Víkurfréttir - 29.03.2012, Síða 9
9VÍKURFRÉTTIR • FIMMTUdagUrInn 29. Mars 2012
það besta sem hefur komið fyrir
mig og fjölskylduna held ég, þó að
mér hafi vissulega ekki fundist það
á sínum tíma.“
Guðmundur heldur áfram: „Svo
í fyrra fórum við Kristján Gunn-
arsson samstarfsfélagi minn hjá
EC að vinna saman að nokkrum
verkefnum. Svo fyrir rælni fórum
við að ræða það að vera kannski
í fyrirtæki saman, prufa það bara
upp á djókið. Þetta reyndist vera
kosmískur viðburður því um leið
og við ákváðum þetta fóru mun
stærri verkefni að koma inn á borð
til okkar. Alheimurinn var að bíða
eftir Kosmos & Kaos.“
Síðasta ár hefur verið glæsilegt hjá
strákunum og nú á dögunum þá
voru þeir tilnefndir til 5 verðlauna
á Íslensku vefverðlaununum sem
er uppskeruhátíð vefiðnaðarins,
haldin með það að markmiði að
efla hann, verðlauna bestu vefina
og hvetja þá sem starfa á þessum
vettvangi til dáða. Þeir félagar voru
bara tveir í u.þ.b. hálft ár en nú
hefur fyrirtækið stækkað töluvert
og eru 8 manns á launaskrá hjá
Kosmos & Kaos. Á þeirra fyrsta ári
í rekstri unnu þeir fyrir rúmlega
50 kúnna, sem þykir ansi mikið í
þessum bransa. „Það þýðir einn
nýjan kúnna á viku og það er eigin-
lega ekkert að breytast. Við erum
með það mikið að gera að það fer
að koma að því að við þurfum ein-
faldlega að neita viðskiptum.“
Kristján kemur 1-2 í viku til Reykja-
nesbæjar að vinna og honum líkar
mjög vel hérna. „Hálf ættin mín
á heima hérna svo þetta er ekkert
framandi fyrir mér. Það var aldrei
spurning að við yrðum hér og eins
og við vinnum þá er bara ekkert
gott að vera að hittast of mikið,“
segir Kristján og þeir skella upp úr.
Þeir hafa orð á því að fólk sé jafnan
hissa þegar þeir segjast vera með
skrifstofu í Keflavík.
Persónuleg þjónusta
skiptir máli
„Við vinnum ekki fyrir fyrirtæki
heldur fyrir fólkið í fyrirtækjunum.
Þannig viljum við hafa það. Við
viljum vera í sem mestum sam-
skiptum við okkar kúnna og hitta
fólkið. Ekki bara að vinna allt í
gegnum síma og tölvupóst. Þessi
hugsunarháttur er að læðast inn
aftur og það skiptir alveg máli að
starfsfólkið viti hvað það er að gera,
eins og er að gerast í þessum búðum
sem eru nokkurs konar stærri út-
gáfa af kaupmanninum á horninu.
Persónuleg og vinaleg þjónusta
virðist vera að koma aftur.“
Hinn venjulegi meðaljón úti í bæ
veit kannski ekki hvað vefhönnuðir
gera, um hvað snýst ykkar starf?
„Við sjáum einfaldlega um allt útlit
á vefsíðum viðskiptavina okkar. Við
erum ekki að forrita einhvern hug-
búnað, við fáumst ekki við það. Við
ákváðum fljótlega að við ætluðum
ekki að vera hugbúnaðarfyrirtæki.
Við ætlum bara að einbeita okkur
að því sem að fólkið sér á vefsíðum.
Við sjáum um þennan sjónræna
hluta og svo fáumst við töluvert við
markaðssetningu.“ Þeir viðurkenna
að það sé skemmtilegur hluti af
þeirra starfi að þróa hugmyndir
og þessa skapandi hluti, þó svo að
Guðmundi leiðist ekki að sitja við
tölvuna í sínum eigin heimi. „Mér
finnst ótrúlega gaman að sitja bara í
tölvunni með háa tónlist og grúska
eitthvað og laga.“ Krisján bætir
því við að þeirra vinna snúist jú
að miklu leyti um það að sitja við
tölvuna og dæla út vinnu og hug-
myndum. Svo eru málin rædd og
spilin borin saman inn á milli.
Eru þið þá miklir tölvunördar?
„Nei, mér finnst bara gaman að nota
tölvur, en hef ekki gaman af því að
fikta í þeim,“ segir Guðmundur.
Hann segist hafa gert mikið af
því áður en því nenni hann ekki
lengur. Kristján segist hafa verið
rosalegur tölvunörd en vill meina
að hann hafi öðlast tölvuþroska.
„Á einhverjum tímapunkti áttar
maður sig á því að maður er búinn
að prófa öll skipulagsforrit í heim-
inum og það er ekki það sem er
vandamálið við það að halda þér
skipulögðum. Heldur þarftu bara
að handskrifa hlutina og x-a við
það þegar þú klárar, “ segir hann
og hlær.
Þeir félagar segjast ekki alveg vita
hversu stórir þeir vilja verða ef svo
má að orði komast. Finna þurfi
þetta jafnvægi þar sem ekki sé farið
fram úr sér en þó sé nóg að gera.
„Við höfðum séð fyrir okkur að
vera með 6-7 starfsmenn, jafnvel
14 en þá gæti það verið of mikið.
Við viljum ekki verða eitthvað
stórfyrirtæki,“ segir Guðmundur.
Kristján bætir því þá við að það
fari mikið eftir því hvernig verk-
efnin gangi og hvort þú sért með
rétta fólkið í vinnu. „Þú gætir t.d.
ráðið bara inn tvo starfsmenn sem
vinna sjálfstætt, en um leið og þú
ert með 5-6 þannig starfsmenn þá
er það orðið frekar mikið fyrir mig
sem verkefnisstjóra að fylgjast með
þeim og leiða í gegnum hlutina. Þá
er ég hættur að geta verið í útseldri
vinnu sjálfur því ég þarf að segja
einhverjum öðrum til verka. Það er
mikið pælt í svona hlutum og erfitt
að finna þetta jafnvægi en það fer
held ég bara eftir hvaða persónur
er um að ræða hverju sinni. Svo
virðist það vera þannig að því fleiri
starfsmenn hjá fyrirtækinu þá sé
dýrara að versla við það.“
Hvað sem því öllu líður þá eru
þeir hjá Kosmos & Kaos á hraðri
siglingu og hafa á skömmum tíma
skipað sér í hóp stærstu vefhönn-
uða landins.
n
Við ætlum bara að
einbeita okkur að því
sem að fólkið sér á
vefsíðum. Við sjáum
um þennan sjón-
ræna hluta og svo
fáumst við töluvert
við markaðssetningu.
3x12
20% afsláttur af öllu 20%
AFSLÁTTUR
AF ÖLLU
20%
AFSLÁTTUR
AF ÖLLUM SKÓM
29. MARS - 2. APRÍL
Hafnargötu 29 - Sími:421 8585
vf.is
Páskablað Víkurfrétta kemur
út næsta miðvikudag!
Skilafrestur auglýsinga er til kl. 17:00 nk. mánudag.
Vinsamlegast bókið auglýsingar í næsta blað tímanlega
með því að senda póst á gunnar@vf.is eða hringja
í auglýsingadeild í síma 421 0001.
Þeir sem þurfa að koma að fréttatilkynningum
í sama blað sendi póst á vf@vf.is.