Reykjavík - 18.04.2015, Qupperneq 10

Reykjavík - 18.04.2015, Qupperneq 10
10 18. Apríl 2015REYKJAVÍK VIKUBLA Ð Í helvíti nasismans Haustið 1942 handtók Gestapó 22 ára íslenskan námsmann í Ósló, Leif H. Muller að nafni. Glæpurinn Leifs var að ætla sér að yfirgefa landið með ólöglegum hætti. Við tók hryllileg vist í fangabúðum nasista. Fyrst í Grini-fangelsinu í Noregi og síðar í Sachsenhausen-fangabúðunum í Oranienburg, rúmlega þrjátíu kílómetra frá Berlín. Í fangabúðum nasista, endurminn- ingar Leifs, kom fyrst út aðeins þremur mánuðum eftir heimkomu Leifs, árið 1945. Bókin ber þess merki að vera skrifuð þegar örskammt er liðið frá frelsun Leifs. Áratugum seinna kom bókin Býr Íslendingur hér? Minningar Leifs Muller, sú bók er að vissu leyti ólík bókinni sem nú er endurútgefin sökum þess að lengra er liðið frá fangavistinni þegar hún er skrifuð. Í fangabúðum nasista er lýsing á hremmingum vist- arinnar og þeim hrottaskap sem Leifur og samfangar hans máttu þola. Hún er nákvæm og eins og margar álíka bækur fjallar mikið um mat; matinn sem fangarnir fengu, matinn sem þá dreymdi um og matinn sem þeir ‘skipu- lögðu’, það er stálu. Hungrið var dagleg birtingarmynd baráttunar við dauðann og frásögn Leifs gefur góða mynd af hvað þurfti til. Stríðið sem aldrei átti að verða Leifur skýrir ítarlega frá aðstæðum og eigin líðan en eins og kom í ljós seinna þá sleppti hann að ræða erf- iðustu upplifanir sínar í þessari bók. Líklega er það vegna þess hve stutt er liðið frá atvikunum sem Leifur fjallar um eigin þjáningar með því að lýsa því sem aðrir fangar gengu í gegnum. Í bókinni býr Íslendingur hér, sem kom út áratugum seinna kemur margt fram sem ekki kemur fram í bókinni sem nú er endurútgefin. Fyrst og fremst nýtur sú bók ágóða tímans sem er liðin frá atvikunum sem er lýst. Báðar eru mikil- vægar heimildir um vist Leifs og afdrif. Í fangabúðum nasista er væntanlega tilraun Leifs til að koma á blað hryll- ingi sem margir drógu í efa að hefði orðið eða áttu erfitt með að kyngja að hefði raunverulega átt sér stað. Nú kyn- slóðum seinna erum við enn að leita skýringa á því hvernig slík voðaverk gátu gerst. Heimstyrjöldin fyrri átti að binda endi öll stríð en skömmu seinna tók við styrjöld sem átti sér engan líka. Hin frjálsa Evrópa Seinna stríðið átti líka að binda enda á öll stríð en við tóku hugmyndafræðileg átök sem skiptu heiminum í tvennt. Hin nýfrjálsa Evrópa var ekki frjáls lengi. Doðinn og afneitunin tók við og ekki bundu grimmdarverk átaka kalda- stríðsins enda á önnur stríð. Íslendingar voru ekki reiðubúnir að heyra allt það sem hann mátti þola þegar bókin var upphaflega gefin út. Satt best að segja efast ég oft um að við séum enn tilbúin. Íslendingum hefur ekki tekist að gera upp ‘blessaða stríðið’ og satt best að segja virðist okkur ekkert sérstaklega umhugað um slíkt uppgjör. Kíkinn fyrir blinda augað Seinni heimstyrjöldin hafði afdrifarík áhrif á Íslendinga. Því fylgdu efna- hagsleg umsvif ólík því sem áður höfðu sést og nánari tengsl við um- heiminn en áður. Styrjöldin markar upphaf svo margs í sögu okkar. Þrátt fyrir það er íslenska söguminnið svo brenglað. Við þekkjum „ástandið“ og höfum í flimtingum en þekkjum ekki persónunjósnirnar og ofsókninar sem ástandinu fylgdi. Rannsóknir á þessu eiga sér stað á okkar dögum. Við ræðum ekki stríðsgróðamennina og fjölskyldur þeirra. Hóp fólks sem græddi óhóflega á stríðinu í krafti stjórnmála- og viðskiptatengsla. Við höfum, ólíkt Dönum, ekki gert tilraun til að gera upp þátt okkar í að senda gyðinga og flóttamenn sem flúðu til Íslands aftur til Þýskalands, þar sem fólkið var oft tekið af lífi. Hávær krafa um uppgjör stjórnarflokkanna tveggja Framsóknarflokks og Sjálfstæðsflokks vegna tengsla sinna við þýska nasista, er ekki fyrir að fara. Þá er engin krafan um að þáttur Hermanns Jónassonar, for- sætisráðherra og leiðtoga Framsóknar- flokksins, á árunum 1934 til 1942 fái heiðarlega umfjöllun. „Tíðarandinn“ virðist ávallt vera svarið, þegar einhver vogar sér að spyrja. Það er inn í þetta umhverfi sem bókin birtist okkur nú, endurútgefin árið 2015. Í samfélag sem sér ekki ástæðu til að gera upp heimstyrjöldina, og helst ekkert annað heldur. Afsökunarbeiðni Við tölum ekki um íslensku nasistana, krefjumst ekki yfirbóta eða jafnvel heiðarlegri umræðu fyrir mína kynslóð og þá næstu sem á eftir fylgir. Árið 2005 spurði þýski fjölmiðillinn Deutsche Welle hvort Íslendingar ætluðu að biðjast afsökunar á að hafa sent hóp fólks út í rauðan dauðann í Þýskalandi nasismans. „Hvern ættum við að biðja afsökunar,“ svaraði Halldór Ásgríms- son, þáverandi forsætisráðherra. Hvað er þetta annað en hroki? Já hvern ættum við nú að biðja afsökunar? Mögulega væri hægt að byrja á afkomendum þeirra gyðinga sem vitað er að íslensk yfirvöld sendu til Þriðja ríkis nasista. Þar beið þeirra ekkert nema frelsisvipting, þjáningar og dauði. Ástæðan sem gefin var ungu gyðingapari, sem flúðu ofsóknir nasista, og komu hingað til lands ásamt börnum sínum, en voru send aftur til baka, var að yfirvöld séu „principielt“ mótfallin því að veita gyðingum dvalarleyfi. Á Íslandi þurfti að verja kynstofninn hreina. Ísland var (og skal vera) fyrir íslendinga. Að deila frelsi með kvalara sínum Við lestur bókarinnar er gott að hafa í huga að hún er skrifuð áður en ljóst varð að Ólafur Pétursson, liðsmaður þýsku leyniþjónustunar, yrði fyrir tilst- uli íslenskrar utanríkisþjónustu og rík- isstjórnar leystur frá ábyrgð. Ólafur ber ábyrgð á vist Leifs í fangabúðum og var þekktur sem „íslenski böðullinn“ í Nor- egi. Eftir stríð var áhrifum nýsamsettrar utanríkisþjónustu beitt til að koma honum frá réttvísinni. Svipaða sögu má segja af syni Sveins Björnssonar, fyrsta forseta Íslands, Björn Sveinsson Björnsson. Nasista sem spilaði rullu í því að leysa upp dönsku lögregluna vegna gruns um að hún ætlaði að gera uppreisn gegn þýska herliðinu. Tæplega 2000 danskir lögreglumenn voru hand- teknir í aðgerðunum og sendir í Neu- engamme-búðirnar. Þar sem Leifur var seinna vistaður í skamman tíma áður en hann fór ásamt öðrum norðurlanda- búum til Svíþjóðar. Í bók Leifs kemur ekki fram að hann mátti búa við að mæta kvölurum sínum á Íslandi og án þess að krafa yrði gerð um uppgjör eða réttlæti. Það kemur heldur ekki fram að íslenskir fjölmiðlar gerðu samkomulag við Svein Björnsson um að fjalla ekki um þátt sonar hans í glæpum nasista. Um það varð ekki uppvíst fyrr en síðar. Gleðin í einföldum gæðum Í bókinni verður maður þess áskynja að við hörmulegustu aðstæður er gleðina að finna í fábrotnum gæðum. Hungrið sýkir allt en í upphafi vistar- innar, þegar hungrið var enn ekki jafn mikið, var aðgerðarleysið föngunum erfitt. Lýsing Leifs á sköpunargáfu fanganna við að finna sér eitthvað til dægrastyttingar er, eins ótrúlegt og það kann að hljóma, uppörvandi. Í Grini- -fangelsinu bjuggu Leifur og samfangar hans sér til skákborð úr klósettpappír og tannkremi. „Í klefa okkar, eins og öllum öðrum klefum fangelsisins, úði Allar tæknilegar upplýsingar, snið og teikningar, eru fyrirliggjandi hjá okkur. Yfir 80 litir í boði. Nánari upplýsingar á www.solskalar.is Viðhaldsfríir gluggar, hurðir, rennihurðir, sólskálar og svalalokanir UMFJÖLLUN Vinnan gerir ykkur frjáls, alræmdustu orð útrýmingabúða nasista. Myndin er tekin við inngang Sachsenhausen. Fangi 68138, mynd af leif úr spjald- skrá Sachsenhausen-fangabúðana.

x

Reykjavík

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Reykjavík
https://timarit.is/publication/1086

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.