Vestfirðir - 12.02.2015, Side 8

Vestfirðir - 12.02.2015, Side 8
8 12. Febrúar 2015 Þrjú hundruð þúsund krónur innan þriggja ára Finnbogi Sveinbjörnsson, formaður Verkalýðsfélags Vestfirðinga er ómyrkur í máli þegar hann er spurður um kröfu verkalýðsfélaganna. „Við viljum að lægsti taxti verði 300 þús kr á mánuði innan þriggja ára.“ Blaðið Vestfirðir heimsótti Finnboga á skrifstofu hans á Ísafirði og innti hann eftir því hverjar væru kröfurnar fyrir komandi kjarasamninga. Framkvæmdastjóri Samtaka atvinnu- lífsins brást illa við kröfunum og neitar að ræða kröfurnar hvað þá að sam- þykkja þær. Ber hann því við að kaup- hækkunin myndi ganga eftir öllum vinnumarkaðnum og í heild myndu launahækkanirnar verða 500 milljarðar króna. Það væri atvinnufyrirtækjum ofviða og afleiðingin yrði gamalkunn- ug, verðbólga sem eyddi skjótt fengn- um kauphækkunum. Víst hefur það oft orðið reynslan, einkum fyrir daga þjóðarsáttarinnar 1989. En hvers vegna vilja forsvarsmenn launþega ekki fallast á“hóflegar“ kauphækkun og staðfesta efnahagslegan stöðugleika og áfram- haldandi lága verðbólgu? “Misskiptingin hefur stóraukist í samfélaginu“, segir Finnbogi og bendir á að launin séu orðin svo lág aðeinstæðir foreldrar séu að hrekjast úr starfi vegna þess að auðveldara sé orðið að ná endum saman á örorku- og atvinnuleysisbótum. Kauptaxtar séu nú frá 201.000 kr - 238.000 kr á mánuði.“Fólk kaupir ekki í matinn fyrir hagfræðikenningar. Það þarf raunverulegar krónur í launaumslagið. Hagfræðikenningar eru skeikular eins og veðurfarið“, segir Finnbogi Svein- björnsson. Hann bendir á gögn ASÍ sem sýna að dagvinnulaun verkafólks á Norðurlöndunum eftir skatta og leið- rétt fyrir verðlagi séu 30% hærri en á Íslandi. Finnbogi bendir á að þessi láglaunastefna sé fyrirtækjunum kostnaðarsöm í formi meiri starfs- mannaveltu og aukins álags í vinnunni. Atvinnurekendur vanmeta oft kostn- aðinn af láglaunastefnunni. Þetta er athyglisvert sjónarmið sem vert er að Samtök atvinnulífsins taki alvarlega. Viðurkenndar hagfræðikenningar í vinnumarkaðsfræðum eru að hærri laun leiði til minnandi vinnu þar sem fyrirtækin mæti hærri kostnaði af hverjum starfsmanni með því að fækka störfum og öfugt. Erlendar rann- sóknir gefa til kynna að áhrifin af því að hækka sérstaklega lægstu laun séu stór- lega ofmetin, þar sem hækkunin fari einmitt ekki út um allan launamark- aðinn. Finnbogi Sveinbjörnsson nefnir sérstaklega grein eftir Viðar Ingason, hagfræðing VR um áhrif hækkun lægstu launa á atvinnu. Í Bandaríkj- unum eru lögfest lágmarkslaun og 1992 hækkaðu lágmarkslaunin í New Jersey en ekki í nálægum borgum sem voru í öðru fylki. Rannsóknir drógu fram að hækkunin í New Jersey hafði ekki áhrif til þess að draga úr framboði á vinnu. Í upphafi árs 2014 hækkuðu lágmarkslaun í 13 fylkjum Bandaríkj- anna og tvær ransóknir hafa þegar verið gerðar. Önnur sýndi engin áhrif af launahækkuninni á atvinnu og hin sýndi tölfræðilega ómarktæk áhrif en benti þó til jákvæðra áhrifa. Þótt þessar rannsóknir séu ekki nægilegar til þess að fullyrða ná- kvæmlega um hver áhrifin af miklum hækkun lægstu taxta yrðu á íslenskan vinnumarkað eru þær þó á þann veg að þær veikja fullyrðingar samtaka atvinnulífsins um að sama prósentu- hækkun myndi ganga yfir öll störf á vinnumarkaði. Formaður Verkalýðsfélags Vest- firðinga segir að samninganefnd Starfsgreinasambands Íslands semji fyrir 12.000 manns í 16 félögum,“- meðaltekjur fyrir dagvinnu, það er taxtakaupið að viðbættu álagi eða bónus er ca. 250 - 270 þúsund krónur á mánuði og að viðbættri mikilli yf- irvinnu eru heildartekjurnar um það bil 350 - 370 þúsund krónur á mánuði. Stærsti hópurinn er fisk- vinnslufólk. Hann er um fjórðungur innan Starfsgreinasambandsins. En innan Verkalýðsfélags Vestfirðinga er þessu hópur um helmingur af þeim sem við semjum fyrir. Grunnlaunin í fiskvinnslu eru um 208.000 - 214.000 kr. á mánuði og brúttólaunin með bónus og yfirvinnu um 300 þúsund krónur. Þetta eru öll ósköpin sem greidd eru. Á síðustu árum hafa verið greiddar um 80 milljarðar króna í arð í sjávarútvegi. Ef við gerum ráð fyrir því að hver og einn fái 100 þús kr í launahækkun er kostnaðurinn að hámarki 14 milljarðar króna sem er fjarri þeim 500 milljörðum sem sam- tök atvinnulífsins klifa á“ Öllu skýrari verður misskiptingin ekki þegar þetta tvennt er borið saman sem Finnbogi Sveinbjörnsson nefnir, lágu launin í fiskvinnslunni og háu arðgreiðslurnar. Því til viðbótar hefur komið fram að ríkasta 1% landsmanna, um 1900 fjöl- skyldur eiga um fjórðung alls auðsins í landinu. Þessi hópur hafi aukið hlut sinn frá árinu 2002 til 2012 úr 17% upp í 23% alls auðs landsmanna. Auðurinn hafði aukist um þriðjung á aðeins 10 árum hjá þessu 1% sem mest á. Þetta kemur fram í skýrslu Oxfam, bresku hjálparsamtakanna. Áframhaldandi láglaunastefna jafngildir vaxandi ójöfnuði og mis- skiptingu, segir Finnbogi Svein- björnsson og veldur atvinnulífinu ómældum kostnaði og skaðar þjóð- félagið. Lægstu laun verði 300 þús. kr. innan þriggja ára Meginkröfur Starfs- greinasambandsins eru þær að: • miða krónutöluhækkanir á laun við að lægsti taxti verði 300 þúsund krónur á mánuði innan þriggja ára og sérstaklega verði horft til gjald- eyrisskapandi atvinnugreina við launahækkanir. • endurskoða launatöflur þannig að starfsreynsla og menntun séu metin til hærri launa. • desember- og orlofsuppbætur hækki. • vaktaálag verði endurskoðað og samræmt kjarasamningum á opin- berum vinnumarkaði. • lágmarksbónus verði tryggður í fisk- vinnslu. • skilgreind verði ný starfsheiti í launatöflu. hærri en að meðaltali á hinum Norðurlöndunum. Mestur munur er gagnvart Svíþjóð og Noregi en min i gagnvart Danmörku og finnskir stjórnendur er með 3% hærri dagvinnulaun en stjórnendur hér á landi. Ef litið er á dagvinnulaun sérfræðinga eru þau um 3-5% lægri hér á landi en í hinum löndunum, hæst eru laun sérfræðinga í Noregi og lægst í Svíþjóð. Hluta af þessum mun má skýr með minni tekj jöfnunaráhrifum íslenska skattkerfisins, þar sem háte jur hér á landi eru skattlagðar m n minna en á hinum Norðurlöndunum og því verður hlutf llslega meira eftir í buddu hátekjuhópa hér á landi. Mestur munur á dagvinnulaunum er hins vegar gagnvart verkafólki og þjónustu-, sölu- og afgreiðslufólki. Hér á landi eru dagvinnulaun verkafólks allt að 30% lægri en a meðaltali á hinum Norðurlöndunum. Mestur er þessi munur gagnvart Danmörku, 42% og Noregi, 34% en minnstur gagnvart Svíþjóð, 15%. Hjá þjónustu-, sölu- og afgreiðslufólki er þessi munur um 20%, mestur gagnvart Danmörku og Noregi og minnstur gagnvart Svíþjóð. Það er einnig áberandi á mynd 2 að meiri munur er á launum kvenna en karla í öllum starfsstéttum. Það bendir til þess að óleiðréttur launamunur kynjanna sé meiri hér á landi en á hinum Norðurlöndunum. Mynd 2 Finnbogi Sveinbjörnsson.

x

Vestfirðir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vestfirðir
https://timarit.is/publication/1082

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.