Reykjavík - 27.06.2015, Blaðsíða 2

Reykjavík - 27.06.2015, Blaðsíða 2
2 27. Júní 2015REYKJAVÍK VIKUBLA Ð Ný tækni við göngu- greiningu Flexor notast við nýja tækni við göngugreiningu. Göngu- og hlaupa- brettið okkar býr yfir innbyggðum þrýstinemum sem skilar nákvæmum upplýsingum um göngulag. Fáðu góð ráð, faglega göngugreiningu og lausnir við stoðkerfisvandamálum hjá Flexor. Pantaðu tíma í síma 5173900 Orkhúsinu / Suðurlandsbraut 34 / 517 3900 Útgerð, útgáfa og olía inga og vænan hlut í Síldarvinnslunni í Neskaupsstað. Síldarvinnslan á svo aftur Berg-Hugin. Umsvif eigenda Samherja eru ekki bundin við útgerð, heldur eiga þeir stóran hlut í útgáfufélagi Morgun- blaðsins og sömuleiðis ríflegan hlut í Olís, svo nokkuð sé nefnt. Sjá bls. 8. Fresta þrengingu Grensásvegar: Áherslan á göngu- og hjólastíga Samþykkt hefur verið að fresta því að þrengja Grensásveg sunnan Miklubrautar um eina akrein í hvora átt. Til stóð að breikka stéttir og auka möguleika fyrir umferð gangandi og hjólandi umferð við Grensásveginn á því svæði. Fram kom í umhverfis- og skipulagsráði á dögunum að áfram verði unnið að málinu. „Framkvæmdin er mikilvæg fyrir hverfið, með tilliti til umferðaröryggis gangandi, hjólandi og akandi vegfarenda.“ Til stendur að vinna áfram að útfærslu á þessum breytingum og bjóða út á næsta ári. Í staðinn á að fara í það í ár að gera göngu- og hjóastíga í Elliðaárdal, þar sem gera á stíg og brú við Rafstöð og yfir vesturálinn, við Bústaðarveg austur Hörgsland, gera endurbætur á stíg við Rafstöðvarveg að Höfðabakka og gera stíg við Stekkjabakka, milli Græna- stekks og Hamrastekks. Deilur meiri- og minni- hluta um stjórn Strætó: Enginn axlar ábyrgð vegna klúðurs Fulltrúa meirihluta og minnihluta í borgarráði Reykjavíkur greinir á um ábyrgð stjórnar Strætó bs. vegna fjölda mistaka við innleiðingu breytinga á ferðaþjónustu fatlaðra í vetur. Fram- sókn og flugvallarvinir krefjast þess að skipt verði um stjórn. Tillaga um það var felld á dögunum. Sjálfstæðismenn segja að borgin eigi að axla ábyrgð en stjórnarmenn líti í eigin barm. Fulltrúar meirihlutans segja hins vegar að ekki megi kenna núverandi stjórn um allt sem aflaga fór. Sjá bls. 12 Segist ekki vanhæfur Nei ég tel mig ekki vanhæfan,“ sagði Ármann Kr. Ólafs-son, bæjarstjóri í Kópa- vogi og oddviti Sjálfstæðisflokksins í bænum, þegar hann var spurður um hæfi til að taka þátt í afgreiðslu máls, vegna fjárframlaga sem hann þáði í prófkjöri. Tilefni spurningar blaðsins er tillaga sem Ármann flutti í bæjarstjórn Kópavogs í vikunni, þar sem lagt var til að Kópavogsbær tæki allt að 1,5 milljarða króna lán til þess að kaupa þrjár hæðir í svonefndum Norðurturni í Smáralind, undir bæj- arskrifstofur Kópavogs. Tillögunni var frestað, en tveir úr meirihlutanum í Kópavogi, Sverrir Óskarsson Bjartri framtíð og Margrét Friðriksdóttir Sjálfstæðisflokki, greiddu atkvæði með frestun á afgreiðslu málsins ásamt bæjarfulltrúum í minnihlut- anum í bæjarstjórn Kópavogs, Sam- fylkingar, Vinstri grænna og félags- hyggjufólks og Framsóknaflokksins. Eigandi byggingarinnar er Nýr Norðurturn hf. en meðal eigenda þar er félagið Hjúpur ehf. sem er dótturfélag Byggingarfélag Gylfa og Gunnars. Sama félag styrkti Ármann í prófkjöri í fyrravor um 150 þúsund krónur, samkvæmt yfirliti um kostnað og styrki í prófkjörinu á vef Ríkisend- urskoðunar. Ármann undraðist spurninguna í samtali við blaðamann. Sagði dylgjur felast í henni. Þá bætti hann því við að hann fylgdi öllum reglum. „Auk þess er það ekki ég sem tek ákvörðunina heldur bæjarstórn öll. Í henni sitja 11 manns og þeir hafa allan aðgang að upplýsingum um mig varðandi mitt prófkjör eins og bæjarbúar allir.“ Rögnunefnd útilokar ekki núverandi flugvöll Í niðurstöðu Rögnunefndarinnar er lögð sérstök áhersla á að „samkomulag náist um rekstr- aröryggi Reykjavíkurflugvallar í Vatnsmýri á meðan nauðsynlegur undirbúningur og eftir atvikum framkvæmdir fara fram.“ Þetta segir í fréttatilkynningu nefndarinnar, en hún skilaði niðurstöðum sínum um athugun á flugvallarkostum á höfuðborgarsvæðinu á fimmtu- dag. Nefndin var samvinnuverk- efni Reykjavíkurborgar, Icelandair og ríkisins. Verkefni hennar var að „fullkanna aðra kosti til rekstrar inn- anlandsflugs en framtíðarflugvöll í Vatnsmýri“. Þetta þýðir í raun að í niðurstöður nefndarinnar útiloka í reynd ekki núverandi flugvöll sem framtíðarflugvöll fyrir innanlands- flug. Nefndin skoðaði hugsanleg flugvallarstæði önnur á höfuð- borgarsvæðinu. Á Hólmsheiði, Bessastaðanesi, Lönguskerjum og í Hvassahrauni. Af þeim stöðum á höfuðborgar- svæðinu sem gætu hentað undir flug- völl virðist nefndinni best hugnast Hvassahraun, sem er á mörkum Hafnarfjarðar og Voga. Þar sé „land- rými gott og þróunarmöguleikar heilt yfir betri en á öðrum flugvallar- stæðum,“ segir í fréttatilkynningu nefndarinnar. Síðarnefndi þátturinn er ekki fyrir hendi á Bessastaðarnesi eða Lönguskerjum. Ekki er annað að sjá af niðurstöðu nefndarinnar en að Hólmsheiði sé úr sögunni sem hugsanlegt flugvallarstæði fyrir inn- anlandsflug á höfuðborgarsvæðinu. Samkvæmt orðanna hljóðan var heldur ekki fjallað um Keflavíkur- flugvöll sem hugsanlega miðstöð innanlandsflugvallar. Hanna Guðrún Sigurjónsdóttir er Reykvíkingur ársins 2015. Hún starfar sem þroskaþjálfi í Fellaskóla og er formaður húsfélags fjölbýlishúss við Kóngsbakka. Tilkynnt var um þetta í síðustu viku en jafnframt var henni boðið að opna Elliðaárnar og landaði maríulaxi. Hanna Guðrún var tilnefnd af nágranna sínum í fjölbýlishúsinu að Kóngsbakka í neðra Breiðholti en þar hefur hún verið dugmikil fyrirmynd hvað varðar flokkun á rusli, umhverfisvernd og kærleika og umhyggju gagnvart nágrönnum sínum. Dagur B. Eggertsson borgarstjóri og fulltrúi í Reykjavíkur fjallaði um niðurstöðu nefndarinnar í vikulegu fréttabréfi sínu og segir ar meðal annars: „Það er gríðarlega mikilvægt fyrir allt framhald flugvallarmáls- ins að niðurstaða Rögnu-nefndar- innar er eftir ítarlega gagnaöflun og yfirlegu einróma. Flugvallarmálið hefur verið deilumál áratugum saman og mikilvægt að umræðan í kjölfar niðurstaðna nefndarinnar verði tekið af opnum hug og mál- efnalega. Áframhaldandi óvissa og deilur hefðu verið versta niður- staðan.“ Þessar ungu konur léku fyrir vegfarendur í Bankastrætinu á dögunum öllum til mikilliar ánægju. Víða er framkvæmt í borginni. í Fellahverfi þar sem eitt sinn var verslun KROn er nú komin íbúðabygging en unnið er að frágangi. Mynd: Flóki Ingólfsson.

x

Reykjavík

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Reykjavík
https://timarit.is/publication/1086

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.