Reykjavík - 27.06.2015, Page 11
1127. Júní 2015 REYKJAVÍK VIKUBLA
Ð
engan mann kjörinn vöktu töluverða
athygli á dögunum. „Ég er bara lýsa því
að auðvitað hlýtur manni sem mann-
eskju - maður verður ekki kaldrifjaður
þótt maður sé orðinn stjórnmálamaður
- að spyrja sjálfa sig hvers vegna maður
er á þingi. Allavega á maður alltaf að
vera að spyrja sjálfan sig: „Er ég ekki
hér inni vegna þess að einhver vill það?
“ Þegar eitthvað gefur svo til kynna að
það sé ekki þannig þá finnst mér að við
eigum að fjalla um það alveg eins og við
fjöllum um gott gengi,“ segir Björt. „Ég
er í raun bara að ávarpa það sem maður
heyrir alltaf á stjórnmálamönnum að ef
það gengur vel í könnunum þá eiga allir
rosamikið inni fyrir því en við erum
vön því að talað sé minna um það ef
niðurstöður eru öðruvísi.“
Sérstaða og tilgangur
- Þú ert varla ónæm fyrir þeirri umræðu
að Björt framtíð hafi ekki náð að sýna
fram á tilgang sinn í stjórnmálunum.
Er ástæðan fyrir veru þinni á hreinu?
„Nei að sjálfsögðu er ég ekki ónæm
fyrir neinni þannig umræðu og ekkert
okkar er þannig. Fólk tekur gagnrýni til
sín og vill gera betur. Það á örugglega
við um flest fólk í stjórnmálum þótt
það sé mismunandi hvað fólk segir út
á við.“
- Hvað með þinn tilgang á þingi?
Það var mjög heillandi, þótti mér
og stórt og mikið baráttumál, að
breyta því hvernig stjórnmál eru.
Það finnst mér mjög stórt mál. Ég
held að ef við breytum þeirri grunn-
forsendu þá breytum við svo mörgu
í leiðinni,“ svarar Björt. „Ég held að
við höfum verið kosin út á það. Fólk
er orðið þreytt á því hvernig stjórnmál
eru iðkuð en í þeirri reiði og átökum
sem stjórnmálin eru í núna, öll þessi
verkföll, rammaáætlun og ásýnd sem
þingið hefur vegna erfiðra mála, þá er
kannski ekkert sérstaklega mikil eft-
irspurn eftir því að gera hlutina öðru-
vísis. Hvernig er best að segja þetta?
Fólk er svolítið vant því að hart sé látið
mæta hörðu og það er svolítið beðið
um það - finnst manni. Í því umhverfi
erum við kannski á svolítið skrýtnum
stað vegna þess að fólk er vant öðrum
viðbrögðum.“
Átakakúltúr
- Getur verið að tilgáta Bjartrar fram-
tíðar um að átök séu í eðli sínu vond og
ómálefnaleg sé einfaldlega röng og það sé
Bjartri framtíð til trafala? Átök eiga sér
nefnilega oft eðlilegar skýringar.
„Ég hef ekki þá tilgátu um að átök
séu vond og Björt framtíð hefur það
ekki. Það er bara spurning um hvernig
maður fer inn í átökin. Hvort maður
setur á sig boxhanskana eða tekur ein-
hvernveginn öðruvísi á málum. Það er
engin átakafælni í Bjartri framtíð en
það eru miklar væntingar hjá okkur
um að við getum breytt því hvernig
þessi átök eru meðhöndluð svo að
niðurstöðurnar séu betri.“ - Hverjar
eru þessar aðferðir? „Þær eru mýkri
og byggjast meira á samtali og sátt.
Þetta snýst um að reyna að fá fólk til að
hverfast ekki á tveimur pólum heldur
mætast í miðjunni.“
- Nú er gjarnan bent á líkindi við Sam-
fylkinguna, nú þegar þú talar um mýkri
stjórnmálahefð þá hugsar maður um
samræðustjórnmálin sem Samfylking
boðaði fyrir nokkrum árum?
„Ég kannast ekki alveg við það að
okkur sé alltaf líkt við Samfylkinguna.
Í ýmsum málum er meira frjálslyndi
hjá okkur en t.d. Sjálfstæðisflokknum.
Ýmsir aðrir t.d. eins og Hanna Birna
Kristjánsdóttir ræða um samræðu-
stjórnmál. Það er ekkert sem Samfylk-
ingin á frekar en annað. Það fer svolítið
eftir því við hvern er rætt hvar hann
sér tengingar okkar við aðra.“ - Spurn-
ingin er samt alltaf hvort þið hafið náð
að sannfæra kjósendur um tilgang þess
að þið séuð eigin stjórnmálaafl? „Ég held
að þeir sem að kusu okkur hafi séð að
við værum eitthvað annað en allir hinir
flokkarnir. Ég held að það sé eiginlega
bara stutta og besta svarið við þessari
spurningu.“
Píratar taka fylgið
Björt bendir á að fylgi alla flokka sé að
fara til Pírata. Það sé ekki bara vandamál
Bjartrar framtíðar.
- Er Pírötum kannski að takast að breyta
ásýnd stjórnmálanna, ykkar ætlunar-
verki?
„Píratar eru bara duglegir í því að vera
með ferska nálgun og þeir fá athygli fyrir
það. Þeir eru komnir á radar fjölmiðla og
annarra. Það gengur bara vel hjá þeim og
mér finnst það bara gott. Ég samgleðst
þeim með það og finnst það bara gott.
Þau gera ýmsa hluti bara mjög vel.“
UMFJÖLLUN
Atli Þór Fanndal
atli@thorfanndal.com
Björt hér fyrir miðri mynd, í hópi félaga sinna., hefur velt fyrir sér umboði
stjórnmálamanna með þverrandi fylgi. Stjórnarflokkarnir, einkum Fram-
sóknarflokkurinn, hafa tapað fylgi. Stjórnarandsötðuflokkar utan Pírata ná
sér ekki á strik í könnunum.
„Er ég ekki hér inni vegna þess að einhver vill það?“ segir Björt Ólafsdóttir.
Stefanía Óskarsdóttir bendir á að
umboðið sé óumdeilt.
Margrét Tryggvadóttir hefur velt fyrir
sér grundvallarspurningum.