Reykjanes - 22.04.2015, Blaðsíða 9
22. Apríl 2015 9
Kemur vínið í versl-
anir 1. september ?
Enn og aftur virðist það ætla að ganga illa að Alþingi afgreiði frá sér tillögu um að heim-
ila sölu áfengis í matvörubúðum.
Reykjanes heyrði hljóðið í Vilhjálmi
Árnasyni þingmanni. Hvenær kemur
vínið í matvörubúðirnar eða sofnar
tillagan áfengisdauða á þinginu?
Nái frumvarpið fram að ganga þá er
gert ráð fyrir því að þeir sem vilji selja
áfengi, með takmörkunum, geti hafið
sölu á áfengi 1. september hafið þeir
fengið öll tilskilin leyfi. Frumvarpið
bíður nú 2. umræðu af þrem. Við
erum þó enn að afla frekari gagna sem
við teljum að styrki þann málflutning
sem við höfum haft um jákvæð áhrif
málsins. Má þar nefna úttekt á fjár-
hagslegum áhrifum á ríkissjóð. Við
flutningsmenn frumvarpsins teljum
að það séu umtalsverðir fjármunir
sem ríkissjóður muni geta ráðstafað
á annan hátt, til dæmis í heilbrigðis-
þjónustu ef frumvarpið nái fram að
ganga. Þar sem þetta er þingmanna-
mál getur tekið lengri tíma að bíða
eftir því að það komist á dagskrá en
frumvörp ríkisstjórnarinnar eru í
flestum tilfellum fyrr í röðinni. Þar
sem þetta mál fjallar um vissa grund-
vallarbreytingu og hefur fengið tölu-
verða umfjöllun Alþingis finnst mér
að það eigi að klára umræðuna og
greiða atkvæði um frumvarpið, það
er lýðræðislegt. Ég hef fulla trú á því
að frumvarpið verði samþykkt í þeirri
atkvæðagreiðslu.
Ályktun um kjaramál á stjórn-
arfundi LEB 14. apríl 2015
Landssamband eldri borgara tekur heilshugar undir kröfur verkalýðssamtaka um hækkun
lágmarkslauna. Landssambandið krefst
þess að lífeyrir almannatrygginga taki
sömu hækkunum og lágmarkslaun sem
samið verður um í næstu kjarasamn-
ingum á almennum markaði og/eða
hjá opinberum starfsmönnum. Við
teljum að 300.000 kr lágmarkslaun á
þremur árum sé ekki ofviða íslensku
atvinnulífi og ekki til þess fallið að ógna
þeim stöðugleika sem við viljum varð-
veita. Það er ekki sanngjarnt að hinir
lægst launuðu taki á sig ábyrgð á stöð-
ugleika í verðlagi, en hærra launaðir
aðilar ekki. Landssambandið hvetur
aðila vinnumarkaðarins og stjórnvöld
til að leita allra leiða til að koma í veg
fyrir verkföll, og semja sem fyrst í
þeim viðræðum sem fram undan eru
í kjaramálum
Áskorun um byggingu
nýs landsspítala
Stjórnarfundur Landssambands eldri borgara haldinn 14. apríl skorar á stjórnvöld að standa
við fyrri ákvörðun um byggingu
landsspítala við Hringbraut. Allur
sá undirbúningur sem hefur mið-
ast við þá staðsetningu má ekki fara
forgörðum. Þær byggingar sem fyrir
eru á Hringbraut eru sumar það nýjar
að eðlilegt er að þær séu í tengslum
og nýtist við nýjan landsspítala. Má
þar meðal annars nefna Barnaspítala
Hringsins. Þó skiptar skoðanir hafi
verið um staðsetningu hefur sú til-
laga að byggja við Hringbraut notið
meirihluta fylgis. Ljóst er að allar
breytingar mundu seinka byggingu
um all mörg ár. Það er óásættanlegt að
svo fari. Með nýrri byggingu landsspít-
ala við Hringbraut skapast möguleikar
á að nýta núverandi Landsspítala í
Fossvogi sem sérstaka miðstöð öldr-
unarlækninga. Það væri verðugt hlut-
verk fyrir þá byggingu þar sem ljóst er
að með fyrirsjáanlegri fjölgun aldraðra
er mjög æskilegt að hafa betri aðstöðu
til öldrunarlækninga og rannsókna
en nú er.
Landssamband eldri borgara hvetur
til þess að framkvæmdir verði hafnar
sem allra fyrst.
F.h. Landssambands eldri borgara
Jóna Valgerður Kristjánsdóttir,
formaður LEB
Kolbrún Vídalín
með sýningu
Kolbrún Vídalín er listakona úr Sandgerði. Eiginmaður hennar er Jón Bjarni Pálsson sjómaður
og saman eiga þau þrjú uppkomin börn
og níu barnabörn. Kolbrún er Sand-
gerðingum að góðu kunn því hún var
forstöðukona í Miðhúsum í Sandgerði
í 15 ár og hafði umsjón með félagsstarfi
eldri borgara á staðnum. Undirrituð
ber henni góða sögu. Hún bar mikla
umhyggju fyrir skjólstæðingum sínum
og var óþreytandi að finna upp nýj-
ungar og sem flest fyrir alla hópa.
Það hafði verið draumur hennar lengi að fara í myndlistarnám og hafði
hún alla tíð haft mikinn áhuga á öllu
því sem tengist list og listsköpun. Þegar
öll börnin þeirra Jóns höfðu lokið há-
skólanámi fannst henna tímabært þó
á sextugs aldri væri að láta draum sinn
rætast og fara í myndlistarskóla.
Árið 2010 ákvað hún að leigja sér
íbúð á Akureyri og hefja eins árs for-
nám í Myndlistarskóla Akureyrar. Eftir
þetta eina ár fann hún að hana langaði
til að halda áfram og hóf þriggja ára
nám í Fagurlistum. Hún útskrifaðist
vorið 2014. Maðurinn hennar hélt
áfram á sjó en heimsótti skólastelpuna
sína í
fríum Þau héldu heimili sitt áfram í
Sandgerði og voru þau því í einskonar
fjarbúð sem gerði hjónabandið bara
enn betra.
Námið á Akureyri var öflugt og
lærði hún margt þar bæði í listasögu
og listsköpun. Hún kynntist mörgu
frábæru fólki, kennurum skólans og
nemendum og eignaðist góða vini
meðal skólasystkina sinna. Þetta sagði
Kolbrún hafa verið mikið ævintýri og
henni lærðist að maður verður aldrei
of seinn að láta drauma sína rætast.
Síðasta veturinn lét hún sig hafa það
að búa ein í 20 m2 bústað sem var hinu
megin í Eyjafirðinum. Á morgnana
gékk Kolbrún í svarta myrkri í gegnum
skóg með vasaljós ca. 600 metra upp
brekku í bílinn oft í miklum snjó og
byl. Það var því mikið lagt á sig fyrir
skólann. Námið gaf henna einnig það
sjálftraust að halda áfram að þróa list
sína og veitti það henni mikinn inn-
blástur.
Markmið hennar í gegnum lífið
hefur ávallt verið að efla listsköpun í
umhverfi sínu og hef hún verið dug-
leg að sækja ýmisskonar námskeið
og miðlað þekkingu sinni til annarra
og með því vakið áhuga margra á
listsköpun. Það þekki ég sem þetta
rita. Hún veitti móður minni sem
nú er látin mikla gleði síðustu ævi-
árin hennar. Hún var óþreytandi við
að segja eldra fólkinu til, hvort sem
það var við málun, glerlist eða annað
föndur. Hún hafði einstaka þolinmæði
og mér fannst mikill missir af henni í
starfinu í Miðhúsum.
Þessa stundina er hún með vinnuað-
stöðu í húsnæði gamla Kaupfélagsins
í Sandgerði þar sem Listasmiðjan Ný
Vídd er starfrækt og er starfssemin
opin öllum sem vilja þangað sækja.
Listastarfssemin þar er að eflast dag
frá degi og eru ýmisskonar námskeið
í gangi.
Á Sumardaginn fyrsta mun Kolbrún
halda einkasýningu á nýjustu verkum
sínum sem eru innblásin af lokaverki
hennar úr Myndlistarskóla Akureyrar.
Sýningin verður í Norðurbryggju í
Hörpu frá 23. -26. apríl n.k.
Ég hvet ykkur til að skoða sýningu
Kolbrúnar Vídalín.
Silla E.