Austurland - 08.01.2015, Side 6
8. Janúar 20156
HverJIr er þetta?
Enn höldum við áfram að birta myndir úr Ljós-
myndasafni Austurlands hjá Héraðsskjalasafni
Austfirðinga. Þessi mynd er úr safni Jónasar Jón-
assonar frá Kolmúla. Jónas er til hægri á myndinni
en hinn er óþekktur.
Engar upplýsingar bárust um síðustu mynd en það
var mynd af brosandi stúlkum og kom sú mynd
úr safni UÍA. Myndin er því endurbirt hér í þeirri
von að einhverjir kannist við stúlkurnar.
Eru upplýsingar frá lesendum vel þegnar og er
þeim sem geta gefið þær bent á að hafa samband
við Héraðsskjalasafnið í síma 471 – 1417 eða á
netfangið: magnhildur@heraust.is.
Brennur
Stefán Bogi Sveinsson sendi frá sér sína fyrstu ljóðabók á síð-asta ári. Stefán Bogi er flestum
landsmönnum vel kunnur vegna þátt-
töku sinnar í Útsvari auk þess sem
hann er í bæjarpólitíkinni á Fljóts-
dalshéraði. Stefán Bogi er Héraðs-
maður langt aftur í ættir. Í Útsvari
hefur hann slegið á létta strengi og
þótt skemmtilegur og hnyttinn í til-
svörum en í stjórnmálunum er alvar-
legri undirtónn. Ljóðabók Stefáns ber
heitið Brennur og má segja að í ljóða-
bókinni birtist þessar hliðar Stefáns
Boga. Hún hefur að geyma 37 ljóð
sem ort eru á undanförnum árum,
en Stefán hefur að eigin sögn ort ljóð
allt frá 10 ára aldri.
Í viðtali sem tekið var við Stefán
Boga í tilefni af útgáfu bókarinnar
á síðasta ári sagði hann: „Bókin er
býsna persónuleg og ég er að reyna að
gera upp við ýmsar tilfinningar sem
ég ber í brjósti. Það sem er kannski
mest áberandi er ákveðið uppgjör
við fráfall pabba, sem lést fyrir aldur
fram árið 1994. Það var áfall sem ég
vann kannski aldrei almennilega úr
á sínum tíma. Það er ljóðabálkur í
bókinni sem er hugsaður sem kveðja
til hans. En síðan er þetta bara allt
mögulegt. Það er líka heilmikill
húmor þarna held ég. Ég á svolítið
erfitt með að hafa það ekki með því
ég hef ákveðna tilhneigingu til þess
að snúa hlutunum oft upp í grín. Svo
er líka ádeila þarna því pólitíkin er
aldrei langt undan.“
Þessi orð Stefáns Boga lýsa bókinni
mjög vel. Í bókinni eru stutt, hnyttin
ljóð eins og ljóðið Fjall sem segir frá
uppbyggingu falls og Í pörum þar sem
samböndum er lýst. Ótrúlega fallega
lýsingu á ástföngnum manni er að
finna í ljóðinu Bókmennt og í ljóð-
inu Vér föðurleysingjar nefnir Stefán
Bogi margt af því sem maður fer á
mis þegar maður elst upp án föður. Í
Brennur leikur Stefán Bogi sér með
tungumálið á skemmtilegan hátt og
talar um að „spenna kvíðboga of hátt“
eða að það hafi runnið á einhvern
„tvær til þrjár grímur“.
Ljóðabókin Brennur er skemmti-
leg ljóðabók sem kemur einnig inn
á alvarlegri og hversdagslegri hluti
tilverunnar. Góð bók til að hafa á
náttborðinu og lesa reglulega.
Reyðarfjarðarkirkja
Reyðarfjarðarkirkja er kirkja vik-unnar að þessu sinni. Upplýsingar
um kirkjuna eru fengnar úr ritinu
Kirkjur Íslands, 20. bindi, Friðaðar
kirkjur í Austfjarðaprófastsdæmi. Höf-
undar texta eru Hjörleifur Guttormsson
og Júlíana Gottskálksdóttir.
Bygging kirkju í stækkandi þorpi
á Búðareyri við Reyðarfjörð 1911
endurspeglar sömu þróun og víða
annars staðar á Austfjörðum báðum
megin aldamóta. Sóknarkirkjan á
Hólmum, byggð af timbri árið 1850,
var orðin lúin undir lok 19. aldarinnar.
Árið 1899 var Hólmasókn, sem fram
að þeim tíma náði yfir allan Reyðar-
fjarðarhrepp hinn forna, skipt í tvennt
og í framhaldi af því var Eskifjarðar-
kirkja byggð árið 1900. Góð samstaða
var innan sóknarnefndar Hólmakirkju
um þessa þróun og snemma árs 1909
gerði nefndin tillögu til biskups um
að leggja niður kirkju á Hólmum og
byggja nýja í hennar stað á Búðareyri.
Niðurstaðan varð að byggja steinsteypta
kirkju, þá fyrstu af því efni austanlands.
Hana teiknaði Rögnvaldur Ólafsson
arkitekt en yfirsmiður var Guðni Þor-
láksson og var kirkjan vígð 18. júní
1911. Sóknarnefndin tók jafnframt að
sér niðurrif og sölu á Hólmakirkju [.
. . ].
Milli Hólma og Búðareyrar er að-
eins um 8 km leið en umhverfi nýju
kirkjunnar á sléttri eyri undir fornum
sjávarkömbum var samt býsna ólíkt
því sem verið hafði á Hólmastað.
Uppi yfir gamla prestsetrinu gnæfir
Hólmatindur sem um aldir hafði sent
skriður, vatnsflaum og jafnvel snjóflóð
niður yfir staðinn og margoft valdið
tilfinnanlegum landspjöllum og tjóni á
mannvirkjum [. . . ]. Samt voru Hólmar
taldir í hópi betri brauða á landinu, árið
1854 það þriðja gjöfulasta í Múlaþingi
á eftir Hofi í Vopnafirði og Eydölum.
Þar komu til fyrrum skógarítök, fjórir
rekar og afgjöld af mörgum jarðeignum
meðal annars af þremur jörðum við
Stóru-Breiðuvík þar sem lengi var
höndlunarstaður og af Skálateigi efri
og neðri í Norðfirði. Einnig fengust
drjúgar tekur (sic) af útræði í Seley og
varphólmunum fimm við Hólmanes [.
. . ] (bls. 313).
Árið 1901 voru á Búðareyri skráðar
44 sálir en íbúatalan var orðin 110
manns þegar kirkjan þar var vígð árið
1911. [. . . ]
Búðareyrarkirkja, síðar kennd við
Reyðarfjörð eins og sóknin, hefur
staðið af sér tímana tvenna í heila öld að
því er snertir nánasta umhverfi. Lengst
af hefur verið rúmt um kirkjuna en á
árum síðari heimsstyrjaldar var þó að
henni þrengt með herskálum eins og sjá
má af myndum. Síðar nýttist landrýmið
undir þekkilegt safnaðarheimili sem
Björn Kristleifsson arkitekt er höfundur
að (bls. 315).
Þann 31. janúar árið 1909 ritaði
sóknarnefnd Hólmasóknar í Reyðar-
firði biskupi landsins, herra Þórhalli
Bjarnarsyni, bréf þar sem greint var
frá áformum safnaðarins um að leggja
þá kirkju niður og þess í stað reisa
nýja kirkju í botni Reyðarfjarðar. [. .
. ] Óskað var eftir því við biskup að
sóknarnefnd yrði útveguð teikning
að „vandaðri timburkirkju í smekk-
legum nútíðarstíl“ sem tæki 150 manns
í sæti. [. . . ] Leitað var til Rögnvalds
Ólafssonar byggingarráðunautar
heimastjórnarinnar um gerð uppdrátta
að kirkjunni og vann hann að þeim í
janúar og febrúar árið 1910. Í fyrstu
stóð til að kirkjan yrði timburhús og
sýna uppdrættir Rögnvalds að hann
hefur gert ráð fyrir grindarhúsi.
Á annan uppdrátt að framstafni
kirkjunnar, þar sem umbúnaði kirkju-
dyra hefur verið breytt, hefur hann
skrifað að kirkjan hafi upphaflega átt
að vera úr timbri, en síðan verið breytt
í „steinsteypu-hús“ með óbreyttu inn-
anmáli. Rögnvaldur hafði mikla trú á
steinsteypu sem byggingarefni og má
gera ráð fyrir að hann hafi lagt til að
reisa kirkjuna úr steinsteypu frekar
en timbri. Enn fremur eru heimildir
fyrir því í gjörðabók sóknarnefndar
kirkjunnar að biskup landsins, herra
Þórhallur Bjarnarson, var hlynntari
steinsteypu en timbri sem byggingar-
efni. Á almennum safnaðarfundi 10.
júlí 1910 var tilkynnt að gerður hefði
verið samningur um byggingu stein-
kirkju á Búðareyri. Það hafði hins vegar
í för með sér meiri kostnað en gert hafði
verið ráð fyrir, því áður hafði verið talið
að byggingarkostnaðurinn mætti ekki
fara yfir fimm þúsund krónur og var þá
tekið mið af fjögur þúsund króna sjóði
Hólmakirkju og væntanlegu láni úr
hinum almenna kirkjusjóði að upphæð
fimmtán hundruð krónur. Í stað fimm
þúsund króna var byggingarkostnaður
nú áætlaður 6.800 krónur og var brugð-
ist við því með hækkun kirkjugjalds úr
75 aurum í 1 krónu og 25 aura.
Heimild: Kirkjur Íslands, 20. bindi,
Friðaðar kirkjur í Austfjarðaprófasts-
dæmi. Hið íslenska bókmenntafélag.
Reykjavík, 2012.
Auglýsingasíminn
er 578 1190