Franskir dagar - 01.07.2014, Blaðsíða 40

Franskir dagar - 01.07.2014, Blaðsíða 40
rwucKiRDnom ~ usjouBrnnncnis Texti: Berglind ósk Agnarsdóttir Myndir: Ymsir <^x >ocx SLMVMnfiDEILDm »Þœr skemmtu sér við samtöl og kaffidrykkju" (úrfundargerð 1944) Þessi mynder tekin á nýársdag 1976. Neðri röðfrá vinstri: OddnýJónsdóttir ritari, Sigrún Sigurðardóttir formaður og Lára Hjartardóttir gjaldkeri. Efri röð frá vinstri: Alberta Sigurjónsdóttir meðstjómandi, Sóley Sigursveinsdóttir varaformaður og Sigrtður Jónsdóttir meðstjómandi. Slysavarnadeildin Hafdís var stofnuð á Fá- skrúðsfirði 25. apríl 1935 og mun því fagna 80 ára afinæli á næsta ári. Hefur lífsganga þessa félagsskapar einkennst af dugnaði, samhug og ósérhlífiii allar götur síðan. Enn þann dag í dag vinna ötular félagskonur í Hafdísi að bættum slysavörnum og bættu samfélagi. Slysavarnadeildin Hafdís var stofnuð með það að leiðarljósi að vinna að forvörnum gegn slysum til sjós því að í upphafsgöngu Slysavarnarfélags íslands (stofnað 1928) laut aðal markmiðið að sjómönnum og þeirra aðbúnaði. Þá voru slys til sjós algeng og oftar en ekki mannskæð. Fljótlega kom þó fram vilji og áhugi fyrir því að nota krafta og fjármuni deildarinnar til að bæta samfélagið í heild sinni, styrkja það og efla með margvís- legum hætti. Stofnfundur Slysavarnadeildarinnar Hafdísar var haldinn í Alfheimum, sem er núna íbúðarhúsið að Skólavegi 71, en var árið 1935 félagsheimili stúkunnar Eldingar, 25. apríl 1935 og mættu 42 konur á fundinn. Fyrsti formaður deildarinnar var kjörin Rósa Þorsteinsdóttir. Á næsta fimdi var deildinni gefið nafnið Hafdís. Strax var farið að velta vöngum yfir fjáröflunarleiðum, því að víða var peninga þörf. Vangaveltur sem þessar eru enn í fúllu gildi. I gegnum áratugina hafa fjár- öflunarleiðir félagskvenna Slysavarnadeildarinnar Hafdísar einkennst afmiklu hugmyndaauðgi og á stundum frumleika. Allar fimdargerðabækur deildarinnar eru til og í þeim felst mikill auður. Þar er að sjálfsögðu hægt að lesa um allt starf deildarinnar en þar er líka að finna svo mikla samtímasögu. Hægt er að lesa um ástandið í atvinnumálum, félagsmálum og almennt um tíðaranda hvers tíma. Þá má líka sjá á þessum bókum hvernig tungumálið hefur þróast og breyst t.a.m. nota þær orðið „fjelagið” óspart þegar vísað er til Slysavarnadeildarinnar Hafdísar. Þá nota þær orðið „árstillag” þegar þær vísa í það sem við í dag myndum kafla ár- 40 gjald eða félagsgjald. Og svona mætti lengi telja. Þá má gjarnan minnast á flámælsk- una sem kemur glögglega fram, sér í lagi hjá einum ritara deildarinnar sem ritaði fimdargerðir í u.þ.b. 16 ár frá árinu 1946. Hún skrifar „Slesavarnardeild” „belaður” og kon- urnar tóku í „spel”. Þessi ritari dró fall - ega til stafs, ritaði greinagóðar og skýrar fundargerðir en var flámælskan svo töm að hún kom fram í riti. Þá má hrósa öllum þeim ritumm sem hafa án undantekninga skrifað góðar fundargerðir, því eins og svo margt annað, verða þær dýrmætari eftir því sem tíminn líður og þá eru smáatriðin og nákvæmnin mikilvæg. Til dæmis höfðu ritarar deildarinnar lengi vel þann háttinn á að þær skrifuðu upp í fundar- gerðabók öll bréf sem deildinni bámst. Þannig er hægt að lesa bréf frá Slysavarnafélagi íslands til deildarinnar 79 ár aftur í tímann. Félagskonur Hafdísar hafa verið duglegar að halda fundi. I byrjun vom fundir haldnir ýmist í Alfheimum, eða í heimahúsum og er gaman að mörg þeirra húsa sem nefnd em í gömlum fimdargerðabókum standa enn þó að önnur séu horfin. Má nefna hús sem enn standa sem hýstu fundi Hafdísar eins og Ásgarður, Ásbrú, Valhöll, Templarinn og Kaupvangur. Húsfreyjur þessa húsa vom félagskonur og buðu heimili sín undir fundi þar til að þeim bauðst að halda fundi í Barnaskólanum. Um margra ára skeið vom fundir svo haldnir í Skrúði og nú hin síðari ár í húsnæði sem félagið á ásamt Björgunarsveitinni Geisla og Rauða kross deild Fáskrúðsfjarðar að Óseyri. Hefðbundin fundarsköp hafa ávallt verið viðhöfð á fundum Hafdísar, þ.e. fundarstjóri stjórnar fundinum, konur óska eftir því að taka til máls og bera fram tillögur að starfi o.s. frv. en í þessu má líka sjá þróun. I árdaga deildarinnar sungu félagskonur gjarnan sálm í upphafi eða enda funda, og í fundargerðum er tekið fram hvaða sálmar urðu fyrir valinu. Þá sungu þær gjarnan sálm ef dauðaslys hafði orðið eða félagskona látist. Enn þann dag í dag sýna félagskonur Hafdísar látnum virðingu sína með því að rísa á fætur á fundum og lúta höfði. Þá vildu félagskonur gjarnan hafa eitthvað í lok fúnda til þess að skemmta sér yfir. Leiða má h'kum að því að á fyrri hluta síðustu aldar hafi húsfreyjur á Fáskrúðsfirði ekki tekið mikinn tíma í mas og skemmtun þannig að þegar þær fóm að heiman var upplagt að sitja fyrst fúnd og síðan að skemmta sér. Skemmtunin sem í boði var segir

x

Franskir dagar

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Franskir dagar
https://timarit.is/publication/1108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.