Franskir dagar - 01.07.2014, Qupperneq 18
fmiMiD/m °o m jours rnnngnis
Ráðuneytið dregur þó lappirnar, vill fresta undir-
skrift þar til landlæknir sé búinn að fara austur,
skoða húsið og „íhuga málið vandlega", sem
hann og gerir. Og skrifar heimkominn: „Nú er
það eindregið álit mitt, að þetta tiltæki horfi til
mjög mikilla heilla fyrir Austurland, en muni
alls ekki baka ríkissjóði neinn aukakostnað enda
máske þvert í móti horfa til verulegs sparnaðar
frá því sem nú er, þegar á það er litið hver kostn-
aður hlýst af hverjum berklasjúklingi yfirleitt,
þeirra sem á sjúkrahús fara." Hann lýsir húsinu,
sem sé óskemmt af fua. Þurfi bara smáviðgerðir
innanhúss.
Landlæknir er spurður í skeyti hvort Fáskrúðs-
ijarðarspítali verði leigður, tilboðstíminn sé tak-
markaður. Síðar kveðst Courmont konsúll, vegna
dráttar á málinu, ekki geta skrifað undir nema
hann fái nýtt umboð sem hann hefiir skrifað
eftir til Frakklands. Nú biður landlæknir Georg
í símskeyti um að síma til franska spítalafélags-
ins og beita þar áhrifum sínum og í annan stað
að fá bestu menn í Austfirðingafjórðungi til að
síma stjórnarráðinu og greiða fyrir málinu. Sím-
skeytin ganga á milli. Georg er orðinn óþolin-
móður og segir: „Það er illt hvað þeir háu herrar
í stjórnarráðinu eru lengi að ákveða sig, þeir áh'ta
máske að hægt sé að opna spítalann um leið og
þeim þóknast að skrifa undir.” Það var auðvitað
ekki hlaupið að því. Svo telur hann upp það sem
þurfi að gera. Vonar hann að stjórnarráðið segi
nú bráðlega af eða á, líka vegna fólksins sem lifir
í voninni um að fá þarna berklaheimili.
Héraðslæknirinn Georg virðist sleginn þegar
fréttist að ríkið sé hætt við. Og ekki síður þegar
hann er beðinn um að útvega líka tilboð í læknis-
húsið, sem hann segir enn viðkvæmara, enda hefúr
ræðismaður Frakka ekkert skrifað honum um að
það ætti líka að selja læknisbústaðinn. Frakkar
hafa byggt hann og lagt honum til. Segir nú að
fari svo að húsið verði selt sé hann tilneyddur
að reyna að kaupa það. Hann kveðst gera sér þá
hugmynd að Frakkar muni vilja láta hann sitja
fyrir öðrum og mundu verða ódýrari til hans.
Georg reynir því enn að bjarga málum og kaupir
bæði spítalann og læknishúsið til bráðabirgða.
Húsakaupin urðu Georg þung í skauti. Gjöld og
viðhald bættust við og svo fór að Georg missti
allar eigur sínar til Landsbankans.
Franski spítalinn í Hafnarnes
Við sunnanverðan Fáskrúðsfjörð var ört stækk-
aði útræðisþorp, Hafnarnes, en þaðan er stutt á
miðin. A ijórða áratugnum var farið að bera á
húsnæðiseklu þar og því þótti góð lausn að nýta
spítalann fyrir íbúðir enda hafði hann staðið auður
og að mestu ónotaður í nokkur ár. Árið 1939 var
spítalinn tekinn niður, spýtu fyrir spýtu, merktur
og fluttur á bátum yfir fjörðinn í Hafnarnes. Þar
var hann endurbyggður sem fyölbýlishús.
Munu fimm ijölskyldur hafa búið í húsinu en
sjötti parturinn var skólahúsnæði fyrir Suður-
byggð á vegum hreppsins. Kennarinn flutti
reyndar aldrei inn því breski herinn tók þann
hluta hússins til sinna nota við hernámið. Þegar
fjölmennast var, bjuggu í húsinu 50-60 manns.
I viðtali í Morgunblaðinu segir Bergur Hall-
grímsson, sem var fæddur og uppalinn í Hafnar-
nesi, að spítalinn hafi verið fluttur út í Hafnarnes
á trillum nema hvað mótorbátar hafi verið fengnir
til að fara með stærstu stykkin. Allt var síðan borið
á bakinu upp á bakkann. Hann segir að allt hafi
verið nýtt úr spítalanum og flutningurinn verið
mikið verk og erfitt.
Þá segir Bergur að Franski spítalinn hafi verið
mjög gott hús og skemmtilegt að alast upp í
Hafnarnesi. I Hafnarnesþorpinu voru á annað
hundrað manns skráðir til heimilis þegar mest var.
Heimildir:
Fransí Biskví eftirElínu Pálmadóttur útg. 1989
Viðtal Helga Bjamasonar við Berg Hallgrímsson i Mbl.
Samtal við Þorgerði Guðjónsdóttur 2004
Minningargrein um Georg Georgsson í Vísi 1941
Arsrit samtakanna Des oeuvres de Merfrá 1907
Skýrsla Brunbótafélags íslands. 14. desember 1916
Saga sýslunefndar Suður-Múlasýslu 1875-1988, bls. 174
Hinn frönskumœlandi Georg Georgsson í apóteki spítalans sem hann notaði einnigfyrir skrifstofu.
www.123.is/blakdeildleiknisfaskrudsfirdi.is
BLA KDEILDIN
FÁSKRÚÐSFIRÐI
18