Franskir dagar - 01.07.2014, Blaðsíða 12
ntMMDflGAIt ~LE,JOUE>FItflipB
Texti: GísliJ.Jónatansson Jyrrv. kaupfélagsstjóri
Myndir: Jónína Óskarsdóttir og úr einkasafni
imurrÉLfiG FfiMútófimnGfi
1933-2013
Stiklað á stóruyfir starfsemi félagsins
Sigrún Guðlaugsdóttir og Gtsli Jónatansson.
Kaupfélag Fáskrúðsfirðinga var stofnað 6. ágúst
1933 í samkomuhúsinu Alfheimum á Búðum,
sem nú heitir Kirkjuhvoll eða Skólavegur 71.
Aðal hvatamenn að stofnun félagsins voru Björn
Ingi Stefánsson,prestssonur frá Hólmum í Reyð-
arfirði, nýútskrifaður úr Samvinnuskólanum, og
Þórarinn Grímsson Víkingur bóndi á Vattarnesi.
Þetta var þriðja tilraun sem gerð var til að koma
á fót kaupfélagi á Fáskrúðsfirði.
Stofnfúndurinn var nokkuð sögulegur og segir
Björn svo frá honum í viðtali við Samvinnuna
á sínum tíma: „Þegar fundurinn á að hefjast
kemur í ljós að ekki eru mættir nema 17 menn,
en stofnendur þurftu að vera 21 minnst. Eg
geng sjálfur í félagið sem átjándi maður og á
elleftu stundu kemur Stefán Þorsteinsson, sem
kvæntur var föðursystur minni, - eins og sending
af himnum ofan. Þá vantaði enn tvo stofnendur,
en Stefán tilnefndi tvo syni sína - og þar með
var talan komin.“ Þessir tveir synir Stefáns, sem
gerðu stofnun félagsins mögulega, voru Björn -
síðar kaupfélagsstjóri á Stöðvarfirði, Siglufirði
og Egilsstöðum og Þórsteinn - síðar þekktur
rithöfúndur í Danmörku. Þá má geta þess að
6 stofnfélaganna voru bræður, synir Stefáns og
Guðfinnu á Gestsstöðum.
Björn Ingi Stefánsson gerði ráð fyrir því að hverfa
á brott eftir stofnun félagsins og fara til náms
erlendis. Félagsmenn tóku það ekki í mál. Þeir
sögðu honum að hann færi ekki neitt, hann væri
búinn að koma félaginu á laggirnar og hann yrði
fýrsti kaupfélagsstjórinn. Það varð úr og gegndi
hann starfmu fyrstu 13 árin eða til ársins 1946.
Björn var síðar starfsmaður Sambands íslenskra
samvinnufélaga í áratugi og var hann oft fenginn
sem kaupfélagsstjóri víða um land um lengri eða
skemmri tíma.
Fyrstu stjórn félagsins skipuðu: Þórarinn Gríms-
son V íkingur formaður, Björn Daníelsson kenn-
ari, Björgvin Benediktsson útgerðarmaður og til
vara Höskuldur Stefánsson bóndi í Dölum.
Starfsemi kaupfélagsins hefst með því að það
kaupir húseignir þær sem áður hýstu Hinar sam-
12
einuðu íslensku verslanir og
þar á meðal verslunar- og
íveruhúsið Tanga sem reist
var árið 1895 afTuliniusar-
verslun. Aðal hvatamaður
að byggingu Tanga var Carl
Andreas Tulinius sem verið
hafði verslunarstjóri á Fá-
skrúðsfirði í nokkur ár við
verslun föður síns Carls
Daníels sem búsettur var
á Eskifirði. I Tanga hefst
verslunarrekstur kaup-
félagsins, en einnig var íbúð
kaupfélagsstjórans í útenda
hússins á tveimur hæðum,
eldhús og stofur niðri og
svefnherbergin uppi. Búið
var í Tanga til ársins 1946
að Björn Stefánsson lætur
af störfúm. Kaupfélagsskrifstofúrnar voru síðar
fluttar í stofurnar niðri í Tanga og var kaup-
félagsstjórinn í borðstofúnni, en almenna skrif-
stofan í betri stofúnni og litla kontór. Þarna voru
skrifstofúr félagsins til ársins 1966, en þá voru
þær fluttar í Félagsheimilið Skrúð í kjallarann
að innanverðu.
I fyrstu var starfsemi kaupfélagsins bundin við
verslunina. Slátrun og sala landbúnaðarafúrða
hefst þó strax á árinu 1934, en þó nokkur tími
leið þangað til að bændur voru allir komnir í við-
skipti við félagið. Slátrað var í eigin húsum, en
eftir stríð var herbraggi reistur neðan við Tanga
sem sláturhús. Árið 1963 var reist nýtt sláturhús
á uppfyllingu neðan við Wathneshús og þar var
slátrað til ársins 1989.
Á upphafsárunum fer kaupfélagið að kaupa
saltfisk af útgerðarmönnum og sjá um sölu á
honum. Upp úr því er farið að kaupa fisk til
verkunar og var hann saltaður í húsunum sem
keypt voru í upphafi með verslunarhúsinu Tanga.
Á þessum tíma var erfitt að losna við afúrðirnar,
enda kreppan í algleymingi. Þetta er samt upp-
hafið af sjávarútvegsstarfsemi kaupfélagsins.
Árið 1940 hefúr Kaupfélag Fáskrúðsfirðinga
forgöngu um stofnun Hraðfrystihúss Fáskrúðs-
fjarðar hf. og er þar stærsti hluthafinn á móti
nokkrum hópi útgerðarmanna. Þetta félag var
samrekið kaupfélaginu í 54 ár og kaupfélags-
stjórinn jafnframt framkvæmdastjóri þess, að
undanskyldum þremur árum í upphafi starfs-
tímans er Vilhjálmur Björnsson gegndi starfi
framkvæmdastjóra, en Björn Stefánsson var þá
formaður stjórnar. Keyptar voru eignir Jökuls hf.
á Fiskeyri sem var beitufrystihús með ístjörnina
við vesturhlið hússins. Félagið byggir við þetta
hús og byrjar hraðfrystingu sjávarafúrða smttu
seinna eða eftir að Yorkinn hafði verið settur
niður, en það er fyrsta frystivélin á Fáskrúðsfirði.
Eftir stofnun Hraðfrystihúss Fáskrúðsfjarðar
hf. var saltfiskframleiðsla einnig aukin jafnt og
þétt og stóð yfir í áratugi hjá félaginu. Hráefnið
kom af heimabátum og síðar einnig frá togur-
unum Austfirðingi og Vetti. Kaupfélagið átti 5%
eignarhlut í Austfirðingi hf., en með þessum 5%
var Austfirðingur leystur út frá Selby á Englandi