Selfoss - 28.05.2015, Blaðsíða 12
Leikskólastjóri
Sveitarfélagið Árborg auglýsir eftir leikskólastjóra vegna
leyfis frá og með 1. ágúst 2015 við:
• Leikskólann Brimver/Æskukot
Leikskólinn er með tvær starfseiningar, Brimver á Eyrar-
bakka og Æskukot á Stokkseyri.
Leikskólinn er heilsuleikskóli sem leggur mikla áherslu á
hreyfingu og tónlist. Leikskólinn er í góðu samstarfi við
Barnaskólann á Eyrarbakka og Stokkseyri og eru leikskóla-
börnin þátttakendur í verkefninu Barnabæ sem hlotið hefur
mikla athygli og viðurkenningu Heimilis og skóla.
Leitað er að áhugasömum og metnaðarfullum stjórnanda
með leikskólakennararéttindi og stjórnunarreynslu.
Í sveitarfélaginu búa rúmlega 8 þúsund manns, lögð er
áhersla á eflingu skólastarfs, snemmtæka íhlutun og gott
samstarf foreldra og helstu fagaðila sem koma að málefnum
barnanna.
Meginverkefni:
- Veita faglega forystu á sviði kennslu og þróunar
í skólastarfi.
- Stýra og bera ábyrgð á daglegri starfsemi, fjármálum og
rekstri skólans.
- Bera ábyrgð á stefnumörkun skólans sem tekur meðal
annars mið af skólastefnu sveitarfélagsins og aðalnám
skrá leikskóla.
Menntun og færnikröfur:
- Leikskólakennararéttindi áskilin.
- Menntun og reynsla í stjórnun æskileg.
- Færni í mannlegum samskiptum.
- Áhugi og hæfni í starfi með börnum.
- Leiðtoga- og skipulagshæfileikar.
- Frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð.
Frekari upplýsingar veitir Þorsteinn Hjartarson, fræðs-
lustjóri, sími 480-1900, 852-3918. Áhugasamir geta sent
umsóknir á skolathjonusta@arborg.is eða í pósti merktum
fræðslusviði Árborgar v/leikskólastjóra, Austurvegi 2, 800
Selfoss. Umsóknarfrestur er til 5. júní 2015 . Karlar jafnt
sem konur eru hvattir til að sækja um störfin. Laun fara eftir
kjarasamningi launanefndar sveitarfélaga og viðeigandi
stéttarfélags.
Deildarstjóri
Leikskólinn Brimver/Æskukot óskar eftir að ráða í tvær
stöður deildarstjóra frá og með 10. ágúst 2015. Leitað er að
metnaðarfullum einstaklingum sem eru tilbúnir til að taka
þátt og leiða áfram gott faglegt starf í skólanum.
Meginverkefni:
Vinnur samkvæmt starfslýsingu deildarstjóra að uppeldi og
menntun leikskólabarna.
Tekur þátt í skipulagningu faglegs starfs og foreldrasam-
starfs undir stjórn leikskólastjóra.
Menntun og færnikröfur:
- Leikskólakennararéttindi áskilin
- Jákvæðni, frumkvæði og samstarfsvilji.
- Færni í mannlegum samskiptum.
- Áhugi og hæfni í starfi með börnum.
- Góðir skipulagshæfileikar.
- Færni til að tjá sig í ræðu og riti.
Frekari upplýsingar veitir M. Sigríður Jakobsdóttir, sími
4803272/4806352 og áhugasamir geta sent umsóknir á
netfangið brimver@arborg.is
Umsóknarfrestur er til 5. júní 2015.
Starfið hentar jafnt körlum sem konum og launakjör eru
samkvæmt kjarasamningi Launanefndar sveitarfélaga og
viðkomandi stéttarfélags.
28. Maí 2015
„Grettisgata“
Fjögurra daga gönguleið frá Geysi í Haukadal,
í Botnsdal í Hvalfirði. Valkostur við Laugaveginn.
- „Nútíminn býður manni upp á þann
munað að ferðast án tilgangs. Að fara
á milli staða án þess að eiga sérstakt
erindi. Þegar brunað er á bíl eftir
þjóðvegum skimar maður til fjalla og
veltir fyrir sér: „Hvernig skyldi vera
þarna? Þarna hinum megin við fjöll-
in? Einhvern tímann ætti maður að
rannsaka það.“ Svo gerir maður það
kannski aldrei. En stundum fylgir
maður hvötinni og drífur sig af stað.“
Þannig hefst hún rafbókin sem
Örn Arason skrifar og gefur út. Örn
vekur athygli á og lýsir fjögurra daga
gönguleið frá Geysi í Haukadal í
Botnsdal í Hvalfirði sem höfundur
nefnir Grettisgötu. Gönguleið þessi
er aðgengileg og fremur auðveld
gönguleið um frekar fáfarið svæði
í óbyggðum sem er engu að síður
stutt frá byggð. Leiðarlýsingin mið-
ast við bakpokaferðalanga en hún
hentar líka dagferðalöngum og fyrir
trússferðir.
Hér er verið að benda göngugörp-
um á valkost við aðrar þekktari leiðir
svo sem Laugaveg og Fimmvörðu-
háls þar sem álagið og mannfjöldinn
er jafnvel farinn að spilla fyrir upp-
lifuninni. Í rafbókinni lýsir höf-
undur leiðinni og upplifun sinni af
henni. Þar má finna GPS punkta,
yfirlitskort og ljósmyndir frá svæð-
inu sem gengið er um.
Bókin er einungis fáanleg sem raf-
bók á vefnum www. landnama.is sem
höfundur opnaði af þessu tilefni.
Rafbókina er hægt að prenta út eða
lesa af tölvuskjám og spjaldtölvum.
Örn starfar sem tölvunarfræðingur
en hefur verið áhugasamur útivista-
maður í áratugi. ÞHH
12
Að hætti hússins
Kristjana Sigmundsdóttir
kristjanasig@simnet.is
Skorað á
síðustu
mínútu
Það var atgangur í fótboltan-um í liðinni viku. Áttust við tvö lið af Suðurlandi. Selfoss
hafði betur og skoraði í blálokin.
Það mark gerði útslagið. ÍBV skoraði
marki minna eða tvö.
Vonandi fer verkföllunum að ljúka - og með farsælli lausn. Ég hef minnst á það áður
að hægeldaður matur er bæði góður og
safaríkur. Hægeldaður kjúklingur með
sítrónum er frábær laugardagsmatur
sem getur verið í ofninum meðan farið
er í sund eða út að viðra hundinn.
Nú er blóðbergið farið að spretta og
sítrónur minna á sólina og sumarið.
Hægeldaður kjúklingur
1 kjúklingur eða bitar
2-3 sítrónur
1 heill hvítlaukur
Blóðberg
½ dl olía
Skvetta af hvítvíni (má sleppa)
Sætar kartöflur
Salt og pipar
Stillið ofninn á 150°C.
Hlutið kjúklingin í nokkra bita,
skerið sítrónur í fjóra hluta og hvítl-
aukinn í geira.
Sætar kartöflur í bita. Raðið þeim
neðst í eldfast form og raðið svo
saman kjúklingi, sítrónum og hvít-
lauk. Stráið blóðbergi yfir, salti og
pipar. Skvettið olíu og hvítvíni yfir.
Setjið álpappír yfir og setjið í ofn í 1
½ - 2 tíma. Takið svo álpappírinn af
og hækkið hitann í 200°C og eldið
áfram þar til kominn er litur á kjúll-
ann og hann gegnsteiktur eftir ca. 20
mínútur.
Berið fram með góðu salati. Tilvalið
að nota fíflablöð og hundasúrur með
vorbragði.
Gangi ykkur vel og verði ykkur að
góðu.
Kveðja, KS
SAFARÍKUR
KJÚKLINGUR
Grettisgata
Gönguleið frá Geysi að Glym
Örn Arason