Víkurfréttir


Víkurfréttir - 29.03.2012, Page 16

Víkurfréttir - 29.03.2012, Page 16
16 FIMMTUdagUrInn 29. Mars 2012 • VÍKURFRÉTTIR Rætur tanna eru meðal þess sem við fengum í vöggu- gjöf og mjög mikilvægt að ungbörn drekki brjósta- mjólk eins lengi og hægt er. Rannsóknir sýna að börn sem fá brjóstamjólk í lengri tíma en eitt ár standa sig betur í námi og þroskast betur líkamlega en börn sem fá brjóstamjólk í skemmri tíma. Barnamauk eða sérvalinn matur er ekki nauðsynlegur fyrsta árið. Þess verður að gæta að gefa börnum ekki of stóra bita því næringarefni með hýði geta staðið í þeim. Í þessu samhengi er sérlega mikilvægt að nefna að ungbörn eiga alls ekki að borða pylsur með görn. Annað sem ætti að forðast á fyrstu tveimur aldursárunum eru belgjurtir, djúpsteiktur matur og brauðskorpa. Að öðru leyti ættu eins árs börn að taka þátt í matartímanum með fjölskyldunni og borða mat þar sem ferlið við að læra að tyggja og bíta er nauðsynlegt til að þroska kjálka og góm. Séu börn mötuð lengi með næringu á borð við mauk og smábarnagrauta eða látin sjúga mikið fingur eða pela getur það skemmt tennur og stöðu þeirra í munni. Myndun tannglerungs á tannkrónum fullorðin- stanna á sér stað frá blautu barnsbeini. Á þeim tíma er sérstaklega mikilvægt að börn fái nóg af kalsíum, fosfór og D-vítamíni. Þessi næringarefni hafa mikil áhrif á myndun og samsetningu tannglerungs. Börn fá öll þessi nauðsynlegu efni úr ferskum ávöxtum, grænmeti, heilhveitivörum, mjólk, kjöti og fiski. Börn þurfa líka að drekka nóg. Börn upp að 10 ára aldri þurfa að drekka einn til tvo lítra af vökva á dag en meira ef þau hreyfa sig mikið eða hlýtt er í veðri. Við þorsta er best að fá sér hreint bergvatn en sýruríka drykki eins og ávaxtate og djús ætti ekki að drekka mjög oft. Þarmarnir eru ekki fullþroskaðir fyrr en á tíunda aldursári. Drykkja mjólkur er ekki æskileg því mörg börn fá magaverk, niðurgang eða uppköst þegar þau drekka mikla mjólk. Drykki sem innihalda sykur eða sýru, svo sem gos, djús og íste, ætti að forðast. Aðeins eldri unglingar ættu að hafa aðgang að koffínríkum drykkjum. Melting hefst í munn- inum, þar sem tennurnar mylja næringu, munn- vatnið þynnir hana og skipting kolvetna fer af stað. Í gegnum vélinda kemst næringin í mag- ann en þar geymist hún þangað til að hún fer í skeifugörnina í litlum bitum, sem eru minni en þrír millimetrar. Það skiptir litlu máli hvort við borðum brauð, spagettí eða ávexti, nán- ast öll kolvetni breytast í glúkósa. Hvítur sykur fer hins vegar óbreyttur í gegnum munn, háls og maga og endar í mjógörninni þar sem brissafi úr briskirtli og slímhúð þarma skiptir glúkósahlutunum. Glúkósi fer út í blóðið í gegnum slímhúð þarmanna. Því meira sem er af honum í blóðinu, því meira insúlín framleiðir briskirtillinn. Þannig kemst „eldsneyti“ úr blóðinu í frumuvefi þar sem það verður geymt. Þrátt fyrir það geta lifur og magi bara geymt ákveðið magn af glúkósa, afgangurinn endar sem „spik á mjöðmum“ eins og hvert orkugefandi næringarefni. Hér byrjar í rauninni glíman við offitu sem hefur verið vandamál margra á síðustu 15 árum. Segja má að offita sé 15% genatengd, 25% megi rekja til sorgar og ótta og 60% til álags og streitu. Í stað þess að láta neikvæð orð falla um „þau feitu“ væri ráðlegt að styðja þétt við bakið á þeim einstaklingum sem eiga við offituvandamál að stríða og aðstoða þá við að búa til dagsáætlun allrar fjölskyldunnar í átt að bættri næringu, heilsu og vellíðan. Gott er að slík áætlun byrji á sameiginlegum morgunverði og næringarríkum hádegismat allra fjölskyldumeðlima hvort sem þeir eru í vinnu eða í skóla. Á kvöldin ættu svo máltíðir að vera léttar á borð við súpu eða salat. Holl næring og dagleg sam- vera fjölskyldumeðlima krefst að sjálfsögðu góðrar skipulagningar í krefjandi hraða samfélags sem er stöðugt að taka breytingum og gerir sífellt auknar kröfur til einstaklinga. Birgitta Jónsdóttir Klasen Nærið barNið rétt frá uNga aldri Birgitta Jónsdóttir Klasen skrifar Skilafrestur vegna stjórnarkjörs Samkvæmt 6. grein laga Starfsmannafélags Suðurnesja, auglýsir uppstillinganefnd félagsins frest til að skila inn tillögum vegna stjórnarkjörs á aðalfundi félagsins. Í kjöri eru tveir aðalmenn í stjórn kosnir til tveggja ára og tveir varamenn í stjórn kosnir til eins árs. Tillögum skal skilað til Uppstillinganefdar Krossmóa 4, Reykjanesbæ eigi síðar en 9. apríl 2012. Tillögum skal fylgja nafn, kennitala, starfsheiti, heimilsfang og heiti vinnustaða þeirra sem tillagan er gerð um. Uppstillinganefnd STFS Orlofshús VSFK Sumar 2012 Eftirtalin orlofshús félagsins verða leigð út í sumar: 2 hús í Svignaskarði 3 hús í Húsafelli 2 hús í Ölfusborgum 2 hús í Hraunborgum 1 íbúð í raðhúsi að Núpasíðu 8h, á Akureyri Útleigutímabilið er frá föstudeginum 25. maí og fram til föstudagsins 24. ágúst. Umsóknir liggja frammi á skrifstofu félagsins og er umsóknarfrestur til kl. 16:00 mmtudaginn 11. apríl 2012. Úthlutað verður samkvæmt punktaker. Orlofsnefnd VSFK Grjótgarðar ehf. er nýtt fyrirtæki sem sérhæfir sig í lóðaframkvæmdum, jafnt við nýbyggingar og eins viðgerðir eða endurbætur á gömlum lóðum. Einnig tökum við að okkur trjáklippingar, trjáfellingar og gróðursetningar ásamt ráðgjöf um garðinn þinn. Hjá fyrirtækinu eru tveir faglærðir starfsmenn á sviði skrúðgarðyrkju sem báðir hafa mikla reynslu á sviði garðyrkju og lóðaframkvæmda. Hjalti Már Brynjarsson Skrúðgarðyrkjufræðingur Sími 771-4645 Birgir Axelsson Skrúðgarðyrkjumeistari Sími 867-4041 Hellulagnir - Hleðslur - trjáklippingar - Garðyrkja Ísak Daði sigraði Stóru upplestr- arkeppnina Lokakeppni Stóru upplestrar-keppninnar í Reykjanesbæ fór fram í Duushúsum miðvikudag- inn 21. mars. Ísak Daði Ingvason frá Njarðvíkurskóla stóð uppi sem sigurvegari en allir keppendur stóðu sig ákaflega vel. Hreiðar Máni Ragnarsson varð í öðru sæti og Valdís Lind Valdimarsdóttir hafnaði í þriðja sæti. Dómarar áttu í mestu erfiðleikum með að gera upp á milli keppenda enda var lestur keppenda feikilega góður og margir efnilegir úr þessum hóp. ›› Stóra upplestrarkeppnin: Páskablað Víkurfrétta kemur út næsta miðvikudag! Skilafrestur auglýsinga er til kl. 17:00 nk. mánudag. Vinsamlegast bókið auglýsingar í næsta blað tímanlega með því að senda póst á gunnar@vf.is eða hringja í auglýsingadeild í síma 421 0001 NÆSTA BLAÐ Á MIÐVIKUDAG! VERIÐ TÍMANLEGA MEÐ AUGLÝSINGAR

x

Víkurfréttir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.