Austurland - 08.01.2015, Page 4
8. Janúar 20154
Kvennaveldi
í fjarnámi
Háskólanemar sem skráðir eru sem fjarnemar hjá Austurbrú voru 132 á haustönn og voru
nokkuð færri en fyrir ári síðan þegar
168 voru skráðir. Nær helmingur eða
48,5% eru í námi við HA enda góð
þjónusta þar við fjarnema. Aðeins í
HR eru karlar meirihluti fjarnema.
Tölur vantar frá Bifröst en síðastliðin
ár hafa verið þrír til sjö nemar þaðan.
Konur yfir 75% há-
skólanema í fjarnámi
Konur hafa lengi verið fleiri en karlar
í háskólanámi á Austurlandi en kynja-
hlutfallið á haustönn sem er nýlokið er
það ójafnasta hingað til. Nú eru 76,5%
háskólanema á Austurlandi konur.
Árið áður voru konurnar 66%. Ýmsar
skýringar geta verið þarna að baki en
á landsvísu eru konur fleiri en karlar
í háskólanámi. Önnur skýring er sú
að þrátt fyrir tilraunir til að uppræta
staðalmyndir um kvenna- og karlastörf
er það enn almenn staðreynd að konur
sækja meira í hefðbundin kvennastörf
og karlar í hefðbundin karlastörf. Sú
menntun sem boðið er uppá í fjar-
námi, er í flestum skólum, menntun
sem konur sækja frekar í en karlar.
Sem dæmi um það er kennslufræði
og skyldar greinar, hjúkrunarfræði
og félagsvísindi. Greinar sem karlar
sækja frekar í eru sjaldnar í boði
sem fjarnám og þar virðist ein skýr-
ing á kynjahlutfallinu liggja. Í HR er
meirihluti fjarnema karla, 13 af 14,
og þeir eru flestir að læra iðnfræði og
tölvunarfræði. Aðrar karllægari greinar
eru almennt ekki í boði í fjarnámi s.s.
verkfræði og raunvísindi.
Nemendur verða að
kalla eftir fjarnámi
Háskólarnir bregðast ekki við með
auknu framboði nema kallað sé eftir
því og því er það mikilvægt að nem-
endur láti í sér heyra og gefi til kynna
hvað þeir vilja læra. Nemendur þurfa
að kalla eftir fjarnámi.
Kennari, viðskipta-
fræðingur eða félags-
vísindamaður?
Nemendurnir eru flestir í kennaradeild
eða öðru námi í uppeldis og menntun-
arfræðum s.s. sérkennslu. Bæði eru
þetta nemendur í grunnnámi sem og
nemendur í meistaranámi. Enginn
doktorsnemi er skráður sem fjarnemi
en sl. ár hafa þeir verið 1-3 á Austur-
landi. Næst flestir eru í viðskiptafræði
og nær allir við HA.
Yngri fjarnemendum
að fjölga
Kostnaður við að flytja að heiman í
háskólanám er mikill, sérstaklega
leiguverð í Reykjavík. Kannski er það
þess vegna sem ungu fólki er að fjölga
í fjarnámi en yngsti hópurinn hefur
stækkað.
Staðnemendur
koma heim í próf
Fjöldi lokaprófa er tekinn á starfs-
stöðvum Austurbrúar og eru þar bæði
fjarnemendur og svo tölvuverður
fjöldi nemenda sem annars er í dag-
skólanámi á höfuðborgarsvæðinu og
jafnvel erlendis. Sá hópur stækkar
með hverri önn. Þessir nemendur
kunna vel að meta að geta komist
fyrr heim í jólafrí og taka sín próf á
starfsstöðum Austurbrúar. Á Egils-
stöðum eru tekin flest próf í desember
eða um 200 talsins, á Reyðarfirði eru
prófin um 100.
Stóriðjuskóli Alcoa Fjarðaáls
útskrifaði 50 nemendur á síðasta ári
Þriðjudaginn 16. desember síð-astliðinn útskrifuðust fyrstu nemendur frá Stóriðjuskóla
Alcoa Fjarðaáls, alls 20 manns, sem
lokið höfðu bæði grunn- og framhalds-
námi við skólann, en námið tekur tvö
og hálft ár. Alls hafa fimmtíu manns
lokið námi við skólann á árinu. Auk
þeirra tuttugu sem að ofan er getið luku
nítján manns grunnnámi 10. desember
og ellefu starfsmenn luku námi síð-
astliðið vor.
Stóriðjuskóli
Alcoa Fjarðaáls
Stóriðjuskóli Alcoa Fjarðaáls tók til
starfa haustið 2011, en hann er sam-
starfsverkefni Austurbrúar, Verk-
menntaskóla Austurlands og Fjarðaáls.
Kennt er samkvæmt námskrá Fræðsl-
umiðstöðvar atvinnulífsins, „Nám í
stóriðju“. Námið er hægt að fá metið til
eininga á framhaldsskólastigi. Grunn-
námið tekur þrjár annir og hafa 49
starfsmenn eða um 10% starfsmanna
fyrirtækisins lokið grunnnámi.
Á vorönn sem hefst nú í upphafi
nýs árs, 2015, verða rúmlega fimm-
tíu manns við nám í Stórðiðjuskól-
anum, í kringum þrjátíu í grunnnámi
og tuttugu og fjórir í framhaldsnámi.
Öllum sem ljúka þriggja anna grunn-
námi stendur til boða að halda áfram
í fjögurra anna framhaldsnámi. Að
loknu námi frá Stóriðjuskólanum
hækka grunnlaun starfsmanna um
5 prósent auk hækkana sem verða
samfara auknum starfsaldri hjá fyr-
irtækinu.
Fréttatilkynning frá Alcoa
útskriftarnemar úr framhaldsnámi 16. desember, ásamt Magnúsi Þór Ásmundssyni forstjóra alcoa Fjarðaáls sem
klæddist annarri af tveimur jólapeysum sínum sem Magnús prýddist um jólaleytið. útskriftin fór fram hjá austurbrú
á reyðarfirði, eftir kynningu á lokaverkefnum nemenda.
Björgvin og Hrönn: Hjónin Björgvin Ármannsson og Hrönn Bergþórsdóttir
útskrifuðust bæði úr framhaldsnámi við Stóriðjuskóla Fjarðaáls 16. desember.
af því tilefni fengu þau myndarlega blómvendi frá börnum, barnabörnum og
barnabarnabarni. Í ávarpi fyrir hönd nemenda, þakkaði Hrönn fyrir tækifærið
til að fá að setjast aftur á skólabekk. Hrönn sagði námið hafa verið fræðandi
en þó umfram allt skemmtilegt.