Austurland - 08.01.2015, Side 12
AB VARAHLUTIR – UMBOÐ EGILSSTÖÐUM
8. Janúar 201512
Þorvaldur Jóhannsson
hlýtur fálkaorðuna
Þorvaldur Jóhannsson, fyrrum bæjarstjóri og skólastjóri á Seyðisfirði, var á meðal ell-
efu einstaklinga sem fengu riddara-
kross hinnar íslensku fálkaorðu í
dag við hátíðlega athöfn á Bessa-
stöðum.
Í tilkynningu frá embætti forseta
Íslands segir að Þorvaldur hljóti
krossinn fyrir framlag til mennta
og framfara í heimabyggð.
Þorvaldur er fæddur á Siglufirði
árið 1940 og útskrifaðist sem hand-
mennta- og íþróttakennari. Hann
hóf störf sem slíkur á Seyðisfirði
strax eftir útskrift árið 1960.
Árið 1975 varð hann skólastjóri
og gegndi þeirri stöðu þar til hann
varð bæjarstjóri árið 1984. Eftir það
varð hann framkvæmdastjóri sam-
bands sveitarfélaga á Austurlandi til
ársins 2010.
Þorvaldur hefur einnig verið
mikilvirkur í ýmiss konar félaga-
samtökum en hann var meðal
annars formaður íþróttafélagsins
Hugins um þriggja ára skeið.
Frétt af www. austurfrett.is
Forsýning á
fyrstu tveimur
þáttum
Fortitude
Tiger Aspect og Pegasus bjóða íbúum Fjarðabyggðar á forsýn-ingu á 1. og 2. þætti af Fortitude
sjónvarpsseríunni en seríuna þarf varla
að kynna frekar fyrir íbúum Fjarða-
byggðar. Sýningar verða fimmtudaginn
8. janúar í Félagslundi Reyðarfirði og
verða tvær sýningar.
Fortitude er leikin bresk sjónvarps-
þáttaröð og hafa tólf fyrstu þættirnir
verið gerðir. Þættirnir eiga að gerast í
litlu þorpi norður við heimskautsbaug
og voru þeir teknir upp á Bretlandi og
á Íslandi, nánar til tekið á Austurlandi.
Þættirnir verða frumsýndir ytra í lok
janúar og hefjast sýningar á RÚV í
framhaldi af því.
Leikarinn Stanley Tucci leikur lög-
reglumanninn Morton sem aðstoðar
lögregluna á staðnum við rannsókn
á morðmáli. Danska leikkonan Sofie
Gråbøl, sem Íslendingar þekkja vel úr
glæpaþáttaröðinni Glæpnum, leikur
bæjarstjóra Fortitude.
Heimahjúkrun og rekstur
Sundabúðar áfram á
hendi Vopnfirðinga
Kristján Þór Júlíusson heil-brigðisráðherra og Ólafur Áki Ragnarsson, sveitarstjóri
Vopnarfjarðarhrepps, undirrituðu
í árslok endurnýjaðan samning sem
felur í sér að Vopnafjarðarhreppur mun
áfram sjá um rekstur hjúkrunarheimil-
isins Sundabúðar og heimahjúkrunar í
sveitarfélaginu. Að auki var veitt heim-
ild fyrir rekstri eins dagdvalarrýmis í
húsnæði Sundabúðar.
Upphaflegur samningur um þetta
efni var gerður fyrri hluta árs 2013.
Áður hafði rekstur hjúkrunarheimilis-
ins verið á hendi Heilbrigðisstofnunar
Austurlands. Með þessu samningi er
áhersla lögð á eflda þjónustu í heima-
byggð og aukin verkefni til sveitarfé-
laganna. Jafnframt er sérstaklega horft
til þeirra tækifæra sem í þessu felast til
að samþætta þjónustu við aldraða íbúa
sveitarfélagsins. Samningurinn gildir
til ársloka 2015.
Frétt af www. velferdarraduneyti.is
Mynd af vef forsetaembættisins. Þorvaldur er þriðji frá hægri.
Kristján Þór Júlíusson og Ólafur Áki ragnarsson (mynd af vef ráðuneytisins)