Reykjanes - 22.04.2015, Qupperneq 15

Reykjanes - 22.04.2015, Qupperneq 15
54 | SÓKNARFÆRI Bygging hótel og gistiheimila um land allt hefur undanfarin misseri verið í fullum gangi enda fjölgar erlendum ferðamönnum ár frá ári. Að sögn Birnu Ragnarsdóttur hjá RB rúmum í Hafnarfirði hafa starfsmenn fyrirtækisins staðið í ströngu við að smíða rúm fyrir gesti okkar Íslendinga og er ekkert lát á. „Hér hafa starfsmenn á stund- um lagt nótt við dag en við höfum eftir megni reynt að anna eftir- spurninni. Hótelin rísa eitt af öðru og við getum boðið sérsniðnar lausnir og gríðarlega mikið úrval af rúmum, dýnum og öllu því sem þarf að vera í góðu svefnherbergi. Auðvitað spyrjum við ekki við- skiptavini okkar um þjóðerni; við seljum rúm fyrir bæði Íslendinga og útlendinga.“ Íslensk rúm Æ fleiri eru þess meðvitaðir að nauðsynlegt er að velja rúmin af kostgæfni og þá sérstaklega dýn- urnar. Úrvalið á markaðnum er mikið og nær eingöngu um inn- fluttar vörur að ræða nema hjá RB rúmum þar sem íslensk framleiðsla hefur verið í fyrirrúmi frá því Ragnar Björnsson stofnaði fyrir- tækið árið 1943. „Við smíði bæði rúma og dýna gerum við strangar kröfur til okkar um gæði og endingu enda vitum við að þá verða viðskiptavinirnir ánægðir. Einnig sérhæfir fyrirtækið sig í hönnun og bólstrun á rúm- göflum, viðhaldi og viðgerðum á springdýnum og eldri húsgögn- um,“ segir Birna. Fjórar tegundir dýna Hjá RB rúmum er hægt að velja um fjórar tegundir af springdýn- um: RB venjulegar, Ull-deluxe, Super-deluxe og Grand-deluxe. Fjórir stífleikar eru í boði á allar þessar tegundir; mjúk, medíum, stíf og extrastíf – allt eftir óskum hvers og eins. Fyrirtækið er eina þjónustufyrirtækið á sínu sviði sem býður endurhönnun á springdýn- um eftir áralanga notkun. rbrum.is Framleiðsla og sala RB rúma fer fram að Dalshrauni 8 í Hafnarfirði. RB rúm fyrir vel sofandi ferðamenn! Nýtt hjá ÍSRÖR Pressuverkfæri og tengi fyrir hitaveitustálrör frá 1/2" til 2" Allar upplýsingar fást hjá ÍSRÖR Sími 565 1489 - Hringhella 12 - 221 Hafnarfjörður - isror@isror.is - www.isror.is Við Sundhöllina í Reykjavík eru hafnar framkvæmdir við nýja úti- sundlaug á grundvelli hönnunar- samkeppni sem VA arkitektar unnu á sínum tíma. Áætlað er að framkvæmdum verði lokið vorið 2017. Þar verða meðal annars nýir pottar, vaðlaug fyrir börn og nýtt eimbað. Áætlað er að nýja mann- virkið kosti um 1,2 milljarða króna en að auki verður 250 milljónum varið til endurbóta á eldri bygg- ingu sem komin er til ára sinna, hönnuð af Guðjóni Samúelssyni arkitekt en hún var byggð á árun- um 1929-1937. Verðlaunatillagan gerir ráð fyrir 25 metra langri útisundlaug, nýj- um pottum, vaðlaug fyrir börn, nýju eimbaði og annarri aðstöðu sem þarf til að gera Sundhöllina að alhliða heilsurækt fyrir almenning. Miðað er við að byggja nýja bún- ingsklefa kvenna og stækka bún- ingsklefa karla, en gert er ráð fyrir að gömlu búningsklefarnir verði notaðir áfram, enda eru þeir frið- aðir. Einnig er gert ráð fyrir að gera þurfi lágmarksbreytingar á hinu friðaða innra byrði hússins til að tenging og samnýting eldri og fyrirhugaðrar viðbyggingar verði með sem bestu móti. Við Sundhöll Reykjavíkur verður byggð 25 metra útisundlaug ásamt nýjum pottum, vaðlaug fyrir börn, nýju eimbaði og annarri aðstöðu. Mannvirkin verða tekin í notkun vorið 2017. Einn og hálfur milljarður í Sundhöllina Húsið opnar Guðmundur Hermannsson leikur ljúfa tónlist Verkalýðs- og sjómannafélag Keflavíkur og nágrennis 1. maí Samfélag fyrir alla alþjóðlegur dagur verkafólkS kl. 13:45 kl. 14:00 kl. 13:00 Setning Kristján Gunnarsson formaður VSFK Sigríður og Sólborg Guðbrandsdætur syngja nokkur lög Ræða dagsins Gylfi Arnbjörnsson forseti ASÍ Sveitapiltins draumur – Atriði frá minningartónleikum til heiðurs Rúnari Júlíussyni sem hefði orðið 70 ára á þessu ári. Kvennakór Suðurnesja flytja nokkur lög Kynnir Guðbrandur Einarsson formaður VS og LÍV Börnum boðið á sýningu í Sambíói Keflavík merkjasala 1. maí merki verða afhent sölubörnum fimmtudaginn 30. apríl á skrifstofu stéttarfélaganna, Krossmóa 4, 4. hæð kl. 12:00 – 15:00. Andvirði merkjasölu rennur til sölubarna. Fer fram í Stapa

x

Reykjanes

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Reykjanes
https://timarit.is/publication/990

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.