Reykjavík - 27.06.2015, Blaðsíða 12

Reykjavík - 27.06.2015, Blaðsíða 12
➤ Gluggaþvottur ➤ Gluggaþvottur að innan ➤ Klæðningahreinsun ➤ Ræsting ➤ Húsfélagaþjónusta ➤ Gólfbónun ➤ Teppahreinsun ➤ Steinteppahreinsun ➤ Bílastæðahreinsun ➤ Djúphreinsun gangstétta Við sérhæfum okkur í gluggaþvotti og leggjum sérstaka áherslu á að viðhafa vönduð vinnubrögð. Gerum föst verðtilboð og samninga til lengri tíma, hvort sem um er að ræða smá eða stór verkefni. Glersýn er staðsett að Smiðjuveg 4 í Kópavogi og skrifstofan að Glæsibæ 20 í Reykjavík. Fáðu tilboð í síma 663 0000 eða glersyn@glersyn.is www.glersyn.is Glersýn Eigum allar síur í New Holland og JCB á lager Skeiðarás 3 Garðabær Sími 5272600 velavit@velavit.is Útvegum olíuverk í flestar gerðir bíla og tækja Varahlutir - Viðgerðir Vélavit útvegar varahluti í flestar gerðir traktora, sérhæfum okkur í JCB, Hydrema, Iveco, New Holland og Case Vélavit Hafið samband og látið okkur aðstoða við að útvega réttu varahlutina Oftast ódýrastir! Erum einnig með alla varahluti í JCB vinnuvélar 27. Júní 201512 REYKJAVÍK VIKUBLA Ð VI KU BL AÐREYKJAVÍK Auglýsingasíminn er 578 1190 Breytingar á ferðaþjónustu fatlaðra í vetur: „Reykjavíkurborg ber að axla ábyrgð á þessu sorglega máli“ Fulltrúar meirihluta og minni- hluta í borgarstjórn Reykjavíkur greinir á um ábyrgð stjórnar Strætó bs. vegna fjölda mistaka við inn- leiðingu breytinga á ferðaþjón- ustu fatlaðra í vetur. Framsókn og flugvallarvinir krefjast þess að skipt verði um stjórn og vísa meðal ananars til þess að stjórnin hafi í reynd verið sett af í vetur og neyðarstjórn skipuð til að sjá um feðraþjónustuna. Sjálfstæðismenn segja að borgin eigi að axla ábyrgð, eins og önnur sveitarfélög á höf- uðborgarsvæðinu. Stjórnarmenn í Strætó eigi að horfa í eigin barm. Fulltrúar meirihluta Bjartrar fram- tíðar, Pírata, Samfylkingar og Vinstri grænna segja hins vegar að ekki megi kenna núverandi stjórn um allt sem aflaga fór. Ekki sé víst hver hafi átt að bera heildarábyrgð á innleiðingu breytinganna. Meirihluti borgarráðs felldi á dögunum tillögu Framsóknar og flug- vallarvina um að skipa nýja fulltrúa í stjórn Strætó bs. Tilefnið er klúður og ófarir við innleiðingu á breytingum á ferðaþjónustu fatlaðra í vetur. Fram hefur komið að breytingarnar hafi verið gerðar á röngum tíma árs, ekk- ert samráð hafi verið haft við þá sem þjónustuna fá, fólki með þekkingu og reynslu hafi verið sagt upp störfum, einnig fötluðum starfsmönnum. Þjónustan var enn fremur mjög slæm. Mikið var um seinkanir. Fólk þurfti að bíða úti um hávetur, eða var skilið eftir. Dæmi voru um að fólk týndist eða gleymdist og þótti mildi að enginn skaðaðist meira en raun ber vitni. Ákveðið var að setja á stofn sérstaka neyðarstjórn undir forystu Stefáns Eiríkssonar, forstöðumanns Velferðarsviðs borgarinnar, í því skyni að koma ferðaþjónustunni í lag. Ný- lega var svo lögð fram svört skýrsla frá Innri endurskoðun borgarinnar, þar sem innleiðinginn fær falleinkunn. Tillagan felld Framsóknarmenn í borgarráði lögðu til í febrúar að skipt yrði um stjórn í Strætó bs. Skipt yrði um fulltrúa Reykjavíkur og varamann í stjórn- inni. „Jafnframt skorum við á full- trúa Reykjavíkurborgar í Sambandi sveitafélaga á höfuðborgarsvæðinu að leggja fram tillögu á stjórnarfundi SSH um að öll stjórn Strætó bs. verði leyst frá störfum og ný stjórn skipuð, en Reykjavíkurborg er eigandi 60,3% í Strætó bs. , skv síðasta ársreikningi og hefur vald samkvæmt því.“ Tillögunni var þá frestað, en hún var tekin fyrir í síðustu viku og þá felld með 4 atkvæðum borgarráðsfulltrúa meirihlutans, gegn þremur atkvæðum framsóknar- og sjálfstæðismanna. Veik stjórn og ráðríkur stjórnandi Í bókun meirihlutans er skuldinni að mestu leyti skellt á Reyni Jónsson, fyrr- verandi framkvæmdastjóra byggða- samlagsins, en sagt „hæpið“ að „veik“ stjórn eigi að axla alla ábyrgð. „Í skýrslu innri endurskoðunar Reykjavíkurborgar um sameiginlega ferðaþjónustu fatlaðs fólks er rakið hvar ábyrgð á mótun og innleiðingu breytinganna á þjónustunni liggur og er ljóst af henni að hæpið er að færa ábyrgð á þeim misbrestum sem urðu í innleiðingunni á stjórn Strætó bs. í jafn ríkum mæli og gengið er út frá í tillögu Framsóknar og flugvallarvina um að hlutast verði til um að skipta út stjórnamönnum í fyrirtækinu.“ Vísað er til skýrslu innri endur- skoðuna að Strætó „hafi verið í þeirri einkennilegu stöðu að hafa ráðríkan framkvæmdastjóra sem virðist hafa farið sínu fram, en að því er virð- ist frekar veika stjórn þar sem skipt var reglulega um stjórnarformann. Í því ljósi segir innri endurskoðun nauðsynlegt að skýra til fulls hlut- verk og umboð stjórnar Strætó bs. og skilgreina hlutverk fulltrúaráðs SSH í eigendastefnu. Sú stjórn sem nú situr í Strætó var skipuð þegar innleiðing breytinganna var að hefjast en ekki var ljóst hverjum var falið að bera heildar- ábyrgð á því verkefni.“ Eigendur hafi haldið að Strætó bæri alla ábyrgð, en Strætó hafi bara talið sig bera hluta af ábyrgðinni. „Eðlilegra“ að styðja stjórnina „Í því samhengi telur innri endur- skoðun að eftirlit hjá sveitarfélögum og velferðaráðum þeirra hafi brugð- ist. Borgarráðsfulltrúar Samfylkingar, Bjartrar framtíðar, Vinstri grænna og Pírata geta í þessu ljósi ekki tekið undir tillögu þar sem skuld er skellt á stjórn Strætó bs. og fullyrt er að verkefni tengd Strætó bs. séu stjórninni almennt ofviða. Eðlilegra er að eigendur styðji við núverandi stjórn í sínum verkum eins og þarf og axli þannig sinn hluta ábyrgðarinnar á þeim mistökum sem gerð voru við innleiðingu á sameig- inlegri ferðaþjónustu fatlaðs fólks á höfuðborgarsvæðinu,“ segir í bókun meirihlutans. „Ber að axla ábyrgð“ Sjálfstæðismenn segja í sinni bókun að stjórnarmenn í Strætó hljóti að hugleiða stöðu sína, enda hafi eftirlit hennar með innleiðingunni brugðist. Þar er tekið undir með því sem segir í skýrslu innri endurskoðunar um að stjórnin hafi verið veik og hún hafi öðru fremur stimplað tillögur framkvæmdastjórnar Strætó bs. „Enn fremur segir að ekki verði annað séð en að eftirlit stjórnar með rekstri hafi brugðist varðandi verkefni er lutu að ferðaþjónustu fatlaðs fólks. Reykja- víkurborg ber að axla ábyrgð á þessu sorglega máli. Það eiga önnur sveitarfé- lög á höfuðborgarsvæðinu að gera líka. Borgarráðsfulltrúar Sjálfstæðisflokks hafa áður bent á að stjórnarmenn hljóti að hugleiða stöðu sína.“ Undrast tregðu „Framsókn og flugvallarvinir furða sig á tregðu meirihlutans til að axla stjórn- unarlega, faglega og pólitíska ábyrgð á þeirri handvömm sem kjörin stjórn Strætó bs. hefur orðið uppvís að,“ segir í þeirra bókun. Þar segir að í byrjun febrúar hafi ákveðin mál verið færð frá stjórn Strætó og sérstök neyðarstjórn hafi verið skipuð um ferðaþjónustuna „þar sem ljóst var að skipaðri stjórn var ofviða að standa að og klára innleiðingu ferðaþjónustu fatlaðra. Þá liggur fyrir skýrsla innri endurskoðanda þar sem kveðinn er upp áfellisdómur yfir stjórn Strætó bs. í þeim verkefnum sem snúa að ferðaþjónustu fatlaðra.“ Þá ítrekar borgarráðsfulltrui Framsóknar og flugvallarvina að stjórn Strætó bs. hafi „misst traust íbúa höfuðborgarsvæð- isins og borgarbúa til áframhaldandi verka.“ Vald stjórnarmanna Reykjavíkurborg á um tvo þriðju í Strætó, en samkvæmt stofnskrá byggðasamlagsins þarf ¾ atkvæða- magns til að taka stærri ákvarðanir. Þá þurfa þrjú sveitarfélög að sam- þykkja, auk þess sem hvert og eitt sveitarfélag hefur neitunarvald. Ábyrgð stjórnar „Það er auðvitað á ábyrgð stjórnar og framkvæmdastjóra Strætó bs. hvernig að þessari framkvæmd var staðið,“ sagði Ásgeir Eiríksson, fv. framkvæmdastjóri Strætó, við Reykjavík vikublað í febrúar. Hann talaði raunar einnig sérstaklega um framgöngu þáverandi fram- kvæmdastjóra Strætó, Reynis Jóns- sonar, í aðdraganda innleiðingar- innar, og taldi vera sjálfstætt rannsóknarefni. Bryndís Haraldsdóttir, stjórarformaður, Sjálf- stæðisflokki, Mosfellsbæ. Gunnar Valur Gísla- son, Sjálfstæðisflokki, Garðabæ. Sigrún Edda Jónsdóttir, Sjálfstæðisflokki, Sel- tjarnarnesi Einar Birkir Einarsson, Bjartri framtíð, Hafnar- firði Theódóra Þorsteins- dóttir, Bjartri framtíð, Kópavogi Kristín Soffía Jónsdóttir, Samfylkingu, Reykjavík

x

Reykjavík

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Reykjavík
https://timarit.is/publication/1086

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.