Austurland - 08.01.2015, Síða 14

Austurland - 08.01.2015, Síða 14
MIKIÐ ÚRVAL DEKKJA Á BETRA VERÐI - DEKKJAHOLLIN.IS iG50 V902AiG35 PF-3D PF-5 Vetrardekkin færðu á dekkjahollin.is 1. Leitar eftir stærð 2. Setur dekkin í körfu 3. Velur flutningsmáta 4. Gengur frá greiðslu 8. Janúar 201514 Vinnsla hafin hjá Búlandstindi ehf. Mánudaginn 5. janúar síðastliðinn mættu 25 starfsmenn til vinnu hjá Búlandstindi ehf. en í kjölfar brott- hvarfs Vísis af svæðinu var þetta gamla nafn endurvakið í nýju fisk- vinnslufyrirtæki sem hóf vinnslu formlega að morgni mánudagsins. Fyrirtækið er í eigu Ósness og Fisk- eldis Austfjarða. Af þessu tilefni færði sveitar- stjóri Elís Hlyni Grétarssyni, fram- kvæmdastjóra Búlandstinds, gjöf frá sveitarfélaginu og óskaði honum til hamingju með þennan merka áfanga. Þaðan var haldið niður í vinnslusal þar sem verið var að slátra eldisfiski úr Berufirði auk þess sem nokkrir starfsmenn voru að pakka saltfiski. Elís segir að þegar séu hafin við- skipti við báta sem munu leggja upp hjá fyrirtækinu til að byrja með auk þess sem slátrun á eldisfiski muni verða stór partur af vinnslunni. Hann segist vonast til að heildarvinnsla hjá fyrirtækinu fyrsta árið komi til með að nema 1700 tonnum af bolfiski og líklega um 1500 tonnum af eldisfiski. Heimasíðan óskar Elís og hans fólki hjá Búlandstindi velfarnaðar í þessu metnaðarfulla verkefni. Frétt af www. djupivogur.is Metár í lönduðum bolfiskafla í Djúpavogshöfn Þegar löndunartölur nóvember-mánaðar lágu fyrir var ljóst að 7 ára gamalt met hafði fallið. Þar með var árið 2014 orðið metár í lönduðum bolfiskafla í Djúpavogshöfn frá upphafi - og var árið þó ekki búið enn. Samtals hafði verið landað 10.497 tonnum. Haustið í Djúpavogshöfn var engu líkt, en það má segja að löndun hafi verið nánast upp á hvern einasta dag í september, október og nóvember, oft 2 bátar á dag og stundum 3. Alls var 7.446 tonnum landað á þessum þremur mánuðum. Það er t.a.m. mun meira en allt árið 2011 þegar um 5.600 tonnum var landað. Haustin 2012 og 2013, sem þóttu mjög góð, gáfu af sér 5.300 tonn annars vegar og 4.900 tonn hins vegar. Það er til marks um hversu mikill afl- inn í haust var í raun. Sem fyrr segir var gamla metið sett árið 2007 þegar 10.491 tonni var landað. 2014 hefur því siglt fram úr sem nemur 6 tonnum. Fróðlegt verður að sjá hverjar lokatölur verða þegar allt árið verður gert upp. Frétt af www. djupivogur.is Vinnsla hefst innan skamms hjá HB Granda á Vopnafirði Á heimasíðu HB Granda hf., www. hbgrandi.is, er frá því greint að fiskvinnsla hafi ha- fist á nýju í fiskiðjuverum HB Granda í Reykjavík og á Akranesi þann 02. janúar sl. en hlé var gert á vinnslunni fyrir jól. Á Vopnafirði hefur vinnsla legið niðri frá því að veiðum á ís- lensku sumargotssíldinni lauk í lok október sl. en vonast er til þess að þar hefjist vinnsla á loðnu fljótlega á nýju ári. Aðspurður hér að lútandi tjáði Magnús Þór Róbertsson vinnslu- stjóri heimasíðu Vopnafjarðar að lík- lega lægi ákvörðun fyrir um siglingu uppsjávarskipa félagsins mánudaginn fimmta janúar. Magnús Þór er bjart- sýnismaður að eðlisfari og vonast eftir að vertíðin verði Íslendingum gjöful en eins og ávallt er óvissa ríkjandi, það er eðli þessara fiskveiða. Eftir að síldveiðum lauk kom til tals að uppsjávarveiðiskipin færu til kolmunnaveiða um mánaðamót nóvember-desember en ákveðið var að slá þeim veiðum á frest. Eru loðnuveiðar nú næst á dagskrá hjá HB Granda ásamt vinnslu botnfisks sem hefur engin áhrif á vinnsluna á Vopnafirði. Þeim mun mikilvægara er að loðnuskipin haldi til hafs og skili afla sínum hingað. Kvótamál skipa félagsins munu standa með ágætum en sá er munurinn á loðnu- og fisk- vinnslu að mannaflsþörfin er minni, að mestu eru það fastráðnir starfs- menn sem skila þeirri vinnu sem þörf er á. Gangi áætlanir eftir stendur loðnuvertíð fram í marsmánuð eða í u. þ. b. tvo mánuði. Það mun vera kunnara en frá þurfi að segja að staða efnahags- mála í Rússlandi er afar erfið. Fer saman fall olíu- og gasverðs ásamt viðskiptaþvingunum Vesturlanda en Rússland hefur um langt árabil verið langmikilvægasti markaður loðnu- afurða. Sagði Magnús Þór ástandið eðlilega setja sölu afurða í nokkra óvissu en það væri gömul saga og ný að einhver óvissa ríki þegar að ver- tíð kæmi. Ávallt hefðu málið verið leyst og félagið sæti ekki uppi með óseldar afurðir þó í frystigeymslum þess væri vörur að finna. Sjálfsagt markar ástand Rússlandsmarkaðar vertíðina en mögulega verður fókus- inn á kvenloðnuna og hrognin með Japansmarkað í huga. Spennandi tímar eru framundan því nýju uppsjávarskip HB Granda, tvö að tölu, munu leysa af gömlu skipin. Þann 03ja desember sl. var Venus NS sjósett í Hatsan skipa- smíðastöðunni í Istanbul í Tyrklandi og mun samkvæmt Magnúsi Þór að öllu óbreyttu koma fullbúið til Íslands í aprílmánuði. Það verður án efa stór- brotin stund þegar þetta glæsilega fley siglir inn til hafnar en framundan eru algjör umskipti á skipaflota félagsins, uppsjávar og botnfisks. Stefnt er að hitt uppsjávarskipið, Víkingur AK, verði tilbúið til afhendingar undir lok þessa árs en ísfisktogararnir árin 2016 og 2017. Með nýju skipunum verða umskiptin eðlilega gríðarmikil, starfsumhverfið það besta sem býðst meðal sjómanna en einnig einhver fækkun meðal áhafna. Frétt af www. vopnafjardarhreppur.is Samanburðartölur síðustu 9 ára. Mynd af www.djupivogur.is

x

Austurland

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Austurland
https://timarit.is/publication/1094

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.