndin af T-samtengingunni skýr-
ir grundvallarregluna, sem byggt er á.
í öllum tilfellum er séð fyrir því, að
samþrýstikraftur, er verkar á einn
hluta samskeytanna, gefi útþenslu-
kraft til annarra hluta þeirra. T-tengi-
stykkinu er fyrst rennt upp á eina
pípuna, sem veldur því, að hornrétti
hluti tengistykkisins opnast. Síðan er
honum þrýst saman með sjálflokandi
skrúflykli og stungið inn í hornréttu
pípuna. Þegar hann hefur verið rek-
inn inn, t. d. með mjúkum hamri,
myndast örugg tenging.
Frandeiðandi er Access Equipment Ltd.,
Maylands Avenue, Hemlet Hempstead,
Herts, Bretlandi. — Ur „Production Equip-
ment Digest“, íebr. 1961. — DSIR Techni-
cal Digest nr. 1325.
IÐNAÐARMÁL
101