Franskir dagar - 01.07.2014, Blaðsíða 25
Sendiráð Frakklands óskar öllum ánægjulegra
hátíðarhalda á frönskum dögum 2014!
I/Ambassade de France vous souhaite d’excellentes
Journées Frangaises 2014, á l’occasion de l’ouverture
officielle de l’Höpital frangais!
Sendiráðið mælir með nokkrum einstökum viðburðum
laugardaginn 26. júlí sem enginn ætti að láta fram hjá sér fara!
Cette année, l’Ambassade de France en Islande vous invite
á des événements exceptionnels samedi 26 juillet!
Franski spítalinn opnaður fyrir gestum
Franski spítalinn á Fáskrúðsfirði verður opnaður formlega klukkan 14:00 ásamt
safnahúsi Fransmanna á Islandi, á sameiginlegri opnunarhátíð Fjarðabyggðar og
Minjaverndar. í glæsilegri endurgerð Minjaverndar á frönsku byggðinni, gegna
Franski spítalinn, Læknishúsið og Litla kapellan á ný mikilvægu hlutverki fyrir
bæjarlífið á Fáskrúðsfirði, nú sem hótel, veitingastaður og safnahús.
Sýningin Kerguelen á íslandi
Franska sendiráðinu á íslandi er það mikil ánægja að bjóða gestum hátíðarinnar á
sýninguna Kerguelen á Islandi. Sýningin verður opnuð í Wathneshúsinu á Fáskrúðs-
firði klukkan 16:00 og stendur hún til 18. ágúst. A sýningunni er rakin saga fyrsta
vísindaleiðangurs Yves-Joseph de Kerguelen til íslands 1767 og 1768 og leiðir vel í Ijós
hvaða mikilvæga hlutverki hann gegndi í Evrópu er varðar þekkingaröflun og
rannsóknir um Island á seinni hluta átjándu aldar. Einnig er nafn hans ritað á spjöld
sögunnar fyrir uppgötvun á nýjum landsvæðum á suðurheimskautssvæðinu
(Kerguelen eyjar). Ljóst er að margar frásagnir og minjar fylgja viðburðaríkri ævi
þessa franska liðsforingja!
Högni Egilsson flytur franskar perlur!
Hljómlistamaðurinn Högni Egilsson hefur komið víða við og er meðal annars einn af
forsprökkum Hjaltalín og GusGus. Mun hann koma fram á einstökum tónleikum á
Frönskum dögum, í boði sendiráðsins, þar sem hann flytur í fyrsta sinn sérvalin
frönsk dægurlög í eigin túlkun. Um er að ræða óvenjulegan og sjaldséðan einleik þar
sem Högni flytur lög sem hafa markað djúp spor í franska tónlistarsögu.
Tónleikarnir hefjast klukkan 19:00 í skólamiðstöðinni á Fáskrúðsfirði.
Verið velkomin !
Soyez les bienvenus !
AMBASSADE DE FRANCE
EN ISLANDE
Liberlé • Égaliié • Fraternité
RÉPUBLIQUE FRANCAISE
25