Víkurfréttir - 29.03.2012, Síða 16
16 FIMMTUdagUrInn 29. Mars 2012 • VÍKURFRÉTTIR
Rætur tanna eru meðal þess sem við fengum í vöggu-
gjöf og mjög mikilvægt að ungbörn drekki brjósta-
mjólk eins lengi og hægt er. Rannsóknir sýna að börn
sem fá brjóstamjólk í lengri tíma en eitt ár standa sig
betur í námi og þroskast betur líkamlega en börn
sem fá brjóstamjólk í skemmri tíma. Barnamauk
eða sérvalinn matur er ekki nauðsynlegur fyrsta
árið. Þess verður að gæta að gefa börnum ekki of
stóra bita því næringarefni með hýði geta staðið
í þeim. Í þessu samhengi er sérlega mikilvægt að
nefna að ungbörn eiga alls ekki að borða pylsur með
görn. Annað sem ætti að forðast á fyrstu tveimur
aldursárunum eru belgjurtir, djúpsteiktur matur
og brauðskorpa. Að öðru leyti ættu eins árs börn
að taka þátt í matartímanum með fjölskyldunni og
borða mat þar sem ferlið við að læra að tyggja og
bíta er nauðsynlegt til að þroska kjálka og góm. Séu
börn mötuð lengi með næringu á borð við mauk og
smábarnagrauta eða látin sjúga mikið fingur eða pela
getur það skemmt tennur og stöðu þeirra í munni.
Myndun tannglerungs á tannkrónum fullorðin-
stanna á sér stað frá blautu barnsbeini. Á þeim tíma
er sérstaklega mikilvægt að börn fái nóg af kalsíum,
fosfór og D-vítamíni. Þessi næringarefni hafa mikil
áhrif á myndun og samsetningu tannglerungs. Börn
fá öll þessi nauðsynlegu efni úr ferskum ávöxtum,
grænmeti, heilhveitivörum, mjólk, kjöti og fiski.
Börn þurfa líka að drekka nóg. Börn upp að 10 ára
aldri þurfa að drekka einn til tvo lítra af vökva á dag
en meira ef þau hreyfa sig mikið eða hlýtt er í veðri.
Við þorsta er best að fá sér hreint bergvatn en sýruríka
drykki eins og ávaxtate og djús ætti ekki að drekka
mjög oft. Þarmarnir eru ekki fullþroskaðir fyrr en
á tíunda aldursári. Drykkja mjólkur er ekki æskileg
því mörg börn fá magaverk, niðurgang eða uppköst
þegar þau drekka mikla mjólk. Drykki sem innihalda
sykur eða sýru, svo sem gos, djús og íste, ætti að
forðast. Aðeins eldri unglingar ættu að hafa aðgang
að koffínríkum drykkjum. Melting hefst í munn-
inum, þar sem tennurnar mylja næringu, munn-
vatnið þynnir hana og skipting
kolvetna fer af stað. Í gegnum
vélinda kemst næringin í mag-
ann en þar geymist hún þangað
til að hún fer í skeifugörnina
í litlum bitum, sem eru minni
en þrír millimetrar. Það skiptir
litlu máli hvort við borðum
brauð, spagettí eða ávexti, nán-
ast öll kolvetni breytast í glúkósa. Hvítur sykur fer
hins vegar óbreyttur í gegnum munn, háls og maga
og endar í mjógörninni þar sem brissafi úr briskirtli
og slímhúð þarma skiptir glúkósahlutunum. Glúkósi
fer út í blóðið í gegnum slímhúð þarmanna. Því
meira sem er af honum í blóðinu, því meira insúlín
framleiðir briskirtillinn. Þannig kemst „eldsneyti“
úr blóðinu í frumuvefi þar sem það verður geymt.
Þrátt fyrir það geta lifur og magi bara geymt ákveðið
magn af glúkósa, afgangurinn endar sem „spik á
mjöðmum“ eins og hvert orkugefandi næringarefni.
Hér byrjar í rauninni glíman við offitu sem hefur
verið vandamál margra á síðustu 15 árum. Segja má
að offita sé 15% genatengd, 25% megi rekja til sorgar
og ótta og 60% til álags og streitu. Í stað þess að láta
neikvæð orð falla um „þau feitu“ væri ráðlegt að
styðja þétt við bakið á þeim einstaklingum sem eiga
við offituvandamál að stríða og aðstoða þá við að búa
til dagsáætlun allrar fjölskyldunnar í átt að bættri
næringu, heilsu og vellíðan.
Gott er að slík áætlun byrji á sameiginlegum
morgunverði og næringarríkum hádegismat allra
fjölskyldumeðlima hvort sem þeir eru í vinnu eða
í skóla. Á kvöldin ættu svo máltíðir að vera léttar á
borð við súpu eða salat. Holl næring og dagleg sam-
vera fjölskyldumeðlima krefst að sjálfsögðu góðrar
skipulagningar í krefjandi hraða samfélags sem er
stöðugt að taka breytingum og gerir sífellt auknar
kröfur til einstaklinga.
Birgitta Jónsdóttir Klasen
Nærið barNið rétt frá uNga aldri
Birgitta Jónsdóttir Klasen skrifar
Skilafrestur vegna
stjórnarkjörs
Samkvæmt 6. grein laga Starfsmannafélags Suðurnesja,
auglýsir uppstillinganefnd félagsins frest til að skila inn
tillögum vegna stjórnarkjörs á aðalfundi félagsins.
Í kjöri eru tveir aðalmenn í stjórn kosnir til tveggja ára og
tveir varamenn í stjórn kosnir til eins árs.
Tillögum skal skilað til Uppstillinganefdar Krossmóa 4,
Reykjanesbæ eigi síðar en 9. apríl 2012. Tillögum skal fylgja
nafn, kennitala, starfsheiti, heimilsfang og heiti vinnustaða
þeirra sem tillagan er gerð um.
Uppstillinganefnd STFS
Orlofshús VSFK
Sumar 2012
Eftirtalin orlofshús félagsins verða
leigð út í sumar:
2 hús í Svignaskarði
3 hús í Húsafelli
2 hús í Ölfusborgum
2 hús í Hraunborgum
1 íbúð í raðhúsi að Núpasíðu 8h, á Akureyri
Útleigutímabilið er frá föstudeginum 25. maí
og fram til föstudagsins 24. ágúst.
Umsóknir liggja frammi á skrifstofu félagsins og
er umsóknarfrestur til kl. 16:00
mmtudaginn 11. apríl 2012.
Úthlutað verður samkvæmt punktaker.
Orlofsnefnd VSFK
Grjótgarðar ehf. er nýtt fyrirtæki sem sérhæfir sig í lóðaframkvæmdum, jafnt við nýbyggingar
og eins viðgerðir eða endurbætur á gömlum lóðum. Einnig tökum við að okkur trjáklippingar,
trjáfellingar og gróðursetningar ásamt ráðgjöf um garðinn þinn.
Hjá fyrirtækinu eru tveir faglærðir starfsmenn á sviði skrúðgarðyrkju sem báðir hafa mikla
reynslu á sviði garðyrkju og lóðaframkvæmda.
Hjalti Már Brynjarsson
Skrúðgarðyrkjufræðingur
Sími 771-4645
Birgir Axelsson
Skrúðgarðyrkjumeistari
Sími 867-4041
Hellulagnir - Hleðslur - trjáklippingar - Garðyrkja
Ísak Daði sigraði
Stóru upplestr-
arkeppnina
Lokakeppni Stóru upplestrar-keppninnar í Reykjanesbæ fór
fram í Duushúsum miðvikudag-
inn 21. mars. Ísak Daði Ingvason
frá Njarðvíkurskóla stóð uppi sem
sigurvegari en allir keppendur
stóðu sig ákaflega vel. Hreiðar
Máni Ragnarsson varð í öðru sæti
og Valdís Lind Valdimarsdóttir
hafnaði í þriðja sæti. Dómarar
áttu í mestu erfiðleikum með að
gera upp á milli keppenda enda
var lestur keppenda feikilega
góður og margir efnilegir úr
þessum hóp.
›› Stóra upplestrarkeppnin:
Páskablað Víkurfrétta kemur
út næsta miðvikudag!
Skilafrestur auglýsinga er til kl. 17:00 nk. mánudag.
Vinsamlegast bókið auglýsingar í næsta blað tímanlega
með því að senda póst á gunnar@vf.is eða hringja
í auglýsingadeild í síma 421 0001
NÆSTA BLAÐ
Á MIÐVIKUDAG!
VERIÐ TÍMANLEGA
MEÐ AUGLÝSINGAR