Víkurfréttir - 29.03.2012, Blaðsíða 8
8 FIMMTUdagUrInn 29. Mars 2012 • VÍKURFRÉTTIR
„Þetta byrjaði þegar ég missti vinn-
una og við Stjáni förum í lausa-
mennskubransann. Það var árið
2010, í desember ef mig minnir
rétt,“ segir Guðmundur. Hann
leigði annars staðar í húsinu við
Hafnargötu 35 sem nú hýsir skrif-
stofu þeirra félaga og þar hittust
þeir til þess að vinna að einu verk-
efni. „Svo vatt þetta upp á sig,“ segir
Guðmundur um leið og hann hellir
sjóðandi vatni í bolla fyrir okkur.
Hann er Keflvíkingur í húð og hár
en Kristján er úr Reykjavík en á þó
ættir að rekja hingað. Guðmundur
var alltaf harður á því að vera með
skrifstofu í Reykjanesbæ. „Það lá
alveg fyrir þar sem ég nenni ekki
að vera að keyra til Reykjavíkur á
hverjum degi,“ segir hann og hlær.
„Mig langar að geta haft meiri tíma
til þess að vera með fjölskyldunni
en ég fer stundum til Reykjavíkur á
fundi og þá reyni ég að nýta tímann
sem best.“
Skrifstofan ýtir undir
sköpunargleðina
„Skristofan var PR-stuntið okkar.
En það var samt ákveðin pæling á
bak við þetta allt saman. Ég elska
náttúruna og það að geta labbað
hérna meðfram sjónum,“ segir Guð-
mundur. „Ég hef alltaf verið með-
vitaður um að vilja hafa umhverfið
svona kósý og náttúrutengt. Svona
til þess að ýta undir sköpunargáf-
una. Ég þekki til Daníels (á 1x6
gistihúsinu) og upphaflega ætlaði
hann að gera einn vegg fyrir okkur,
en það vatt upp á sig og við gerðum
aðeins meira.“ Guðmundur segist
finna fyrir því að það sé öðruvísi að
vinna í svona umhverfi og stemn-
ingin sé ólík því sem gengur og
Það er notalegt andrúmsloft á skrifstofu vefhönnunarfyrirtækisins Kosmos & Kaos
við Hafnargötu í Reykjanesbæ. Guðmundur Bjarni Sigurðsson, sem er annar stofnandi þess-
arar framsæknu vefhönnunarstofu býður blaðamanni upp á te og við tyllum okkur og ræðum
málin. Skrifstofa fyrirtækisins hefur vakið verðskuldaða athygli fyrir óvanalegt útlit en útlitið
hönnuðu þau Daníel Hjörtur Sigmundsson og Linda Stefánsdóttir sem reka gistiheimilið 1x6.
Skrifstofan er kannski ekkert gríðarlega óhefðbundin, þarna eru veggir, loft, gólf og gluggar.
Veggur sem smíðaður er að mestu úr rekavið sem hangir niður úr miðju loftinu og róla sem
hangir við innganginn vekja þó gjarnan mikla athygli. Svo ekki sé minnst á fatahengið sem er
í formi getnaðarlims en skrifstofan er sannarlega glæsileg. Nýverið fjallaði hönnunar-vefritið
Abduzeedo um skrifstofu Kosmos & Kaos sem eina þá flottustu í heiminum. Skrifstofan var
einnig sýnd í nýlegu tölublaði Húsa og Híbýla. Þeir félagar Guðmundur og Kristján Gunn-
arsson félagi hans, ákváðu fyrir rúmu ári síðan að taka saman höndum og reyna fyrir sér í
rekstri.
gerist. Allir sem koma í heimsókn
hafa orð á því hvað skrifstofan sé
flott og öðruvísi.
Uppsögnin það besta sem
hefur komið fyrir
Guðmundur er vefhönnuður og
Kristján er verkefnastjóri og á dög-
unum réðu þeir framkvæmdastjóra
en þeir töldu að innra skipulaginu
hjá fyrirtækinu væri ábótavant.
Þeir segjast ekki vita hversu hátt
þeir stefna en þessa stundina gætu
þeir vafalaust bætt við sig starfs-
mönnum. „Okkur vantar fleiri
hönnuði og það væri flott að finna
Alheimurinn var að bíða
eftir Kosmos & Kaos
einhvern héðan af svæðinu. Mig
langar að skapandi hlutinn hjá
okkur sé hérna í Reykjanesbæ,“
segir Guðmundur. Hvers vegna
spyr blaðamaður? „Bara af því
að ég bý hérna, og bara af hverju
ekki? Vefbransinn hérna á svæðinu
er örugglega mun stærri en fólk
heldur. Sem dæmi má nefna að Da-
coda ehf. eru með verkefni hjá fullt
af stórum fyrirtækjum en þeir eru
kannski ekki mikið að flagga því.
Þeir eru frekar hlédrægir kannski, á
meðan að við erum það ekki.“
Guðmundur fór fyrst í Margmiðl-
unarskólann í miðju .com crash-
inu eins og hann orðar það. Hann
fékk enga vinnu í bransanum þá og
vann við smíðar og ýmislegt annað.
„Svo fórum við, ég, konan mín og
barn til Danmerkur þar sem ég
fór í Köbenhavns Tekniske Skole.
Þar lærði ég Mediegrafiker sem er
sambærilegt og grafískur miðlari
hjá Tækniskólanum hérna. Námið
byggist að mestu leyti upp á starfs-
námi sem reyndist mér hrikalega
vel. Ég kunni því að vinna soldið
þegar ég var búinn í skólanum og
búinn að koma mér upp hentugum
aðferðum við hitt og þetta, reynsla
er gríðarlega mikilvæg í þessu
starfi. Ég fékk svo góða vinnu strax
eftir skólann hjá EC hugbúnaði.
Ég byrjaði að vinna í 43 m2 íbúð-
inni okkar í Birkeröd við verkefni
hér heima og í Svíþjóð. Var alveg
hent út í djúpu laugina í nokkrum
verkefnum í Stokkhólmi og þurfti
að ferðast og gista á hótelum, mér
leið eins og rokkstjörnu stundum.
Þegar hrunið kom hér heima
var Guðmundi og restinni af
grafíkdeildinni hjá EC sagt upp.
„Mér leið voðalega illa út af því
um tíma en komst svo í gírinn eftir
nokkra daga og hef verið á fullu
síðan þá. Ég sótti aldrei um vinnu
eftir þessa uppsögn heldur fór að
vinna sjálfstætt. Ég hannaði svo
síðuna mína www.gummisig.com
í hjáverkum að mestu og setti hana
svo í loftið. Fljótlega eftir frumsýn-
inguna komst ég síðan í eitt stærsta
vefgallerý á netinu og þaðan í ótal
mörg önnur, sumir segja í öll vef-
gallerý en ég veit ekki með það.
Eins var vefurinn í 3 bókum í fyrra
og tekin viðtöl við mig í Computer
Arts og öðrum fagblöðum. Þetta
varð til þess að mörg boð fóru að
berast erlendis frá og ég hef unnið
að mörgum erlendum verkefnum
ásamt því að vinna auðvitað mikið
að ýmsu hér heima. Það allra besta
við þetta allt saman var að ég gat
unnið heiman frá og varið þar af
leiðandi þremur klukkutímum
meira á dag heima með fjölskyld-
unni minni. Þessi uppsögn varð
„Svo í fyrra fórum við Kristján Gunnarsson samstarfsfélagi minn hjá
EC að vinna saman að nokkrum verkefnum. Svo fyrir rælni fórum við
að ræða það að vera kannski í fyrirtæki saman, prufa það bara upp
á djókið. Þetta reyndist vera kosmískur viðburður því um leið og við
ákváðum þetta fóru mun stærri verkefni að koma inn á borð til okkar.
Alheimurinn var að bíða eftir Kosmos & Kaos.“