Franskir dagar - 01.07.2014, Blaðsíða 13

Franskir dagar - 01.07.2014, Blaðsíða 13
ntmntDM ~ LEJOUErmncms Hoffell SU 80 með um 1300 tonn af kolmunna. á sínum tíma. A þessum tíma var m.a. starf- andi Samvinnufélag útgerðarmanna sem gerði út bátana Öldu, Báru og Hrönn, en þeir voru byggðir á Oddaverkstæðinu undir stjórn Einars Sigurðssonar, skipasmiðs. Bátunum tók að fækka og var þá talið nauðsynlegt fyrir Hraðfrystihús Fáskrúðsijarðar hf. að hefja útgerð. Arið 1953 var vélbáturinn Ingólfiir leigður frá Hornafirði um tíma, en fyrsti báturinn sem að hraðfrystihúsið keypti var Ingjaldur SU 80. Það var 50 tonna bátur keyptur frá Danmörku árið 1954. Arið 1955 lætur fyrirtækið svo byggja 67 tonna stálbát í Hollandi, BúðafeU SU 90. Um þetta leyti eru shkir bátar að ryðja sér til rúms og er Búðafell annar í röðinni af minni stálskipum íslendinga sem kemur til landsins og reyndist mikið happa- skip. Um miðjan sjöunda áratuginn var Búðafell selt til Grindavíkur og fékk nafnið Hópsnes. Árið 1942 kaupir kaupfélagið húseignina Valhöll. Félagið rak þar í fyrstu saumastofu, en síðar var húsið gert að gistihúsi með matsölu. Um tíma rak kaupfélagið bókabúð í Valhöll. Síðustu ára- tugi hefur húsið verið notað fyrir starfsfólk og viðskiptavini kaupfélagsins og dótturfélaga þess. Árið 1949 kaupir kaupfélagið húseignir Hans Stangelands. Þar var um að ræða íbúðarhúsið Miðströnd og Hlaðhamar sem var lifrarbræðsla. Miðströnd var í fyrstu bústaður kaupfélagsstjór- ans eða til ársins 1965 að kaupfélagsstjórinn flytur í nýbyggt hús, Tröð. Skrifstofur kaup- félagsins voru á Miðströnd frá 1972 til 1985 að þær em fluttar að Skólavegi 59. Miðströnd stóð skammt fyrir innan nýju fiskimjölsverksmiðjuna. Vélaverkstæðið var svo byggt á sama stað og Hlaðhamar stóð. Árið 1951 er byrjað á byggingu fiskimjölsverk- smiðju utan við frystihúsið. Bygging þessi þótti mikið átak á sínum tíma, enda kölluðu gár- ungarnir hana milljónagryfjuna. Verksmiðjan skemmdist í bruna árið 1961 og var endurbyggð og afköstin aukin í um 250 tonn á sólarhring. Árið 1962 var byggð myndarleg mjölskemma austan við verksmiðjuna, en áður hafði þurft að geyma mjölið m.a. í kjöllurum húsa í bænum þegar mikið var framleitt. Verksmiðjan var í gangi til ársins 1996 og vom því í skamman tíma reknar tvær fiskimjölsverksmiðjur á Fáskrúðsfirði. Um svipað leyti og fyrri verksmiðjan er byggð er reist við frystihúsið fiskmóttaka og komið á fót ísfr amleiðslu og frystiklefa á efri hæðum hússins. Það hús stendur enn í dag og neðsta hæðin oft nefnd súlnasalur. Árið 1958 kaupir kaupfélagið Ljósafell eldra, sem var 100 tonna trébátur og fékk einkennisstafina SU 70. Árið 1959 kemur HofFell SU 80, 120 tonna stálbátur byggður í Noregi. Hoffell var tahð eitt fullkomnasta síldveiðiskip Islendinga við komu þess til landsins. Hoffell var síðar lengt á Seyðisfirði og varð þá 180 tonn og þótti afburða skip. Á sjöunda áratug síðustu aldar hófust síldveiðar í stómm stíl úti fyrir Austfjörðum, sem sköp- uðu mikil umsvif í austfirskum sjávarbyggðum. Kaupfélagið hóf þá síldarsöltun í samstarfi við Egil Guðlaugsson, en hann átti 1/3 í söltunar- stöðinni, sem í daglegu tali var kölluð SHF, en hét Söltunarstöð Hraðfrystihúss Fáskrúðsfjarðar. Á þessum tíma byggðist rekstur kaupfélagsins að miklu leyti á síldarsöltun og framleiðslu á mjöli og lýsi. Fiskimjölsverksmiðjan malaði gull á þessum árum og var oft á tíðum þungamiðjan í rekstri kaupfélagsins og dótturfélaga þess. Samið var um smíði á nýju sfldveiðiskipi í Noregi árið 1966 eða 1967. Þetta skip var svipað og Heimir SU sem keypt var til Stöðvarfjarðar og var í eigu Varðarútgerðarinnar, en vegna versnandi rekstrarskilyrða við hvarf sfldarinnar endaði þetta skip í Færeyjum. í staðinn var keyptur 250 tonna stálbátur frá Reykjavík árið 1969, Sigurvon RE 133, sem fékk nafnið Búðafell SU 90 á Fáskrúðs- firði. Saltað var örlítið af síld á haustdögum 1967 og 1968. Það vom síðustu síldarárin í bili. Síldin var horfin. Þegar sfldin hvarf af Islandsmiðum sköpuðust miklir erfiðleikar hjá þeim fyrirtækjum sem byggt höfðu afkomu sína að stórum hluta á henni. Starfsemi Kaupfélags Fáskrúðsfirðinga lá við gjaldþroti. Það var jafnvel talað um hvort mögulegt væri að fara í sameiningu við Kaup- félag Héraðsbúa til að bjarga starfseminni. En oft kemur skin eftir skúr. Það var einkum tvennt sem varð til þess að rekstr- inum var snúið til betri vegar fljótlega eftir að sfldin hvarf. Árið 1970 fara íslendingar að veiða loðnuna að einhverju marki og þá fer fiskimjöls- verksmiðjan að mala gull að nýju. I öðm lagi tók freðfiskurinn að hækka í verði á Bandaríkjamark- aði svo um munaði og fór framleiðslan á nýju og hærra verði með hverri sendingunni á fætur annarri vestur um haf. Árið 1972 var hafist handa við byggingu nýs frystihúss á Fiskeyri, sem tók til starfa í septem- ber árið 1976. Húsið er tæplega 2000 fermetra stálgrindarhús reist á uppfyllingu neðan við gamla frystihúsið. Nýr viðlegukantur var síðar byggður með allri suðurhhð hússins, svo að staðsetningin var mjög hagkvæm. Þar sem húsið var á uppfyll- ingu var nauðsynlegt að reka um 180 strengja- steypustaura niður í gmnninn, sem voru 12 til 18 metralangir. Hamarinn sem notaður var við verkið kom af Skeiðarársandi, en hann hafði áður verið notaður við að reka niður staura undir brúar- stólpaþar. Ríkisstjórn Olafsjóhannessonarhafði sett á fót sérstakan Byggðasjóð og búið var að setja í gang svokallaða hraðfrystihúsaáætlun. Byggða- sjóður lánaði 25% af heildarbyggingarkostnaði og var þetta viðbótarframlag á móti lánveitingum Fiskveiðasjóðs íslands. Án tilkomu Byggðasjóðs hefðu þessar framkvæmdir varla verið mögulegar. Samhliða byggingu frystihússins vom menn farnir að huga að því hvernig best mætti tryggja hráefni til frystihússins allt árið um kring. Ákveðið var að láta byggja skuttogara í Japan. Ævintýrið var að hefjast og skuttogarinn Ljósafell SU 70 kom til Fáskrúðsfjarðar 31. maí 1973. Njitt tímabil var hafið í sögu félagsins og samfélagsins á Fáskrúðs- firði. Með tilkomu Ljósafells og síðar systurskips þess Hoffells SU 80 þremur ámm síðar varð algjör bylting í atvinnumálum Fáskrúðsfirðinga. Nú voru komin til Fáskrúðsfjarðar atvinnutæki sem gám aflað hráefnis fyrir fiskvinnsluna allt árið um kring og ekki var lengur nauðsynlegt fyrir fólk að sækja atvinnu suður á land. Búðafell SU 90 (Sigurvon) var selt til Súgandafjarðar og þó að gengi á ýmsu með rekstur bátsins hafði hann hækkað það mikið í verði að við sölu hans fengust fjármunir sem dugðu til fyrstu greiðslu í Ljósafelli, sem var 10% af kaupverði togarans. Stöðugleikann í atvinnumálum Fáskrúðsfirðinga má tvímælalaust rekja til upphafs skuttogaranna. Á sjómannadaginn árið 2013 var þess minnst að 40 ár voru liðin frá komu Ljósafells. Skipið er í mjög góðu ástandi, en tvisvar sinnum hefur verið farið með það til Póllands og gerðar á því nauðsynlegar endurbætur, fyrst 1988-1989 og síðar 2007-2008. Þegar haldið var upp á 40 ára afmæh skipsins hafði það aflað 144.000 tonna og reynst einstakt happaskip. Á fjórum ámm höfðu því verið keyptir tveir nýir skuttogarar og byggt eitt stykki nýtísku frystihús. Samspil þessara þátta, togaranna og fiskvinnslunnar í landi, hefur frá þessum tíma verið hinn samfelldi drifkraftur starfseminnar, sem félagið býr að enn í dag. Skipstjórar á Ljósafelli hafa verið þrír: Guð- mundur ísleifur Gíslason 1973-1980, Albert Stefánsson 1981-1994 og Ólafur Helgi Gunn- 13

x

Franskir dagar

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Franskir dagar
https://timarit.is/publication/1108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.