Víkurfréttir - 29.03.2012, Qupperneq 22
22 FIMMTUdagUrInn 29. Mars 2012 • VÍKURFRÉTTIR
Lögreglustjórinn á
Suðurnesjum opnar
síðu á Facebook
Lögreglan á Suður-
nesjum hefur
ákveðið að stofna
fésbókarsíðu í
þeim tilgangi
að koma betur
til móts við íbúa umdæmisins
og auka upplýsingastreymi
og aðgengi að lögreglu.
Á síðunni segir Sigríður Björk
Guðjónsdóttir, lögreglustjóri á
Suðurnesjum að vonandi falli
þessi nýbreytni íbúum vel í geð.
Nokkurt magn
fíkniefna í sölu-
pakkningum
Lögreglan á Suðurnesjum
framkvæmdi
húsleit á heimili
í Reykjanesbæ á
laugardagskvöld
og lagði hald á nokkurt magn
fíkniefna í sölupakkningum.
Húsráðandi, karlmaður á þrí-
tugsaldri, viðurkenndi aðild sína
að málinu og telst það upplýst.
Lögreglan minnir á fíkniefna-
símann 800-5005. Í hann má
hringja nafnlaust til að koma
á framfæri upplýsingum um
fíkniefnamál. Fíkniefnasíminn
er samvinnuverkefni lögreglu
og tollyfirvalda og er liður í
baráttunni við fíkniefnavandann.
Með fíkniefni
í nærbuxunum
Lögreglan á Suður-
nesjum hafði
afskipti af fimm
ökumönnum
í vikunni, sem
grunaðir voru um akstur undir
áhrifum fíkniefna. Tveir karl-
menn, báðir á fimmtugsaldri
voru færðir á lögreglustöð
og annar þeirra sviptur öku-
réttindum. Karl og kona um
tvítugt voru einnig handtekin
af sömu sökum. Loks hafði
lögregla afskipti af tæplega
þrítugum karlmanni sem var
grunaður um fíkniefnaakstur.
Við leit á honum fannst tóbaks-
blandað kannabis sem hann
hafði falið í nærbuxum sínum.
Þá stöðvaði lögregla konu um
þrítugt sem grunuð er um
ölvunarakstur. Hún var hand-
tekin og flutt á lögreglustöð.
Ofurölvi í
umferðinni
Lögreglan á Suður-
nesjum handtók
ofurölvi konu í
umferðinni um
eittleytið í nótt
(22. mars) eftir að aksturslag
hennar hafði vakið athygli.
Hún virtist vera verulega undir
áhrifum því hún var rétt dottin
út úr bílnum þegar lögreglumenn
opnuðu bílstjórahurðina.
›› FRÉTTIR ‹‹
Mikil spenna er nú þegar hlaupin í úrslitakeppni
kvenna og ljóst að þar verður
barist til síðasta blóðdropa. Karl-
arnir hefja leik í kvöld og Víkur-
fréttir tóku tali fulltrúa frá Suður-
nesjaliðunum en að þessu sinni
eru þau öll inni. Grindvíkingar
sem hömpuðu deildarmeistara-
titlinum á dögunum taka á móti
grönnum sínum frá Njarðvík en
þeir grænklæddu tryggðu sig inn
í úrslitakeppni á síðustu andar-
tökunum. Keflvíkingar eiga ekki
heimaleikjarétt þar sem þeir höfn-
uðu í 5. sæti en þeir há rimmu
gegn Stjörnumönnum Teits
Örlygssonar. Stjörnumenn hafa
haft ákveðið tak á Keflvíkingum í
vetur en þessi rimma verður sjálf-
sagt hörð og spennandi og víst
að Keflvíkingar munu ekki selja
sig ódýrt.
Einar Árni Jóhannsson, annar
þjálfari Njarðvíkinga, segir að liðið
ætli sér að fara í rimmuna gegn
Grindavík til þess að vera með
og liðið ætlar sér að stela leik af
deildarmeisturunum.
„Þetta verður krefjandi verkefni
fyrir okkur þar sem við erum að
berjast gegn einu best mannaða liði
síðari ára hér á landi. Þeir tryggðu
sér deildartitilinn frekar snemma
og hafa sterka leikmenn í öllum
stöðum. Þetta verður klárlega erfitt
verkefni, en spennandi fyrir okkar
stráka.“
„Við ætlum okkur að fara í þessa
rimmu og gera eitthvað annað en
að vera bara með,“ segir Einar.
„Við horfum á þetta þannig að við
ætlum okkur að stela leik og þegar
við erum búnir að því þá getur allt
gerst, það er bara þannig. Við von-
umst bara eftir því að hitta á okkar
besta leik í dag, og ef ekki þá bara á
sunnudaginn á þeim stað þar sem
okkur líður hvað best á,“ en þar á
Einar við Ljónagryfjuna þar sem
Njarðvíkingar hafa jafnan verið
harðir heim að sækja.
Er erfitt að undirbúa þessa ungu
leikmenn sem flestir hafa ekki
komið nálægt úrslitakeppni í úr-
valsdeild áður? „Þeir hafa flestir
bara séð þetta úr stúkunni eða af
ritaraborðinu í gegnum tíðina en
við skynjum bara tilhlökkun og
eftirvæntingu hjá strákunum eftir
því að keppa meðal þeirra bestu.
Það má kannski segja það að flestir
hafi ekki haft trú á því að við kæm-
umst í þessa stöðu. Flestir héldu
að við myndum ekki halda okkur
uppi, enn færri trúðu því að við
færum í úrslitakeppni og margir eru
á því að við náum ekki að gera leik
spennandi í þessari rimmu gegn
Grindavík,“ en Njarðvíkingum var
spáð falli í byrjun tímabils.
Ungu strákarnir í Njarðvík hafa
verið að leika mikið af mínútum í
vetur og ekki bara með meistara-
flokki. „Það er búin að vera mikil
keyrsla á þessum strákum í vetur.
Það eru þónokkrir sem eru að spila
í unglinga- og drengjaflokki og
alveg niður í 11. flokk. Við höfum
reynt að dreifa álaginu á þessa
stráka en auðvitað hefur það komið
við stöku stráka. Sem dæmi má
nefna Elvar Má Friðriksson, hann
er að leika með drengja-, unglinga-
og meistaraflokki og þeir sem hafa
verið að leysa hann hvað mest af,
bæði í unglinga- og meistaraflokki
hafa verið að glíma við erfið meiðsli
og því hefur álagið á honum verið
ansi mikið,“ segir Einar en Elvar
hefur verið einn besti leikmaður
meistaraflokks í vetur.
Eru veikleikar hjá Grindvík-
ingum?
„Eins góðir og þeir eru þá eru þeir
eins og önnur lið. Þeir eiga sína
góðu og slæmu daga og við sjáum
okkur færi á að gefa þeim einhver
högg en þá verður hugarfar okkar
að vera rétt.“
Ætlum okkur að stela leik
- segir Einar Árni þjálfari Njarðvíkinga sem fara til Grindavíkur í kvöld
Bakvörðurinn Arnar Freyr Jónsson hefur vægast sagt
átt erfitt uppdráttar á yfirstand-
andi tímabili en ýmis meiðsl
hafa orðið til þess að Keflvík-
ingar hafa lítið getað notið
krafta þessa snjalla leikmanns.
Þrátt fyrir að Arnar virtist vera
að ná fyrri heilsu nú fyrir stuttu
þá hefur komið annað bakslag,
en Arnar fékk högg á hnéð í leik
gegn ÍR fyrir skömmu. „Ég er
með bólgur í hnénu sem gera
það að verkum að það er of
mikill þrýstingur á liðinn. Ég
vil síst taka áhættuna á því að
slíta liðbandið aftur,“ sagði
Arnar í samtali við Víkurfréttir
en Arnar sleit liðband í hnénu
í fyrra. Nú í ár hefur hann svo
glímt við nárameiðsl og auk þess
rifinn liðþófa í þessu sama hné.
„Þetta er búið að vera rússíbani
þar sem skiptast á gleði og sorg.
Ég hef náð því að byrja aftur á
fullu en þá kemur alltaf bakslag
hjá mér.“
Til stóð að Arnar myndi láta
tappa vökva af hnénu en læknir
ráðlagði honum að gera það ekki
vegna hættu á sýkingu. Næstu
tvær vikurnar fara því í hvíld hjá
Arnari þar sem hann má ekki
hoppa og skoppa um parketið í
Sláturhúsinu. Arnar er vissulega
sár yfir því að missa af svo miklu
og þá ekki síst úrslitakeppninni.
„Ég ætlaði mér að hjálpa liðinu
í lokabaráttunni. Vonandi get
ég hjálpað í næstu umferð ef við
vinnum Stjörnuna, sem ég býst
við að við gerum,“ en á morgun
fara Keflvíkingar í Garðabæ og
mæta Stjörnunni í fyrstu umferð
úrslitakeppninnar.
„Þetta er hörkulið en þeir eru
búnir að fara illa með okkur í
vetur. Þeir hafa að ég held unnið
okkur þrisvar í vetur og er eina
liðið sem við höfum ekki sigrað
á tímabilinu. Menn eru fúlir
og pirraðir yfir því og ætla að
sýna hvað í þeim býr í þessum
leikjum.“ Að sögn Arnars lítur
liðið ansi vel út og aukin harka
er komin í æfingar liðsins. „Þó
svo að Stjarnan sé búin að vinna
okkur í leikjum vetrarins þá er
það ekki að fara að gerast núna,“
sagði Arnar Freyr að lokum.
Jóhann Þór Ólafsson er að-stoðarþjálfari Grindvíkinga
en hann telur að pressan sé á
Grindvíkingum og að verkefnið
verði ekki auðvelt gegn grönnum
þeirra úr Njarðvík.
Má fólk búast við því að Grind-
víkingar vinni einvígið 2-0 gegn
Njarðvík?
„Það er bara mikið undir okkur
sjálfum komið. Við höfum sýnt
það í vetur að við höfum verið ill-
viðráðanlegir þegar sá gállinn
er á okkur en inn á milli höfum
við átt slæma leiki og verið ansi
slakir. Þetta er bara verðugt verk-
efni og verður ekkert auðvelt þrátt
fyrir að margir vilji meina það.“
Sérfræðingarnir spá flestir hverjir
Grindvíkingum sigri og pressan
er sjálfsagt á deildarmeisturunum.
„Auðvitað er pressan á okkur en
við verðum bara að höndla hana og
vinna þetta.“
Helstu styrkleikar Njarðvíkinga eru
að mati Jóhanns þeir tveir erlendu
leikmenn sem hafa verið að draga
vagninn fyrir liðið. „Auk nokk-
urra ungra stráka sem hafa verið
sterkir í vetur,“ sagði aðstoðarþjálf-
ari Grindvíkinga en hann býst við
jafnri og spennandi úrslitakeppni
þar sem mörg lið eiga möguleika á
að ná langt.
Þegar þetta er skrifað þá eru Keflvíkingar komnir
með bakið upp við vegginn
fræga og þurftu nauðsynlega á
sigri að halda gegn Haukum í
undanúrslitum Iceland Express-
deild kvenna í gærkvöldi. Úrslit
má nálgast á vf.is en staðan var
2-0 í einvíginu fyrir Hauka og
því óljóst með úrslit þegar blaðið
fór í prentun. Njarðvíkingar eru
komnar langleiðina í úrslit eftir
sigur á heimavelli sínum á þriðju-
dagskvöld gegn Snæfelli 93-85,
en staðan í einvíginu er 2-1 fyrir
Njarðvík. Leikir liðanna hafa verið
afar spennandi en leikið verður á
laugardaginn þar sem Njarðvík
getur komist í úrslit. Keflvíkingar
hafa einnig háð spennandi rimmu
gegn Haukum og einungis vantað
herslumuninn upp á að leikirnir
hafi dottið þeirra megin.
Úrslit leikja:
Njarðvík - Snæfell 93-85
Snæfell - Njarðvík 85-83
Njarðvík - Snæfell 87-84
Keflavík - Haukar 54-63
Haukar - Keflavík 73-68
Býst við að klára Stjörnuna
Pressan er á okkur
Keflvíkingar upp við vegg en Njarðvík í kjörstöðu