Víkurfréttir - 31.01.2008, Page 19
VÍKURFRÉTTIR I FIMMTUDAGURINN 31. JANÚAR 2008 19STÆRSTA FRÉTTA- OG AUGLÝSINGABLAÐIÐ Á SUÐURNESJUM
Suðurgata 18, Keflavík
Góð 3ja herbergja 75m2 íbúð á n.h.
í tvíbýli með sérinngangi. Hurð úr
stofu út á baklóðina. Buíð að endurnýja
þakjárn og miðstöðvarlögn. Laus strax.
13.200.000,-
Steinás 1, Reykjanesbæ
139m2 parhús með bílskúr. Parket og
flísar á gólfum, hitalögn með hitastillum
í gólfum. Stór og mikil afgirt
verönd með heitum potti.
33.000.000,-
Jón Gunnarsson, löggiltur fasteigna- og skipasali - Hafnargata 27 - 230 Keflavík
s: 421 1420 og 421 4288 - fax 421 5393 - Netfang: asberg@asberg.is
Langholt 16, Keflavík
Gott 151m2 einbýli með 4 svefnher-
bergjum ásamt 44m2 bílskúrs. Mikið
búið að endurnýja þ.á.m. skolp, neyslu-
vatnsl. miðstöðvarl. og þak ásamt fleiru.
39.000.000,-
Baugholt 19, Keflavík
Rúmgott 138m2 einbýli með 46m2
bílskúr. Húsið er með 4 svefnherbergum.
Sólpallur vel afgirtur. Stutt í alla þjónustu
skóla, verzlun og íþróttamiðstöðvar.
34.800.000,-
Heiðarbraut 19, Keflavík
Gott 188m2 einbýli ásamt bílskúr. Í
húsinu eru 4 svefnherbergi, nýjar eikar
innihurðir og eikar parket. Steypt
bílaplan með bomanik. Stutt í skóla.
37.000.000,-
Norðurtún 8, Sandgerði
Vel staðsett 138 fm einbýli með 4 til 5
svefnh. ásamt 42 fm bílskúr. Húsið getur
verið laust fljótlega. Búið að endurnýja
neysluvatn, þakjárn og þakkant.
25.500.000,-
Fagrigarður 6, Keflavík
Gott 138m2 einbýli með 3 til 4 svefnh.
ásamt 35m2 bílskúr. Flísar og eikar
parket á gólfum. Búið að endurnýja
þakkant, þakjárn og allt gler í húsinu.
34.100.000,-
Lyngmói 4, Reykjanesbær
153m2 einbýli ásamt 53m2 bílskúr.
4 svefnherb. stór og opin stofa, nýjar úti-
hurðar og gluggar. Stór afgirtur sólpallur
með heitum potti og stutt er í skóla.
Tilboð
asberg.is
Heiðarhorn 12, Keflavík
Mjög glæsilegt og vel staðsett 215m2
einbýlishús með 4 svefnherbergjum
ásamt bílskúr. Gott og mikið útsýni, stutt
í alla þjónustu þ.e. skóla og verslanir.
Uppl. á skrifst.
Faxabraut 59, Keflavík
179m2 einbýli á tveimur hæðum með
38 fm bílskúr. Það eru 5 svefnherbergi
í húsinu, húsið er á pöllum, búið að en-
durnýja skolplögn. Stutt í alla þjónustu.
39.000.000,-
Lyngholt 9, Keflavík
Falleg 141m2 e.h. ásamt bílskúr og
aukaíbúð í kjallara, samtals 184m2 Parket
og flísar á gólfum, ný eldhúsinnrétting,
nýlegt baðherbergi.
24.000.000.-
Baugholt 29, Keflavík
Gott 199m2 einbýli í rólegu hverfi,
4 svefnherb, parket, flísar og mar-
mari á gólfum. Nýlegt þak, forhitari á
miðstöðvarkerfi. Glæsilegur garður.
39.000.000,-
Fjölskyldu- og fé lagssvið
Reykjanesbæjar (FFR) er eitt
af átta sviðum í stjórnsýslu
R e y k j a n e s -
bæjar. Sviðið
er þjón ustu-
svið við íbúa
bæj ar ins og
h ö f u m v i ð
kosið að nota
frem ur hug-
takið þjónusta en svið þegar
við komum fram opinber-
lega.
Á næstu vikum munu starfs-
menn fjölskyldu- og félags-
þjónustunnar, leitast við að
upplýsa íbúa Reykjanesbæjar
með greinaskrifum, um hvað
felst í félagsþjónustu sveitarfé-
lagsins bæði almennri og sér-
tækri.
Hjá FFR starfa nú yfir fimmtíu
manns í fjörutíu og tveimur
stöðugildum, á skrifstofu, í at-
hvörfum, við félagslega heima-
Hjördís Árnadóttir skrifar:
Í hverju felst félags-
þjónusta sveitarfélaga?
þjónustu, tilsjón, liðveislu og
persónulega ráðgjöf. Einnig
hefur félagsþjónustan aðgang
að stuðningsfjölskyldum og
neyðarheimilum.
Þegar íbúar eru spurðir um
félagsþjónustu sveitarfélagsins,
kemur í ljós að fæstir þekkja
hana af eigin raun. Einhverjir
þekkja hana í gegnum fjöl-
skyldu sína og aðrir af afspurn,
en stór hópur þekkir ekkert til
hennar.
Það má segja að í sjálfu sér sé
það ágætt hvað fáir þekki til
félagsþjónustunnar, því það
bendir til þess að fjöldinn
hvorki hafi þurft, né þurfi á
slíkri þjónustu að halda, sem
undirstrikar að einhverju leyti
það hagkerfi og þá velferð sem
við búum við.
Það er hins vegar staðreynd að
það er á öllum tímum, hópur
fólks sem þarf stuðning frá sam-
félaginu í lengri eða skemmri
tíma og því er nauðsynlegt að
hafa öflugt öryggisnet.
Enginn veit hvað morgundag-
urinn ber í skauti sér og við
sem störfum við félagslega
þjónustu sjáum oft átakanleg
merki um það.
Félagsleg þjónusta er samfé-
lagslegt öryggisnet sem fjár-
magnað er með skatttekjum
frá íbúum. Þannig erum við
búin að leggja inn líkt og í líf-
eyrissjóð, ef til þess kemur að
við þurfum á félagslegri þjón-
ustu að halda.
Félagsþjónusta er að mestu
bundin í lög og reglugerðir.
Það tryggir fagleg vinnubrögð
og að einungis þeir sem þurfa
skv. skilgreindum ákvæðum, á
þjónustunni að halda fái notið
hennar.
Það kemur oft fyr ir að til
okkar leitar fólk sem er í veru-
legum fjárhagslegum vanda,
en hefur tekjur yfir viðmiðun-
armörkum. Þannig aðstæður
eiga almennt ekki erindi inn
á borð félagsþjónustunnar,
nema annar verulegur vandi
sé þar samhliða.
Fjölskyldu- og félagsþjónusta
Reykjanesbæjar er fyrst og
fremst þjónustustofnun við
íbúa bæjarins sem þurfa á fé-
lagslegri þjónustu að halda.
Hjá FFR er leitast við að veita
góða og faglega þjónustu innan
þeirra marka sem lög og reglur
segja til um hverju sinni.
Helstu verkefni félagsþjónust-
unnar eru:
* barnavernd
* stuðningsúrræði
* forsjár- og umgengnismál
* ættleiðingarmál
* fósturmál og vistun
* fjárhagsaðstoð og ráðgjöf
* húsaleigubætur
* félagsleg ráðgjöf
* sálfræðiþjónusta
* daggæslumál
* félagsleg húsnæðismál
* félagsleg heimaþjónusta
* málefni aldraðra
* málefni fatlaðra
* jafnréttismál
* málefni hælisleitenda
Útgjöld til fé lagsþjónustu
Reykjanesbæjar á árinu 2007
voru kr. 348.551.000.- eða kr.
27.580.- á hvern íbúa bæjarins.
Fjölskyldu- og félagsþjónusta
Reykjanesbæjar er reiðubúin
til þjónustu við þig.
Hjördís Árnadóttir,
framkvæmdastjóri
Starfsmenn á skrifstofu FFR