Víkurfréttir


Víkurfréttir - 29.03.2012, Page 14

Víkurfréttir - 29.03.2012, Page 14
14 FIMMTUdagUrInn 29. Mars 2012 • VÍKURFRÉTTIR Þriggja ára nám á spænsku Námið í fatahönnun við IED stendur yfir í þrjú ár og hægt er að velja um að læra á spænsku eða ensku. „Ég valdi frekar að læra á spænsku þar sem hún er eitt af mest töluðu tungu- málum í heiminum í dag. Það mun því henta vel ef stefnan er að stofna alþjóðlegt fyrirtæki að geta talað annað tungumál en ensku. Eini grunnurinn sem ég hafði í spænsku var það sem ég lærði í FS og kunni bara sí og no þannig ég ákvað að taka eins mánaðar tungumálanám í Madrid. Ég skildi því lítið fyrsta árið, þá sérstaklega í listasögunni en fékk góða hjálp frá íslenskum sessunaut sem kunni spænskuna vel. Á öðru ári var ég þó ein á báti en þá var spænskan líka fljót að koma, þegar loks reyndi á mig.“ Þegar kom að því að kynna verk- efnin í skólanum fékk Arna stundum að ráða hvort hún kynnti þau á ensku eða á spænsku. „Ef ég kynnti verkefnin mín fyrir framan bekkinn þá vildu kennararnir oft að ég talaði ensku, til að sam- nemendur mínir gætu lært af því.“ Samnemendur hennar voru flestir Spánverjar en ein vinkona Örnu var belgísk en hún tók núna síðast þátt á New York Fas- hion Week með sína eigin línu. Á fyrsta árinu í IED er nemendum kennd almenn fatahönnun en strax á öðru ári velja þeir sér sérgrein. Arna sérhæfði sig í kvenmanns- fatnaði (womenswear) og ásamt henni útskrifuðust um 70 aðrir. Lærir ekki bara að teikna og sauma fatnað Fatahönnunarnámið í IED snýst um margt fleira en að skissa og hitta leiðbeinendur eins og þekkist til dæmis í Central Saint Martins skólanum. Í IED er nauðsynlegt að hafa skapandi hugsunarhátt, kynna eitthvað nýtt og hugsa út fyrir rammann. „Þegar ég kynnti loka- verkefnið mitt fyrst var ég nánast rökkuð niður en náði að sannfæra kennarana í lokin þar sem þau heillast mjög af Íslandi og sér- staklega af ullinni sem ég ætlaði að nota í lokaverkefninu. Íslendingar virðast slá í gegn alls staðar og það er svolítið töff að vera frá Íslandi í hönnunarheiminum í dag.“ Skólinn leggur mikla áherslu á markaðs- og auglýsingafræði og nemendum er kennt að vera sjálf- stæðir og reka sitt eigið fyrirtæki að námi loknu. Samt sem áður er mælt með því að öðlast reynslu með því að vinna hjá öðrum hönnuðum. Í náminu er mikið um listasögu og fagurfræði og síðast en ekki síst klæðskeratímar. „Það kom fyrir að á sumum önn- unum voru kennd 10-12 fög í einu þannig að ég var í skólanum frá 9:00-19:00 á kvöldin og ofan á það var heimalærdómur. Eini tíminn sem gafst að vinna hann var á nótt- unni og þá svaf ég kannski bara í 3 klukkutíma. Á svoleiðis tímum var ekki hægt að tala við mig! Þetta var oft mikið álag og okkur var kennt að gera mjög mikið á stuttum tíma. Þannig vorum við undirbúin fyrir hinn raunverulega tískuheim og hvernig hlutirnir virka þar.“ Það geta allir lært að teikna Áður en Arna flutti erlendis hafði hún ágætan grunn í listnámi. Hún tók eitt ár í Myndlistaskóla Reykja- víkur þar sem hún lærði meðal annars módelteikningu og mælir Útskrifaðist Úr fatahönnun frá iED í MaDriD MEð 9,7 fyrir lokavErkEfnið Texti: Edda Rós Skúladóttir Myndir: Edda Rós og úr einkasafni Þurfti að lesa einkunnina nokkrum sinnum yfir til að vera sannfærð Arna Atladóttir er 27 ára, fædd og uppalin í Njarðvík. Hún útskrifaðist úr listaháskólanum Istituto Europeo di Design (IED) í Ma- drid með glæsibrag um síðustu áramót úr fatahönnun og segist í dag vera með hugann aðal- lega við barnaföt þar sem hún er nýbökuð móðir.

x

Víkurfréttir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.