Iðnaðarmál - 01.05.1961, Qupperneq 27

Iðnaðarmál - 01.05.1961, Qupperneq 27
Rafhitabönd Rafmagnshitun með vafningum utan um pípur og ílát er algeng, en venjulega eru þessir vafningar gerðir af vírgormum sem rafhitamótstöðu. Með því að nota flatar leiðslur í stað vírgorma fæst fljótvirkari og betri hitaflutningur jafnhliða því, sem ele- mentin eru fyrirferðaminni. Hér á eftir er þremur slíkum rafhitabönd- um lýst lauslega. Fyrsta rafhitabandið „Thermofoil“ er gert af ca. % mm þykkri málm- ræmu og j4o mm rafeinangrunarlög- um sitt hvorum megin á ræmunni. Rafmótstaðan í málmræmunni er mjög mikil eða allt að 80 ohm pr. cm2, og getur ræman þolað allt að 2 watt pr. cm2 rafhitun við ca. 90°C hita. Rafhitaband þetta er flatt og sveigjanlegt og má leggja beint á sí- vala hluti (pípur, ílát o. s. frv.) án þess að nota límingu. Eins er unnt að fá með þessum einangruðu málm- ræmum þunn límbönd, sem vafin eru utan yfir hitaræmuna til að tryggja varanlega og þétta snertingu ræm- unnar við yfirborð hlutar þess, sem hita skal. Þar sem aðeins Y20 mm einangrun- arlag skilur hitaelementið frá yfir- borði hins sívala hlutar, þá verður hitaflutningur bæði góður og hraður. Rafhitaræmur þessar má gera af óvenjulegri lögun, svo að þær megi nota til að beina hita á viss svæði sléttra eða sívalra hluta. 1. mynd sýn- ir ræmuna utan um pípuhólk. Framleiðandi hitaræmunnar Thermofoil er: Mino Products Inc., 740 Washington Ave. North, Minnea- polis 1, Ma., U.S.A. Annað rafhitabandið er brezkt, og er grunn-elementið gert af sex sam- hliða, þunnum málmrenningum, ein- angruðum með þunnu lagi af plasti. Bandið er 2% cm á breidd og aðeins 0,6 mm á þykkt. Slík bönd eru mjög hentug til nota á tilraunastofum og öðrum svipuðum stöðum fyrir hitun í allt að 110°C. Það er sýnt til vinstri á 2. mynd. Til frekari varnar á pípum o. fl. í iðnaði og við svipaða notkun er bandið fáanlegt í slíðrum úr glervefi, og er það sýnt á 2. mynd miðri. Ef upphitunin þarf að vera meiri eða allt upp í 450°C, þar sem plast- húðunin dugar ekki, þá er notuð þre- föld hlíf úr glervef á bandið, eins og sýnt er á 2 mynd til hægri. Framleiðandi þessara rafhitunar- banda er: The Midland Electric In- stallation Co. Ltd. Cyprus Works, Upper Villier Street, Wolverhampton, Englandi. Þriðj a rafhitabandið er sérstaklega ætlað fyrir hitun á stáltunnum, sem hafðar eru undir seigfljótandi efni eða storkin efni eins og vax, asfalt og jarðbik. Rafhitarinn er eins og sver gjörð í laginu, og má smella henni yfir tunn- una, en sterkur gormur heldur band- inu þétt að tunnunni. Ef aðeins á að losa hluta af innihaldi tunnunnar, þá er nægilegt að nota eitt hitaband ofarlega á tunnunni. Síðan má bæta öðrum við, ef bræða þarf allt inni- haldið. Þetta er sýnt á 3. mynd, þar sem þrír hitarar eru notaðir. Framleiðandi þessa tunnu-rafhita- bandaer: Electrothermal Engineering Ltd., 270 Neville Road, London, E.7., Englandi. Framh. af 87. bls. C. Ymsar byggingapappavörur. D. Límdar flísaplötur: Áætlaður rekstrark. 1 vinnuvakt — árs- framleiðsla 530 tonn. E. Sameinuð flísaplötu-harð- plötuverksmiðj a. VII. Niðurstaða. í niðurlagi skýrslunnar er bent á, að hún sé tekin saman með það fyrir augum að koma upplýsingum og at- hu gunum IMSÍ um þetta mál á fram- færi við þá, sem kynnu að hafa áhuga á því. Er tekið fram, að þeim sé heim- ilt að notfæra sér þær upplýsingar, sem fram koma í skýrslunni, og að stofnunin muni fús til að aðstoða þá eftir beztu getu við frekari öflun upp- Iýsinga, sem áhuga hafa á að kvnna þér þetta mál frekar. Þeir, sem áhuga hafa á að kynna sér skýrsluna, eru beðnir að snúa sér til Iðnaðarmálastofnunar Islands. S. B. IÐNAÐARMAL 103

x

Iðnaðarmál

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Iðnaðarmál
https://timarit.is/publication/1105

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.