Vestfirðir - 12.02.2015, Síða 14
14 12. Febrúar 2015
Samdráttur á Vestfjörðum síðan 2008
Hafin er vinna að stefnumótun fyr ir Sóknaráætlun Vestfjarða árin 2015-2019,
í samræmi við fyrirhugaðan samning
milli ríkis og sveitarfélaganna um þetta
efni. Haldnir voru þrír opnir fundi á
Vestfjörðum í janúar til að safna hug-
myndum og forgangsraða þeim. Fund-
irnir voru á Patreksfirði, Hólmavík og
á Ísafirði.
Að sögn Aðalsteins Óskarssonar,
framkvæmdastjóra Fjórðungssam-
bands Vestfirðinga, á Sóknaráætlun
Vestfjarða 2015-2019 á að fjalla um
nýsköpun og atvinnuþróun, menn-
ingarmál, uppbyggingu mannauðs
og lýðfræðilega þróun á svæðinu.
Á fundunum var fjallað um stöðu
Vestfjarða í þessum málaflokkum í
stuttum kynningum og síðan unnið
í hópum við hringborð.
Sóknaráætlun landshluta er að sögn
Aðalsteins samstarf ríkis og sveitar-
félaga um stefnumörkun og veitingu
fjármagns til ákveðinna þátta innan
hvers landshluta í atvinnu-, byggða
og menningarmálum. Sóknaráætl-
unin er tilraun til að samhæfa stefnu
og framkvæmd stefnu ráðuneyta í
málum er varða landshlutana. Að
áætluninni koma átta landshlutar og
fjögur ráðuneyti.
Sóknaráætlun Vestfjarða er þróun-
aráætlun landshlutans og felur í sér
stöðumat landshlutans, framtíðar-
sýn og markmið til að ná fram þeirri
framtíðarsýn. Forgangsröðun verkefna
byggir á sóknaráætlun landshlutans.
Áætlunin er gerð til 5 ára en hægt er að
uppfæra hana innan tímabilsins. Upp-
færslur eiga að fylgja sömu skilyrðum
og gilda um mótun áætlunarinnar.
Shiran Þórisson, framkvæmdastjóri
Atvinnþróunarfélags Vestfjarða flutti
framsöguerindi á fundunum og greindi
stöðu atvinnulífs á Vestfjörðum. Hag-
kerfið á Vestfjörðum hefur eftir hrun
bankanna ekki haldið í við verðlags-
breytingar og því heldur dregist saman
að raungildi. Tekjur hafa vaxið um 28%
en vísitalan hefur hækkað um 36%.
Fram kom í erindi Shiran að áform
væru um fiskeldi upp á 40-50 þúsund
tonn sem gæti skapað 400-600 störf
eftir því hvað stærðarhagkvæmni gæti
náðst og framleiðslustigi afurða.
Dagskrá:
1. Staðan í kjaraviðræðum
2. Kosning verkfallsstjórnar
3. Breyting á úthlutunarreglum Vinnudeilusjóðs
4. Önnur mál
Áríðandi að félagsmenn mæti og sýni samstöðu
með réttmætum launakröfum verkafólks.
FélagsFundur
Verk Vest
á Hótel ÍsaFirði
mánudaginn
16. Febrúar kl.20.00
Frá fundinum á Patreksfirði. Mynd: Jón Jónsson.
Frá fundinum á Ísafirði.
Heildartekjur
Millj. Kr.
16%
15%
Í heild sinni er hagkerfið að
velta um 55 milljörðum og
hefur vaxið um 12 milljarða á
síðastliðnum árum.
Heildartekjur hagkerfisins á Vestfjörðum 2008-2012.
Vöxtur tekna og framleiðsluverðmæta
0
50
100
150
200
250
0
10000
20000
30000
40000
50000
60000
2008 2009 2010 2011 2012
Ax
is
Ti
tle
Heildartekjur
Vísitala framleiðsluverðs
Það hefur verið 28% vöxtur
tekna yfir tímabilið en
vísitalan hefur hækkað 36%
yfir tímabilið.
Þróunin 2008 – 2012.
Launagreiðslur
Millj. Kr.
32%
42%
15%
Heildarlaunagreiðslur eru
um 13,6 milljarðar og
hefur vaxið um 2,4
milljarða á undanförnum
árum.
Launagreiðslur 2008-2012.